Fréttablaðið - 21.09.2019, Qupperneq 65
Fjórði hver einstaklingur sem greinist er eldri en 65 ára. Þegar fólk fær flogaveiki á efri
árum er hún oft afleiðing blóð-
tappa í heila, heilablæðingar, eða
annarra sjúkdóma í heilanum sem
hafa aukist þar sem fólk lifir lengur
en áður.
Flogaveiki er sjúkdómur sem
birtist í ósjálfráðum, endurteknum
flogum, sama eðlis – með eða án
áhrifa á meðvitund. Flogin hefjast
sem afleiðing af skammvinnri
truflun í stórum eða litlum hluta
heilans. Flogaköst eru mismunandi
frá einum til annars og sama
manneskja getur haft fleiri en eina
tegund floga.
Flogaveiki er meðhöndlanleg
Flogaveiki á að vera meðhöndluð
af sérfræðingi í taugasjúkdómum.
Hjá flestum sjúklingum er hægt að
koma í veg fyrir flogin með hjálp
lyfja.
Það er eðlilegt að vera áhyggju-
fullur, þegar maður hefur greinst
með flogaveiki. Allt í einu missir
maður stjórn á líkama sínum –
annaðhvort alveg eða að hluta til.
„Jafnvel þótt flogið standi yfir
í fáar mínútur og maður skaðist
ekki er það óþægilegt. Óttinn við
það hvenær næsta flogakast kemur
getur orðið til þess að þú freistist
til að hætta þeim athöfnum sem
þú hefur tekið þátt í. Þú kærir þig
kannski ekki um að aðrir sjái flogin
eða þú vilt ekki valda erfiðleikum.
Það er mikilvægt að þú látir ekki
undan lönguninni til að breyta lífi
þínu heldur haldir áfram að lifa,
eins og vant er,“ segir Fríða Braga-
dóttir, framkvæmdastjóri LAUF –
félags flogaveikra. „Reynslan sýnir
að maður sem lifir eðlilegu og virku
lífi getur á vissan hátt unnið gegn
flogum. Að sjálfsögðu þarf valið á
athöfnum að vera aðlagað flog-
unum og því hve oft þú færð flog.
Til dæmis skalt þú ekki fara í vatn,
nema að vera með einhverjum sem
veit að þú ert með flogaveiki og
getur hjálpað þér ef þú færð flog.“
LAUF – félag flogaveikra býður
upp á viðtöl hjá fjölskylduráðgjafa
sem getur hjálpað einstaklingnum
með flogaveiki og aðstandendum
að aðlagast nýjum aðstæðum, ráð-
gjafinn veitir einnig aðstoð við að
sækja um stuðning og aðstoð frá
hinu opinbera.
LAUF – félag flogaveikra, Hátúni 10,
sími: 551-4570, lauf@vortex.is
Eldra fólk og flogaveiki
Um það bil 3.000 Íslendingar eru með flogaveiki, á hverju
ári fá um 120 Íslendingar þessa sjúkdómsgreiningu.
Fríða Braga-
dóttir segir
flogaveiki al-
genga hjá eldra
fólki.
FRÉTTABLAÐIÐ/
SIGTRYGGUR ARI
Ragnheiður Björnsdóttir, hjúkrunarfræðingur og framkvæmdastjóri Sinnum,
segir fyrirtækið hafa unnið að
því síðustu ellefu ár að byggja
upp fjölþætta velferðarþjónustu.
Stefna Sinnum er að veita ein-
staklingsmiðaða, persónulega og
sveigjanlega þjónustu til lengri eða
skemmri tíma, allt eftir hentug-
leika.
Umfang Sinnum hefur vaxið
jafnt og þétt á undanförnum árum.
„Við erum í samstarfi við fjölmörg
sveitarfélög og einstaklinga og eru
þjónustunotendur í kringum 150
talsins. Við finnum fyrir auknum
vilja meðal viðskiptavina til að
hafa val um einstaklinga sem veita
aðstoðina og tímasetninguna
sem þjónustan fer fram á, komið
er til móts við þær væntingar.
Eftirspurnum um þjónustu líkt
og öryggis- og næringarinnlit og
aðstoð við böðun hefur fjölgað
mikið hjá okkur,“ segir Ragn-
heiður.
„Hluti þjónustunotenda Sinnum
fullnýtir þjónustuna sem þeir eiga
rétt á hjá sínu sveitarfélagi og auka
lífsgæði sín svo enn meira með því
að fá viðbótarþjónustu frá Sinnum
sem þeir eða aðstandendur greiða
fyrir. Okkar markmið snýst um að
búa einstaklingnum og fjölskyldu
hans umgjörð sem veitir aukið
öryggi í eigin búsetu. Um leið
hefur einstaklingurinn aukið val
og/eða frelsi, og getur sjálfur verið
virkari þátttakandi í samfélaginu.
Í því geta falist mikil lífsgæði,“
bætir hún við.
Mannauðs- og gæðamál eru
Ragnheiði hugleikin og segir hún
fyrirtækið á undanförnum árum
hafa gengið í gegnum mikil-
vægt þróunar- og umbótastarf.
„Það hefur skilað sér í bættri
þjónustu. Embætti landlæknis
gerði úttekt á gæðum og öryggi
þjónustu Sinnum og er skýrslan
aðgengileg á vef embættisins og á
heimasíðu Sinnum. Úttektin tók
meðal annars til atriða sem varða
stefnu, þjónustumál, gæði, öryggi,
skráningu, meðhöndlun frávika
og kvartana, mannauðsmál og
starfsumhverfi.
Við búum að því að hafa öflugan
hóp starfsfólks sem leggur mikið
upp úr fagmennsku og sveigjan-
leika. Teymið okkar er fjölmennt
og vel þjálfað svo almennt er hægt
að bregðast hratt og örugglega
við þjónustubeiðnum sem berast
til okkar. Hjá fyrirtækinu starfa
hjúkrunarfræðingar, félagsráð-
gjafar, þroskaþjálfar, sjúkraliðar,
félagsliðar og almennt starfsfólk
sem býr yfir dýrmætri reynslu.
Mikil áhersla er lögð á þjálfun
starfsmanna hjá Sinnum og sækja
þeir ýmiss konar námskeið og
fræðsluerindi líkt og skyndihjálp-
arnámskeið, námskeið í líkams-
beitingu og í sýkingarvörnum. Í
verkefnum sem eru sérstaklega
faglega krefjandi er meiri tími
lagður í undirbúning svo þau, líkt
og önnur okkar verkefni, standist
gæðakröfur fyrirtækisins. Teymið
fær í þeim tilvikum sérhæfðari
fræðslu og kennslu á tækjabúnað í
samvinnu við fagaðila. Umönnun-
araðilar einstaklinga í öndunarvél
sækja regluleg námskeið í Hermi-
setri LSH þar sem fram fer bókleg
og verkleg þjálfun.
Við hjá Sinnum finnum í
auknum mæli fyrir breyttum
kröfum um þjónustu sem koma
meðal annars til vegna breyttrar
aldurssamsetningar þjóðarinnar.
Þær áskoranir sem blasa við í dag
og á næstu árum eru þess vegna
mjög stórar og kalla á nýja hugsun
í stefnu og framkvæmd velferðar-
þjónustu. Svo hægt sé að koma til
móts við þessar áskoranir þarf að
eiga sér stað hugarfarsbreyting
og efling samstarfs á milli ríkis,
sveitarfélaga, félags- og hagsmuna-
samtaka og fyrirtækja í velferðar-
þjónustu.“
Einstaklingsmiðuð
þjónusta hjá Sinnum
Sinnum heimaþjónusta veitir alhliða þjónustu fyrir þá
sem þurfa á aðstoð að halda vegna aldurs, fötlunar,
heilsubrests eða annarra persónulegra aðstæðna.
Ragnheiður Björnsdóttir er hjúkrunarfræðingur og framkvæmdastjóri
Sinnum. Hún segir margar áskoranir tengjast starfsemi Sinnum.
ÞURR AUGU?
Rakagjöf er ekki
fullnægjandi lausn
Einstök sam-
setning af
frumuvörn og
smurningu fyrir
augun
Inniheldur
trehalósa
úr náttúrunni
Án rotvarnarefna
Tvöföld virkni - sex sinnum lengri ending
Fæst í öllum helstu apótekum
KYNNINGARBLAÐ 7 L AU G A R DAG U R 2 1 . S E P T E M B E R 2 0 1 9 EFRI ÁRIN
2
1
-0
9
-2
0
1
9
0
5
:2
5
F
B
0
9
6
s
_
P
0
8
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
6
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
D
6
-3
7
A
4
2
3
D
6
-3
6
6
8
2
3
D
6
-3
5
2
C
2
3
D
6
-3
3
F
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
9
6
s
_
2
0
_
9
_
2
0
1
9
C
M
Y
K