Fréttablaðið - 21.09.2019, Blaðsíða 8
REYKJAVÍK „Við erum reiðubúin að
grípa til aðgerða ef það á að vaða
yfir mörg hundruð fjölskyldur,
þetta snýst um öryggi og menntun
barna okkar,“ segir Sævar Reykjalín,
foreldri þriggja drengja í Kelduskóla
og formaður foreldrafélags skólans.
„Ég gef lítið fyrir tal um að ekkert
sé búið að ákveða, það læðist að
manni sá grunur að þegar búið sé að
taka ákvörðun þá verði enn minna
tekið mark á okkur.“
Fram kom í skýrslu Innri endur-
skoðunar borgarinnar að Keldu-
skóli væri dýrastur í rekstri og lagt
var til að starfsstöðinni í Korpu
yrði lokað. Í skýrslu starfshóps
borgarinnar frá því í sumar koma
fram tvær tillögur. Annars vegar að
gera Kelduskóla Vík að unglinga-
skóla og gera skólana í Borgum
og Engi að skóla fyrir yngri bekki.
Hins vegar að fara í uppbyggingu í
Staðarhverfi.
Niðurstaða fundar foreldrafélags
Kelduskóla í vikunni var að leggjast
alfarið gegn því að skólanum verði
lokað og að allt tal um að loka
starfsstöð skólans í Korpu og breyta
fyrirkomulaginu í Vík hafi streitu-
valdandi áhrif á börnin.
„Það voru um hundrað manns
á fundinum og mikil samstaða,“
segir Sævar. „Við höfum fengið
mikinn meðbyr eftir að þetta hætti
bara að snúast um Staðarhverfi.
Ef Korpuskóla verður lokað þurfa
öll börnin í Staðarhverfi að fara úr
hverfinu í skóla. Strákarnir mínir
færu í tvo mismunandi skóla.“
Skúli Helgason, formaður skóla-
og frístundaráðs Reykjavíkur, segir
að ekki sé búið að taka ákvörðun
um framtíð Kelduskóla. Tvær ítar-
legar tillögur liggi fyrir frá starfs-
hópi með aðkomu starfsfólks,
foreldra og stjórnenda. Beðið sé
eftir mati á þeim frá umhverfis- og
skipulagssviði áður en endanleg
ákvörðun verður tekin.
Staðreyndin sé sú að börnum fari
sífellt fækkandi á starfsstöðinni í
Korpu. Þar séu nú einungis 59 börn
og þeim hafi fækkað um meira en
helming frá 2012. Nauðsynlegt sé að
bregðast við því til að tryggja nem-
endum nauðsynlega fjölbreytni
varðandi námsframboð, félagaval
og fleira.
Sævar segir borgina hafa til þessa
hundsað aðra möguleika. „Það
hefur þegar komið fram tillaga
um að breyta Kelduskóla-Korpu
í leik- og grunnskóla fyrir eins til
níu ára börn og eins stendur til að
byggja í Skerjafirði, það þyrfti bara
að gera minniháttar breytingar á
skólalóðinni til að það geti orðið að
veruleika,“ segir hann. „Svo hefur
Hjallastefnan sýnt áhuga á að sjá
um skólann sem er mun fýsilegra
en að honum verði alfarið lokað.“
Skúli segir hugmyndir um sam-
einaðan leik- og grunnskóla hafa
verið skoðaðar á sínum tíma en
þær hafi ekki breytt miklu varðandi
fjölda barna.
Hjallastefnan hefur áhuga á að
skoða að taka við skólanum. „Við
erum tilbúin að ganga til samn-
ingaviðræðna við Reykjavíkur-
borg, fulltrúar borgarinnar vita
af því,“ segir Þórdís Jóna Sigurðar-
dóttir, framkvæmdastjóri Hjalla-
stefnunnar. „Þau óformlegu við-
brögð sem við höfum fengið hafa
ekki verið jákvæð.“ Þórdís segir að
Hjallastefnan myndi áfram reka
skólann frá 1. upp í 7. bekk. Á sama
tíma mun borgin greiða framlag
með hverju barni. Í dag er það 75
prósent af meðaltalskostnaði við
rekstur grunnskólabarna á lands-
vísu.
Skúli kannast við hugmyndir um
að Hjallastefnan taki yfir skólann
en Barnaskóli Hjallastefnunnar
hafi ekki lagt fram erindi með ósk
um að taka húsið á leigu og reka þar
skóla undir sínum merkjum. „En
við erum ennþá með málið í ferli og
hlustum á allar góðar hugmyndir,“
segir Skúli. arib@frettabladid.is
Hjallastefnan hefur
áhuga á skóla í Korpu
Foreldrar barna í Kelduskóla leggjast alfarið gegn hugmyndum um lokun
skólans. Hjallastefnan er tilbúin að ganga til viðræðna um að taka við skól-
anum í Staðarhverfi. Fulltrúi meirihlutans segir hlustað á allar góðar tillögur.
Nemendum Kelduskóla hefur fækkað í starfsstöðinni í Korpu síðustu ár, í dag eru þeir undir 60. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
V Í S I N D A K A F F I
ALLIR VELKOMNIR
Í aðdraganda Vísindavöku Rannís er hellt upp á Vísindakaffi,
þar sem almenningi gefst kostur á að hitta vísindafólk, kynnast
áhugaverðum viðfangsefnum og spyrja það spjörunum úr.
Nánar um efnið á www.visindavaka.is/visindakaffi
Reykjavík – Kaffi Laugalæk:
Mánudag 23. september kl. 20:30-22:00
Á ég annað sjálf í hliðstæðum raunveruleika?
Skammtafræði og raunveruleikinn
Sigurður Ingi Erlingsson prófessor við HR
Þriðjudag 24. september kl. 20:30-22:00
Hafa ekki allir gott af Rítalíni?
Guðrún Dóra Bjarnadóttir geðlæknir og
Gyða Guðmundsdóttir sálfræðingur
Miðvikudag 25. september kl. 20:30-22:00
Hvað á Ísland að heita þegar allur ís er farinn? ...land?
Halldór Björnsson og Hrafnhildur Hannesdóttir
frá Veðurstofu Íslands
Fimmtudag 26. september kl. 20:30-22:00
Opið samfélag – Hvernig getur almenningur hamið valdið?
Jón Ólafsson prófessor við hugvísindadeild HÍ
Akureyri – Orðakaffi, Amtsbókasafninu
Fimmtudag 26. september kl. 20:00-21:30
Saga til næsta bæjar?
Gréta Bergrún Jóhannesdóttir, kynjafræðingur
og doktorsnemi við Háskólann á Akureyri.
Strandir – Kaffi Kind,
Sauðfjársetrinu í Sævangi á Ströndum
Fimmtudag 26. september kl. 20:00
Menningararfur í myndum
Jón Jónsson og Eiríkur Valdimarsson þjóðfræðingar
Bolungarvík – Rannsóknarsetri HÍ
á Vestfjörðum
Laugardag 28. september kl. 14:00-16:00
Hvaða áhrif hafa umhverfisbreytingar í sjó á ferðir þorskseiða?
Guðbjörg Ásta Ólafsdóttir, forstöðumaður
og Anja Nickel doktorsnemi
Á MANN M.V. 2 FULLORÐNA
NÁNAR Á UU.IS EÐA Í SÍMA 585 4000
VERÐ FRÁ 114.900 KR.
31. OKTÓBER - 3. NÓVEMBER
FLUG & GISTING MEÐ MORGUNVERÐI
FARARSTJÓRI
UNNUR PÁLMARSDÓTTIR
En við erum ennþá
með málið í ferli og
hlustum á allar góðar
hugmyndir.
Skúli Helgason, for-
maður skóla- og
frístundaráðs
Reykjavíkur
Ef Korpuskóla
verður lokað þurfa
öll börnin í Staðarhverfi að
fara úr hverfinu í skóla.
Strákarnir mínir færu í tvo
mismunandi skóla.
Sævar Reykjalín,
formaður
foreldrafélags
Kelduskóla
DÓMSMÁL Þrír dómarar Lands-
réttar komust að þeirri niðurstöðu
að milda fangelsisdóm úr fjórum
árum í þrjú yfir manni sem var sak-
felldur fyrir tvö kynferðisbrot gegn
þáverandi eiginkonu sinni sem og
blygðunar- og barnaverndarlagabrot
gagnvart syni sínum.
Þá var maðurinn einnig sakfelldur
fyrir ítrekuð brot gegn nálgunar-
banni og að hafa brotið gegn fjar-
skiptalögum með því að koma fyrir
GPS-staðsetningartæki á bifreið
eiginkonu sinnar.
Miskabætur til brotaþola voru
hins vegar hækkaðar úr 1,6 millj-
ónum króna í 2 milljónir.
Kom fram í dómnum að horft
væri til þess að meðferð málsins
hefði dregist úr hófi. Maðurinn var
sakfelldur fyrir tvær nauðganir sem
áttu sér stað 22. og 23. febrúar 2016.
Þótti sannað að hann hefði haft sam-
ræði við brotaþola gegn vilja hennar
og með því að beita hana ofbeldi og
annars konar ólögmætri nauðung.
Taldi dómurinn að vitnisburður
konunnar hefði verið trúverðugur
auk þess sem hann var studdur
skýrslu læknis á Neyðarmóttöku
sem og vitnisburði kunningjakonu
brotaþola.
Maðurinn hafnaði því að um
nauðgun hefði verið að ræða og að
samræðið hefði verið með samþykki
beggja.
Fram kemur að hinn sakfelldi
hefði haft vald yfir konunni og mik-
inn sannfæringarmátt. Sagðist brota-
þoli verða stíf og fá hnút í magann
af hræðslu í samskiptum við hann.
Þannig hefði hann getað haft kyn-
mök við hana án samþykkis. – bþ
Dómur yfir nauðgara mildaður um ár
Landsréttur birti dóminn yfir
manninum í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
2 1 . S E P T E M B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
2
1
-0
9
-2
0
1
9
0
5
:2
5
F
B
0
9
6
s
_
P
0
8
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
8
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
D
6
-6
D
F
4
2
3
D
6
-6
C
B
8
2
3
D
6
-6
B
7
C
2
3
D
6
-6
A
4
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
B
F
B
0
9
6
s
_
2
0
_
9
_
2
0
1
9
C
M
Y
K