Morgunblaðið - 07.06.2008, Qupperneq 26
Eftir Lilju Þorsteinsdóttur
liljath@mbl.is
ÞAÐ voru kátir krakkar sem fylgd-
ust með frumsýningu Brúðubílsins
fyrir þetta sumarið í Árbæjarsafni í
gær. Víða sást bros á vör og margir
voru ófeimnir að láta í sér heyra –
taka þátt í leiknum af áhorf-
endasvæðinu.
Helga Steffensen sem hefur
stjórnað leikriti brúðubílsins í 28 ár
segir mikið vera að gerast hjá brúð-
unum í sumar.
„Við setjum á hverju ári upp tvö
ný leikrit og í júní sýnum við leikrit
sem heitir Hókus-Pókus. Það er
með lítilli söngóperettu auk þess
sem Bjartur bóndi og dýrin hans
syngja með krökkunum. Það verð-
ur líka fræðsla fyrir börnin um
fyrstu víkingana á Íslandi og
Hrafna-Flóka sem skírði landið
okkar.“
Helga segir að vinsælustu brúð-
urnar, Lilli og Dúskur, verði að
sjálfsögðu með í för þó að fjölda-
margar nýjar brúður séu líka í sýn-
ingunni. „Lilli er jafn gamall
Brúðubílnum, en er samt alltaf
fimm ára. Úlfurinn Úlli og Blá-
refurinn eru líka vinsælir hjá börn-
unum og krakkarnir kenna þeim að
hegða sér almennilega,“ segir
Helga hlæjandi.
Nýbúið er að skreyta bílinn og
skartar hann í sumar myndum af
helstu persónum Brúðubílsins.
„Brúður höfða mikið til barna og ég
hef reynt að gera þetta skemmti-
legt með litagleði og fræðslu,“ seg-
ir Helga að lokum.
Morgunblaðið/G.Rúnar
Morgunblaðið/G.Rúnar
Bjartur bóndi
syngur fyrir börnin
Morgunblaðið/G.Rúnar
Gamlir vinir og nýir Þau fylgdust
hugfanginn með persónum Brúðu-
bílsins, börnin sem mættu á frum-
sýningu söngóperettunnar Hókus
Pókus í́ Árbæjarsafni í gær.
Dagskrá sumarsins má finna á
heimasíðunni www.brudubillinn.is
daglegt líf
26 LAUGARDAGUR 7. JÚNÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ
Að skjálftinn hafi riðið yfir á mildumsumardegi en ekki í vondu veðri aðvetrarnóttu, fyrir það megum viðþakka. Ég vil ekki hugsa þá hugsun
til enda, hvernig ástandið hefði orðið þá,“ segir
Jóhanna Róbertsdóttir, svæðisfulltrúi Rauða
krossins á Suðurlandi og Suðurnesjum, sem
staðið hefur í ströngu síðustu daga með sínu
fólki vegna Suðurlandsskjálftans og afleiðinga
hans.
„Það er búið að vera ómetanlegt hve allir
brugðust skjótt og vel við – fjöldahjálparstjórar
deilda Rauða krossins og aðrir sjálfboðaliðar,
björgunarsveitir, lögregla, prestar, starfsfólk
skólanna og aðrir sem við höfum átt samstarf
við. Það veitir einnig mikið öryggi að finna hve
allir viðbragðsaðilar eru samtaka í aðgerðum
sem þessum. Það er ómetanlegt,“ segir Jóhanna
og vill þakka öllum þeim sem lagt hafa Rauða
krossinum lið síðan skjálftinn reið yfir.
Jóhann er fædd og uppalin í Vesturbænum í
Reykjavík, en flutti austur fyrir fjall um miðjan
áttunda áratuginn og hefur átt þar heima síðan
– utan nokkur ár sem hún var búsett erlendis.
Hún er gift Birni B. Jónssyni, framkvæmda-
stjóra Suðurlandsskóla, og eiga þau tvo syni,
sem báðir eru kvæntir, og tvö barnabörn.
Byrjaði að selja merki
„Kannski hef ég haft áhuga á Rauða kross-
inum alveg frá því ég var barn, enda ekki gömul
þegar ég vann fyrst fyrir félagið með því að
selja merki Rauða krossins. Ég þurfti því ekki
að hugsa mig lengi um þegar ég átti þess kost
að starfa sem svæðisfulltrúi hér, enda þekki ég
vel til á svæðinu“, sagði Jóhanna sem hefur um-
sjón með svæði sem nær frá Reykjanesi að
Kirkjubæjarklaustri, að Vestmannaeyjum með-
töldum. Skrifstofa Jóhönnu er í Hveragerði, en
hún er mikið á ferðinni milli staða á svæðinu,
enda kemur hún að fræðslu-, kynningarmálum
og neyðarvörnum, auk þess að vera tengiliður
landsskrifstofu Rauða krossins.
„Þetta er fjölbreytt starf og skemmtilegt og
sjaldnast eru tveir dagar eins. Hér hef ég
kynnst mörgu frábæru fólki sem leggur á sig
mikið og óeigingjarnt starf“.
Strax eftir að jarðskjálftinn reið yfir á Suður-
landi voru opnaðar fjöldahjálparstöðvar á
skjálftasvæðinu. En Rauði kross Íslands tók
formlega að sér það hlutverk að sinna fjölda-
hjálp og félagslegu hjálparstarfi með samningi
við Almannavarnir ríkisins sem gerður var árið
1974 í kjölfar Vestmannaeyjagossins.
„Eftir skjálftana í síðustu viku komu fjöl-
margir sjálfboðaliðar Rauða krossins til starfa,
sem og aðrir sem réttu okkur hjálparhönd.
Fljótlega kom í ljós að þörf var á meiri
mannafla í fjöldahjálparstöðvarnar. Við fengum
því til liðs við okkur þjálfaða sjálfboðaliða höfuð-
borgarsvæðinu, Suðurnesjum og víðar. Strax
fyrstu klukkutímana fékk fólk félagslegan
stuðning, mat og húsaskjól, auk þess sem
nokkrir gistu í fjöldahjálparstöðvunum fyrstu
næturnar. Síðan tók við sálrænn stuðningur
ásamt áfallahjálp, sem mest áhersla hefur verið
lögð á undanfarna daga, enda þörfin mikil,“
sagði Jóhanna.
Strax á laugardagsmorgninum voru opnaðar
þjónustumiðstöðvar vegna jarðskjálftanna,
bæði á Selfossi og í Hveragerði, sem þjóna öll-
um íbúum á skjálftasvæðinu. Fljótlega eftir það
var fjöldahjálparstöðvunum lokað. Sveitarfélög-
in, Rauði krossinn og björgunarsveitirnar hafa
verið með sína fulltrúa í þjónustumiðstöðvun-
um, en margir aðrir koma líka að rekstri þeirra.
Gott að geta komið á einn stað
Íbúar á skjálftasvæðinu geta leitað til þjón-
ustumiðstöðvarinnar eftir hvers kyns upplýs-
ingum og aðstoð í tengslum við afleiðingar
skjálftans, og hafa margir nýtt sér það. „Það er
frábært að fólk skuli nú geta komið á einn stað
með erindi sín, í stað þess að þurfa að fara á
milli margra staða. Nóg er álagið samt.“ Hún
segir fólk eðlilega hafa verið mjög skelkað, sér-
staklega í upphafi. Ástandið nú sé þó aðeins far-
ið að róast. „Viðbrögð við áfalli eins og þessu
eru afar mismunandi, en börn bregðast til dæm-
is öðruvísi við en fullorðnir. Ég vil hvetja fólk til
að fylgjast með börnum sínum og nýta sér þá
fræðslu sem hægt er að fá varðandi börn og
áföll. Lagist ástandið síðan ekki þá á að leita eft-
ir aðstoð.“ | mhh@selfoss.is
Í nógu að snúast Jóhanna Róbertsdóttir, svæðisfulltrúi Rauða krossins á Suðurlandi og Suður-
nesjum, hefur haft í nógu að snúast með fólki sínu vegna Suðurlandsskjálftans 29. maí. Hér er hún
ásamt Kristínu Chadwick sem hefur verið öflugur sjálfboðaliði Rauða krossins síðustu daga.
Áfallið hefur þjapp-
að fólkinu saman
„Það er eftirtektarvert hve þetta áfall hefur þjappað fólki saman, og
æðruleysi er mikið,“ segir Jóhanna Róbertsdóttir, svæðisfulltrúi
Rauða krossins, sem hefur staðið í ströngu undanfarna daga