Fréttablaðið - 21.09.2019, Side 37

Fréttablaðið - 21.09.2019, Side 37
Ísafjarðarbær - sviðsstjóri Í sveitarfélaginu búa tæplega 4000 íbúar en Ísafjarðarbær varð til þann 1. júní 1996 við sameiningu sex sveitarfélaga. Bæjarfélagið er víðfeðmt og nær allt frá Arnarfirði að sunnanverðu að Geirólfsnúpi á Hornströndum. Byggðarkjarnar sveitarfélagsins eru fimm: Flateyri, Hnífsdalur, Ísafjörður, Suðureyri og Þingeyri. Ísafjarðarbær er skemmtilegur og litríkur bær með fjölbreytt menningarlíf. Bærinn hefur upp á margt að bjóða; öfluga og framsækna skóla, fjölbreytt íþrótta- og tómstundastarf, blómlegt tónlistarlíf, góða þjónustu og verslanir, eitt besta skíðasvæði landsins og endalausa möguleika til að njóta einstakrar náttúru svæðisins. Nánari upplýsingar um sveitarfélagið má finna á heimasíðu þess www.isafjordur.is Nánari upplýsingar veita Guðmundur Gunnarsson bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar (gudmundur@isafjordur.is) í síma 450-8000 og Ari Eyberg (ari@intellecta.is) í síma 511-1225. Umsóknarfrestur er til og með 23. september 2019. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og henni þarf að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf. Umsókn getur gilt í 6 mánuði. Menntunar- og hæfniskröfur:Helstu viðfangsefni og ábyrgð: • Ábyrgð á þjónustu, rekstri og starfsmannamálum sviðsins • Ábyrgð og umsjón með umhverfis-, skipulags- og byggingarmálum • Framkvæmdastjórn fyrir Fasteignir Ísafjarðarbæjar • Ábyrgð á verklegum framkvæmdum á vegum sveitarfélagsins og opnum svæðum í eigu þess • Ábyrgð á útboðum, gerð útboðsgagna og verksamninga vegna framkvæmda • Umsjón með gerð fjárhagsáætlana og kostnaðareftirliti Intellecta, Síðumúli 5, 108 Reykjavík, sími 511 1225. Ísafjarðarbær auglýsir laust til umsóknar 100% starf sviðsstjóra umhverfis- og eignasviðs. Meginhlutverk umhverfis- og eignasviðs er að fara með skipulags- og byggingarmál sveitarfélagsins, fara með alla eignaumsjón og rekstur hita-, vatns- og fráveitu. Sviðsstjóri ber jafnframt ábyrgð á rekstri Fasteigna Ísafjarðarbæjar ehf. sem á ríflega 100 íbúðir til útleigu. Leitað er að öflugum og metnaðarfullum einstaklingi í starfið. Sviðsstjóri ber ábyrgð gagnvart bæjarstjóra í öllum störfum sínum og ákvörðunum. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1. nóvember. Áhugasamir einstaklingar, af öllum kynjum, eru hvattir til að sækja um. • Meistarapróf á sviði verk- eða tæknigreina er æskilegt • Önnur háskólamenntun sem nýtist í starfinu er kostur • Stjórnunarreynsla, leiðtoga- og stjórnunarhæfni • Reynsla og þekking á gerð kostnaðaráætlana, fjárhagsáætlana og samninga • Góð hæfni í mannlegum samskiptum og sveigjanleiki • Frumkvæði og metnaður • Góð skipulagshæfni og nákvæmni í vinnubrögðum • Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu er æskileg • Góð hæfni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku, önnur tungumálakunnátta er kostur Intellecta ehf. Síðumúla 5 108 Reykjavík 511 1225 intellecta.is Intellecta er sjálfstætt þekkingarfyrirtæki stofnað árið 2000. Við vinnum með stjórnendum við að auka árangur, bæta rekstur og efla stjórnun. Ráðgjafar Intellecta hafa sterkan faglegan bakgrunn og víðtæka alþjóðlega reynslu. Þennan grunn notum við í samvinnu við viðskiptavini til að móta hugmyndir sem skipta máli og í innleiðingu lausna sem skila árangri. Árangur fyrirtækja ræðst af þekkingu, getu og reynslu starfsmanna. Hver einstök ráðning er mikilvæg fjárfesting og er hagur bæði fyrirtækis og viðkomandi einstaklings að vel takist til. Hafðu samband við okkur og sjáðu hvað við getum gert fyrir þig. RÁÐNINGAR 2 1 -0 9 -2 0 1 9 0 5 :2 5 F B 0 9 6 s _ P 0 6 1 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 6 0 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 3 D 6 -9 5 7 4 2 3 D 6 -9 4 3 8 2 3 D 6 -9 2 F C 2 3 D 6 -9 1 C 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 9 6 s _ 2 0 _ 9 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.