Fréttablaðið - 22.10.2019, Síða 20
Stjörnurnar ná til
milljóna í gegnum
samfélagsmiðla og þær
eru miklir áhrifavaldar.
Þessir fáu eru með sam-
anlagt um 170 milljónir
fylgjendur á Instagram.
Elín
Albertsdóttir
elin@frettabladid.is
Norskur prófessor, Stefan Gössling, hefur safnað að sér upplýsingum um ferðalög
fræga fólksins og reiknað út hversu
mikið það losar út í andrúmsloftið.
Upplýsingar um ferðirnar fékk
hann í gegnum samfélagsmiðla.
Sá sem flaug mest er Bill Gates en
ferðir hans losuðu um 1.600 tonn
koltvísýrings (CO2). París Hilton
og Jennifer Lopez komu þar á eftir
með 1.260 og 1.050 tonn. Sú sem
minnst ferðaðist í f lugi var leik-
konan Emma Watson með 15 tonn
koltvísýrings (CO2). Venjulega
fólkið er talið losa um 100 kg. Það
er frekar lítill hópur manna sem
keyrir upp losunina með orku-
frekum lífsstíl, segir prófessorinn.
Einkaþotur fræga fólksins eru
hluti af þessum lífsstíl. Aðrir sem
nefndir voru eru Karl Lagerfeld,
Mark Zuckerberg og Oprah Win-
frey auk nokkurra stjórnmála-
manna og viðskiptajöfra.
Fræga og ríka fólkið hefur
mikil áhrif á almenning og lífsstíl
hans. Stjörnurnar ná til milljóna
í gegnum samfélagsmiðla og þær
eru miklir áhrifavaldar. Fræga
fólkið sem Stefan nefnir í grein
sinni er með samanlagt um 170
milljónir fylgjenda á Instagram.
Hann er efins um að fræga fólkið
taki þátt í baráttunni gegn hlýnun
jarðar. Þótt það segist vilja breyta
heiminum mun það samt halda
Fræga fólkið flýgur mest
Ríka og fræga fólki í heiminum er orkufrekt þegar kemur að flugi. Lífsstíll þessa fólks felur í sér
margvísleg ferðalög á einkaþotum sem hafa áhrif á loftslagið. Sumir eru nánast alltaf í loftinu.
Bill Gates heldur erindi og fyrirlestra um allan heim. Hann flýgur á milli
staða og er alltaf á ferðinni. Nýlega var hann í Kína. NORDICPHOTOS/GETTY
Jennifer Lopez
flýgur mikið
í einkaþotu
vegna starfa
sinna. Hún
er bæði með
tónleika víða
og leikur í kvik-
myndum.
Spilliefni, dekk, rafgeymir, olia og eldsneyti eru fjarlægð og þeim fargað. Gamli bíllinn er pressaður í böggul sem er sendur út til frekari endurvinnslu.
Þegar kemur að því að farga bílum getur Hringrás séð um ferlið frá upphafi til enda.
Nýlega var ráðist í að gera nýja
síðu, hringras.is/bilar, þar sem við-
skiptavinir geta fyllt út skilavott-
orð í gegnum vefsíðuna og undir-
ritað með rafrænum skilríkjum.
„Markmið okkar er að færa
okkur nær nútíma kröfum neyt-
enda og bæta þjónustu við við-
skiptavini með því að spara þeim
sporin,“ segir Daði Jóhannesson,
framkvæmdastjóri Hringrásar,
sem er eitt elsta endurvinnslu-
fyrirtæki landsins og hefur verið
starfrækt í ein 60 ár.
„Fyrir þá sem þess óska er nú
hægt að undirrita skilavottorð
með rafrænum hætti og losa sig
þannig við ónýtan bíl án þess að
fara á marga staði. Það sparar bæði
tíma og fyrirhöfn,“ segir Daði og
hjá Hringrás er þetta einfalt:
1. Bíl er komið á móttökustöð
eða sóttur af þjónustuaðilum
Hringrásar, að kostnaðarlausu
innan höfuðborgarsvæðisins og á
Akureyri, en annars gegn sam-
komulagi.
2. Skilavottorð er fyllt út og
bíllinn afskráður.
3. Eigandi bílsins fær greiddar
20.000 krónur inn á reikninginn
sinn.
Rafræn undirritun
skilavottorðs
„Með því að nýta sér rafræna
Einfalt að farga ónýtum bíl
Hringrás er stærsti móttakandi bíla til förgunar. Fyrirtækið býður upp á rafræna undirskrift
skilavottorða á nýrri vefsíðu til að spara viðskiptavinum sínum sporin, tíma og fyrirhöfn.
afskráningu einföldum við áður
flókið ferli þar sem eigandi þurfti
að vera á staðnum þegar bíllinn
var sóttur, afhenda pappíra og
koma númeraplötum á rétta staði.
Með nýju fyrirkomulagi er þetta
auðveldara,“ útskýrir Daði.
n Viðkomandi þarf að vera
skráður eigandi bílsins
n Innskráning með rafrænum
skilríkjum
n Bílnúmer látin fylgja bílnum, ef
þau eru ekki þegar innlögð
n Hringrás fargar bílnum
Hvað verður um
gamla bílinn?
„Margir velta fyrir sér hvað verður
um gamla bílinn. Hringrás selur
ekki varahluti úr bílum enda
störfum við sem endurvinnslu-
fyrirtæki,“ upplýsir Daði.
„Eftir að skilavottorð hefur
verið fyllt út og bíllinn er kominn
til Hringrásar fer hann í gegnum
ferli þar sem öll spilliefni, svo sem
dekk, rafgeymar, vökvar, olíur og
eldsneyti eru fjarlægð og send til
endurvinnslu eða förgunar sam-
kvæmt ströngustu kröfum um
umhverfisvernd. Bíllinn er svo
pressaður í böggul sem sendur er
til frekari endurvinnslu erlendis,”
segir Daði.
Endurvinnsla og umhverfið
Samstarfsaðilar Hringrásar í
Evrópu sjá um að endurvinna alla
málma og plastefni með bestu
mögulegu tækni. Endurvinnslu-
hlutfall efna úr bílum sem fargað
er hjá Hringrás er með því hæsta
sem gerist í heiminum.
Viltu farga bíl?
Til að farga bíl ferðu inn á vef-
síðuna hringras.is/bilar eða
hefur samband við starfsfólk
okkar í síma: 550 1900, netfang:
afgreidsla@hringras.is.
Móttökustöðvar Hringrásar eru að
Klettagörðum 9, Reykjavík, og að
Ægisnesi 1, Akureyri.
áfram sínum orkufreka lífsstíl.
Sjálfur hefur hann lengi starfað við
loftslagsmál og segir að umræðan
hafi breyst undanfarið. Hann
þakkar Gretu Thunberg fyrir að
vekja máls á umhverfismálum
og að setja af stað mótmæli undir
slagorðinu Föstudagar fyrir fram-
tíðina en þau séu mjög góður
þrýstingur á stjórnmálamenn.
Það var til dæmis eftir því tekið
þegar John Kerry, fyrrverandi
utanríkisráðherra og forsetafram-
bjóðandi í Bandaríkjunum, tók á
móti verðlaunum fyrir baráttu í
umhverfismálum á Arctic Circle
ráðstefnunni í Hörpu nýlega, að
hann kom fljúgandi á einkaþotu.
Þótti mörgum það skjóta skökku
við. Greta Thunberg ferðast um
víða veröld en eingöngu á skipum
og í lestum.
Stefan bendir á að ungt fólk í
dag sé farið að meta hvort f lug sé
í raun nauðsynlegt. Ungmennin
skoða flugið frá því að vera mjög
Nú er hægt að losa
sig við ónýtan bíl
án þess að þurfa að fara á
marga staði. Það sparar
bæði tíma og fyrirhöfn.
mikilvægt yfir í algjöran óþarfa.
Umræðan hefur aukist mikið um
flugferðir, ekki bara hjá fáum hug-
sjónamönnum. Hin unga Greta
hefur skapað mikla umræðu langt
út fyrir heimaland sitt og hefur
áhrif á skoðanir ungs fólks. Þess
ber þó að geta að engin þjóð í Evr-
ópu er eins háð flugi og Íslending-
ar. Aðrar þjóðir geta auðveldlega
ferðast með lestum.
Grein Stefans heitir Celebrities,
air travel, and social norms.
4 KYNNINGARBLAÐ 2 2 . O K TÓ B E R 2 0 1 9 Þ R I ÐJ U DAG U RENDURVINNSLA
2
2
-1
0
-2
0
1
9
0
5
:0
9
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
4
0
E
-0
2
9
8
2
4
0
E
-0
1
5
C
2
4
0
E
-0
0
2
0
2
4
0
D
-F
E
E
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
4
0
s
_
2
1
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K