Haustsöfnun til kristniboðsins (heiðingjatrúboðsins) - 15.06.1935, Side 5
ógiftar konur. Samtals 20.568 manns.
Innfæddiu starfsmenn voru á sama
ári 10.493 og 3,614,154 safnaðarmeð-
limir og 8,342,378, sem ekki var búið
að taka inn í söfnuðinn, af þeim
voru einnig margir óskírðir. Þetta
verður til samans 11,967,025 prédik-
arar og meðlimir. Þetta er mikill
árangur; en óhætt mundi að þrefalda
þessa tölu ef með væru taldir þeir,
sem komizt hafa undir hin öflugu
áhrif kristniboðsstarfseminnar. Einn
mjög mikilvægur þáttur kristniboðs-
starfseminnar er skólastarfsemin. Arið
1925 voru 2.440,148 nemendur í hin-
um ýmsu skólum.
Sumar þeirra nýlendna og vernd-
arríkja í Afríku, sem komizt hafa á
hæzt menningarstig, eru orðin krist-
in að miklu leyti. I Nigeríu einni,
sem er mannflest af hinum brezku
nýlendum, eru nú yfir 700,000 krist-
inna manna. Madagaskar, eyjarnar í
suðurhluta Kyrrahafsins, Indíurnar í
Suður-Amerílcu, Meksikó ásamt mörg-
um öðrum hlutum heimsins, hafa
orðið fyrir stórfeldum áhrifum og
hlotið mikla hjálp fyrir ötulleik og
fórnfýsi hinna guðelskandi kristni-
boða.
En yfirlit yfir meðlimatöluna eina
skýrir ekki frá öllu. Hefði heiðingja-
kristniboðið ekki verið framkvæmt,
mundu stór héruð í Afríku, sem nú
meðtaka kristindóminn og hina vest-
rænu menningu, vera múhameðstrú-
ar. Ennfremur er það aðallega kristni-
boðsstarfseminni að þakka, að heft
hefur verið útbreiðsla ægilegra sjúk-
dóma og farsótta, sem við lá að
eyðilegði hinn innfædda þjóðstofn.
Fyrir einni öld síðan náði menn-
Efst: Aðalaðseturstaður Birma-kristniboðsins í Rangun, Birma. Til vinstri:
Innfæddir sjúklingar, sem bíða eftir því að fá læknishjálp hjá kristniboðs-
lækninum í norðurhluta Ambrim,á Nýju Hebridseyjunum. T. h.: Stahl kristni-
boði veitir sjúklingum læknishjálp við Amaxon-kristniboðsstöðina í Peru.
3