Úti - 15.12.1933, Blaðsíða 32
30
ÚTI
yrði form. fjel., en með honum ynnu, að
stjórn þess, þáverandi sveitaf., en það
voru þeir Hindrik W, Ágústsson (er tók
við 1. sv. er Sigurður bróðir lians fór ut-
an 1926), Jón Oddgeir foringi 2. sv. og
Jón Þórðarson foringi 3. sv. Þetta var í
fyrsta sinni i æfi fjelagsins að slík stjórn
var mynduð. Síðan hefir svipað fyrir-
komulag verið haft á stjórn fjel. og á-
valt gefist vel.
Stjórn þessi samdi nokkru síðar reglu-
gerð fyrir fjelagið, sem um haustið var
prentuð í bæklingi, þar sem einnig birtist
ágrip af sögu fjelagsins. Reglugerð þessi
er ennþá notuð. Hingað til höfðu Vær-
ingjar einkum stundað ferðalög og úti-
legur á sumruin, en þennan vetur vakn-
að mikill áhugi hjá fjelagsmönnum á
því að nota veturna meira en verið hafði,
til ferðalaga og þá einkum til skíða-
ferða en einnig göngu og sleðaferða.
Margar slíkar ferðir voru farnar þennan
vetur og hefir ávalt veið svo siðan, að
Væringjar hafa notað hvert færi, sem
gefst á veturna til að komast á skíði.
1. sumardag 1927 voru þessir drengir út-
nefndir til flokksf.: Ólafur S. Nielsen,
Fr. Bertelsen, Tryggvi Kristjánsson og
Jean Claesen.
llið fyrsta foreldramót, sem haldið
liefir verið, hjeldu Væringjar í ágústmán-
uði þetta ár, við skálann í Lækjarbotn-
um. Sýndu þeir gestunum ýmsar skáta-
iþróttir og veittu þeim kaffi. Mótið fór
hið besta fram.
I byrjun ársins 1928, var eins og
venjulega haldin sameiginl. skemtun af
skátafjel. bæjarins. Síðan að skátafjel.
„Ernir“ voru stofnaðir 1924, hefir það
verið föst venja að skátafjel. (einnig
kvenskátarnir) hafa lialdið sameigin-
legar skemmtanir fyrir skáta og gesti
þeirra i samkomuhúsinu Iðnó í byrjun
hvers árs.
1. sumardag 1928 ^oru 15 ár liðin frá
.4. t7. Tuliniiis gefur Væringjum skjöld á fána
sinn 1. sumardag 1928.
stofnun Væringjafjel. Þann dag lijeldu
Væringjarnir mikla útisamkomu í garðin-
um við Hljómskálann. Við það tækifæri
gaf skátahöfðinginn A. V. Tulinius silfur-
skjöld á fánastöng fjelagsins. Form. fjel.
D. Sch. Thorsteinsson þakkaði gjöfina
með ræðu. Eftir það var gengið fylktu
liði um götur bæjarins. Þ. 23. apríl var
afmæli fjelagsins en minst með því að
lialdin var samkoma í Iðnó. Þangað var
hoðið stofnendum fjel. og fleirum.
Skemtiatriði voru mörg: sýningar, hljóð-
færasláttur og fl. Á þessai samkomu af-
henti A. V. Tulinius f. h. B. í. S. hr. D.
Sc. Thorsteinsson æðsta heiðursmerki
skáta silfurúlfinn — fyrir mörg og
merkileg störf í þágu skátafjelagsskap-
arins. Sjera Friðrik, stofnandi fjel. gat
því miður ekki komið á þennan fund, en
svohljóðandi skeyti barst frá honum
(sem lesið var upp á fundinum).
„Óska til hamingju með 15 árin. I dag
er afmælið eftir mánaðardegi. Heill og
hamingja á komandi árum. Gott starf,
góðan árangur, Guðs blessun.“
Alt þetta ár var starfað af kappi bæði
flokksæfingar, sameiginl. æfingar í leik-
fimissal barnaskólans og ferðalög. Sjer-
staklega var mikið unnið þetta ár við
jarðrækt, á landareign fjelagsins, í Lækj-
arbotnum. T. d. var megnið af landinu