Haustsöfnun til kristniboðsins (heiðingjatrúboðsins) - 15.06.1934, Blaðsíða 17

Haustsöfnun til kristniboðsins (heiðingjatrúboðsins) - 15.06.1934, Blaðsíða 17
Hinir líkþráu læknast Eftir M. E. Kem (Ritari allsherjarstjórnar S. D. A.) Múrsteinskofar við líkþrárnýlenduna í Malamulo. LÍKÞRÁ er lifandi dauði. En hún læknast nú, ef hún er tekin í tíma. Kristniboðar vorir í Indlandi, Afríku og Austurlöndum veita nú lækningu mörgum af þeim, er þjást af þessum hræðilega sjúkdómi. A síðast liðnu ári hafa líkþrár- deildir vorar í Malamulo, Nýassa- landi í Suðustur-Afríku útskrifað 11 læknaða sjúklinga. Formaður heil- brigðisráðs ríkisins var viðstaddur og lét í ljós ánægju sína yfir því, að þeir væru við góða heilsu, sem á und- anförnum árum hefðu útskrifazt sem læknaðir af holdsveiki. Fyrir þær gjafir, sem gefnar eru til þessa starfs, byggjum við nú múr- steinskofa handa hinum holdsveiku, í stað hinna gömlu óhollu torfkofa. Nál. 50 nýjum kofum hefur verið komið upp. Dr. Marcus skrifar: „Það mun að sjálfsögðu vekja ánægju að heyra um það, að hinir holdsveiku vinna sjálfir því nær ein- göngu að byggingu þessara kofa, og síðan við fórum að hafa það svona, er sambúðin milli sjúklinganna orðin miklu ánægjulegri en hún var áður og það hefur gengið fljótara með hinn líkamlega bata þeirra. Ég held að þeir hafi gott af vinnunni bæði líkamlega, andlega og siðferðislega.“ Kristniboðs-lækningastofa í Liberia. AF öllum þeim mörgu stöðum í Afríku þar sem hrópað er á þá hjálp, sem læknakristniboðið getur veitt, er enginn nauðstaddari en Liberia. I landi þar sem svo að segja engar framfarir eru, þar sem loftslagið er heitt og rakt, eru sjúkdómarnir og hjátrúin á háu stigi. í kristniboðsstöð vorri í Bassa, sem er 45 km. inni í landinu frá Grand Bassa, vinnur Helbig kristniboði mjög happasælt læknakristniboðsstarf í lítilli en snot- urri lækningastofu. Þar fá sjúklingar læknishjálp svo hundruðum skiptir í hverjum mánuði. Bls. 15

x

Haustsöfnun til kristniboðsins (heiðingjatrúboðsins)

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Haustsöfnun til kristniboðsins (heiðingjatrúboðsins)
https://timarit.is/publication/1405

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.