Fréttablaðið - 21.09.2019, Blaðsíða 30
Strákarnir segja að lúxus-vandamál sé viðfangsefnið. „Ég svaf yfir mig, vekjara-
klukkan hringdi ekki þar sem nýi
síminn minn var batteríslaus. Ég fór
á veitingastað, pantaði mér ristað
brauð og þurfti að bíða í klukku-
tíma. Ég horfði á trailer fyrir bíó-
mynd, fór í bíó á myndina, öll góðu
atriðin voru í trailernum. Ég var í
sundi, þegar ég ætlaði að þurrka
mér var handklæðið mitt horfið og
ég notaði hárblásarann. Ég ætlaði
að gera @ merki í Apple-tölvu, allt
hvarf,“ útskýra þeir aðspurðir um
textana.
Strákarnir bæta við að þeir ætli
að taka sig á og hætta að kvarta
yfir hlutum sem skipta engu máli.
„Hlæjum að þessum „vandamálum“
frekar og tökum eftir því hvað við
höfum það næs.“
Nýja lagið má heyra á Spotify,
Youtube og öllum helstu streymis-
veitum. Hljómsveitin var stofnuð
2015 og hefur sent frá sér tvær
plötur. Bræðurnir vinna nú í nýrri
plötu sem þeir segja að innihaldi
hress lög sem hægt sé að dansa við,
að sögn Markúsar. „Ég held að við
séum að fara í aðeins hressari gír og
dansvænni tónlist, ef það má kalla
það svo.“
Ólust upp í eþíópísku þorpi
Bræðurnir hafa lengi spilað tónlist
saman þótt hljómsveitin sé aðeins
fjögurra ára gömul. „Við erum í
rauninni búnir að spila saman
frá því við vorum pínulitlir,“ segir
Markús. Omotrack er fyrsta verk-
efnið þar sem þeir ákváðu að byrja
að taka upp og gera tónlistina að
atvinnu. Bræðurnir segjast vinna
vel saman og þar hjálpi svipaður
tónlistarsmekkur mikið.
„Það gengur mjög vel hjá okkur
að púsla þessu saman. Við erum
með svipaðan tónlistarsmekk og
fílum yfirleitt nákvæmlegu sömu
hlutina í okkar tónlistarmennsku,“
segir Birkir um samvinnuna.
Það sem hefur mótað bræðurna
eru ár þeirra í Eþíópíu þar sem
þeir ólust upp. Foreldrar þeirra
unnu þar við hjálparstarf. Nafnið á
hljómsveitinni er dregið af þorpinu
Omo Rate í Eþíópíu þar sem
Hlæja að lúxusvandamálum
Bræðurnir Birkir og Markús Bjarnasynir í hljómsveitinni Omotrack voru að gefa út lagið Quality
ásamt tónlistarmyndbandi við það. Bræðurnir ólust upp í Eþíópíu og lögin endurspegla það.
Bræðurnir Birkir Bjarnason og Markús Bjarnason starfa saman í hljómsveitinni Omotrack.
Sólrún
Freyja Sen
solrunfreyja@frettabladid.is
Markús og Birkir bjuggu. „Ég bjó
þar í sjö ár og Birkir í fimm,“ segir
Markús. Birkir útskýrir að hann sé
nefnilega tveimur árum yngri.
Eþíópískur blær
Platan Wild Contrast fjallar um
muninn á Eþíópíu og Íslandi. „Sú
plata fjallar um hvernig tilfinn-
ingin er á Íslandi og tilfinningin í
Eþíópíu, við blöndum þeim saman í
einn hrærigraut,“ útskýrir Markús.
Birkir segir að vera þeirra í Eþíópíu
hafi farið vel með þá og síðan þeir
fluttu heim hafi þeir farið í heim-
sókn nokkrum sinnum. „Við eigum
mikið af góðum minningum. Það er
mikill hiti þar sem er kostur í okkar
augum. Við nutum þess algjörlega
að búa þarna.“
Markús bætir við að það hafi
verið geggjað að upplifa þessa
menningu og fá nýtt sjónarhorn.
„Hvernig það var að lifa í svona
fátækt, þetta er allt öðruvísi en á
Íslandi. Fólk sem þekkir eþíópíska
tónlist hefur sagt að það sé smá
eþíópísk tilfinning í nokkrum
lögum okkar.“
Hversdagslífið á Íslandi veitir líka
innblástur og bræðrunum finnst
gaman að blanda því við hvers-
dagslífið í Eþíópíu. Markús segir
að munurinn á þessum tveimur
menningarheimum hafi gert þá
bræður að jafnréttissinnum. Þeir
þekkja af eigin reynslu hvað fátækt
í heiminum er alvarlegt vandamál
og hvað við höfum það í raun og
veru gott á Íslandi. „Við erum oft
að henda þannig pælingum út í kos-
mósið. Að fólk þurfi aðeins að opna
augun.“
Giftu sig ungir
Birkir nefnir sem dæmi lagið
Blindspot sem er af fyrstu plöt-
unni. „Lagið fjallar um að lífið
sé misgott hjá fólki. Við erum að
skjóta á það að sumir sem eru í
valdastöðu eru ekkert að pæla í
þeim sem eiga bágt.“ Markús bætir
við að lagið sé líka ádeila á það að
fólk taki bara eftir göllum í fari
annarra en líti ekki í eigin barm.
„Svo eru önnur lög sem koma
aðeins inn á þetta,“ segir Birkir. „En
við erum líka með lög sem fjalla
um að njóta þess að lifa í núinu og
hugsa ekki um það neikvæða.“
Það mætti líka segja að lagið
Woman sé ádeila á íslenska menn-
ingu að því leyti að lagið fjallar um
að strákarnir giftust báðir ungir
að aldri.
„Það er fyndið að segja frá því
að við giftumst báðir ungir,“ segir
Markús. „Ég gifti mig fyrir þremur
árum og Birkir fyrir einu ári. Fólki
SJÁVARÚTVEGURINN
Sérblað um sjávarútveginn kemur út miðvikudaginn
25. september í tilefni af Sjávarútvegssýningunni
í Laugardalshöll.
Enn eru nokkur pláss laus.
FERMINGARGJAFIR
Fimmtudaginn 15. mars gefur Fréttablaðið út
bráðsniðugt aukablað sem innheldur ótal
hugmyndir að fjölbreyttum fermingargjöfum.
Allir sem hafa fermst vita að dagurinn og ekki síst
gjarnar lifa í minningunni um aldur og ævi.
Tryggðu þér gott auglýsingapláss
í langmest lesna dagblaði landsins.
Upplýsingar hjá auglýsingadeild Fréttablaðsins í síma 512 5402
eða sendu okkur póst á netfangið serblod@frettabladid.is
N n ri upplýsi gar um blaðið veitir
Jóhann Waage í síma 550-5656
eða í netfanginu johannwa ge@frettabladid.is
finnst það oft skrýtið en okkur
finnst það allt í lagi og eðlilegt.“
Það er langt frá því að vera normið
á Íslandi að gifta sig ungur. „Við
erum kannski pínu að ögra með
laginu Woman,“ segir Birkir.
Markús segir að þeir hafi ekki lent
oft í því að vera gagnrýndir fyrir
þessa ákvörðun sína en slíkt hafi
þó komið fyrir. „Lagið var okkar
leið til að segja fólki að gera það
sem það vill í lífinu. Maður á að
hlusta á eigin tilfinningar og gera
það sem gerir mann hamingju-
saman.“
Af hverju ekki að
skella í hjónaband?
Bæði Birkir og Magnús segja að
hjónaböndin séu farsæl og allir
hamingjusamir. Þeir séu þó ekki að
reyna að segja að allir ættu endi-
lega að gifta sig, fólk eigi bara að
gera það sem hentar því. Aðspurðir
af hverju þeir ákváðu að gifta sig
spyr Birkir á móti hvort það byrji
ekki bara eins og öll hjónabönd.
„Á einhverjum tímapunkti fattar
maður að við erum hvort sem er að
fara að vera saman alla okkar ævi,
eigum við ekki bara að skella í eitt
hjónaband og lifa þannig?“
Markús og Birkir leggja mikið
upp úr því að vera með flotta tón-
leika með litum og hljóðfærum.
„Við fáum alltaf með okkur einhver
blásturshljóðfæri, oftast saxófón
eða trompet. Á stærri tónleikum
reynum við að vera með flott
sviðsljós og myndbandslist í bak-
grunninum,“ segir Birkir. Markús
er að læra grafíska hönnun í
Listaháskólanum og hefur búið til
myndbandslist sem breytist eftir
tónlistinni á tónleikunum. „Alltaf
þegar við gefum út lag gerum við
einhverja grafík við lagið. Við
höfum gert það frá upphafi og
síðan komið þessari grafík á tón-
leikana með einhvers konar lifandi
listaverki.“
Birkir útskýrir nánar að þótt
grafíkin sé undirbúin fyrirfram
„hlusti“ hún á tónlistina á tónleik-
unum og breytist eftir henni. „Ef
einhver myndi öskra rosalega hátt
úr salnum gæti grafíkin breyst.“
Strákarnir ætla að halda áfram
að semja og spila tónlist svo lengi
sem þeir hafa gaman af því. „Þetta
er enn þá gaman þannig að stefnan
er allavega ekkert að hætta.“
4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 1 . S E P T E M B E R 2 0 1 9 L AU G A R DAG U R
2
1
-0
9
-2
0
1
9
0
5
:2
5
F
B
0
9
6
s
_
P
0
7
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
6
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
D
6
-4
B
6
4
2
3
D
6
-4
A
2
8
2
3
D
6
-4
8
E
C
2
3
D
6
-4
7
B
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
9
6
s
_
2
0
_
9
_
2
0
1
9
C
M
Y
K