Haustsöfnun til kristniboðsins (heiðingjatrúboðsins) - 15.06.1935, Side 7
Til vinstri: Spitali vor í Ad-
dis Abeba. Neðri myndin:
Læknabústaðurinn við spít-
alann í Addis Abeba.
Yfirlit
yfir
Eftir
E. D. Dick, kristniboðsleiðtoga.
Hið afríkanska kristniboðssvæði,
sem heyrir til hinni norðurevrópísku
aðaldeild aðventkristniboðsins, mynd-
ar lengju, sem nær þvert yfir norð-
urhluta Mið-Afríku frá austri til vest-
urs. — Fyrir sunnan eyðimörkina
Sahara og fyrir norðan Belgísku
Kongó og Titanyka. Svæðið nær yfir
allar nýlendur á „Vesturströndinni“,
Frönsku Vestur-Afríku, Frönsku Kam-
erun fyrir norðan 10. breiddargráðu,
ensk-egfyska Súdan, Uganda, Kenia,
Somalíuland, Ethíópíu og Eritreu.
Á þessu stóra svæði býr meir en
helmingurinn af öllum íbúum Afríku.
Enda þótt sum héruðin á þessu svæði
hafi í mörg ár að nokkru leyti verið
undir áhrifum kristniboðsstarfseminn-
ar og menningarinnar, er það þó
naumast nema hið ytra, sem þessara
áhrifa gætir að nokkrum mun. Heið-
indómurinn í hinum mörgu myndum
sínum heldur þjóðinni enn í heljar-
greipum. Á víð og dreif um þetta
víðáttumikla svæði eru 32 kristni-
boðsstöðvar, sem reknar eru af kirkju-
félagi voru, og þessar stöðvar hver
um sig eru miðdepill heilbrigðisstarf-
semi, menntunarstarfs og boðunar
fagnaðarerindisins. Þessum kristni-
boðsstöðvum er stjórnað af 97 út-
lendum kristniboðum, sem hafa um-
sjón yfir 401 Afríkumanni, er vinna
að kristniboðsstarfi á mörgum stöð-
um víðsvegar á þessu svæði.
Á tveimur síðustu árum hef
eg heimsótt öll þessi kristniboðs-
svæði að undanteknum tveimur. Eg
hef því kynnst nákvæmlega þeim
miklu vandamálum, sem hinir trúu
starfsmenn standa andspænis; eg hef
líka séð undursamlega ávexti af starf-
inu á þessum svæðum. Mig langar
að segja lítið eitt frá því, sem eg
ð