Haustsöfnun til kristniboðsins (heiðingjatrúboðsins) - 15.06.1935, Side 12
Kristni-
boðslæknir-
inn að verki
Eftir L. A. Hansen.
Sé það eitt framar öðru, sem telja
má vott um sannan kristindóm, þá
hlýtur það að vera það, að leggja
krafta sína fram til hjálpar nauðstödd-
um —- að metta hina hungruðu,
klæða hina nöktu, hjúkra hinum
sjúku, og yfirleitt líkna þeim, sem
líða. Leitast hefur verið við að fram-
kvæma þessar biblíulegu fyrirskip-
anir í hinu daglega lífi. Evangelistar
vorir, 'læknar, hjúkrunarmenn, og
hj úkrunarkonur og aðrir meðlimir
hafa því lcngi bæði í ræðu og riti
barizt fyrir heilsusamlegum lifnaðar-
háttum og sannri bindindisstarfsemi
og haldið slíku fram sem þýðingar-
miklu atriði sannarlegs kristindóms.
Starfsemi við stofnanir.
Heilsuhæli og sjúkrahús, þar sem
hjúkrunarmenn og hjúkrunarkonur fá
menntun sína, lœkningastofur, þar
sem sjúkir fá læknishjálp, auk verk-
smiðja, sem framleiða heilnæmar
Bergmann læknir við Zauditu Mem-
orali spítalann í Addis Abeba.
fæðutegundir, og veitingahúsa, þar
sem búinn er til matur, sem fullnægir
heilbrigðiskröfunum, eru mikilvirkur
þáttur í heilbrigðisstarfsemi Aðvent-
ista og kristniboði í mörgum löndum.
Læknaskóli vor, sem er fyrsta flokks
menntastofnun fyrir læknanema, hef-
ur í inörg undanfarin ár sent frá sér
útlærða lækna, sem einkum hafa haft
það fyrir augum að verða hæfir til
að starfa sem læknar og kristniboð-
ar í heiðingjalöndunum. Þessi skóli
er í Kaliforníu. Vér höfum einnig
sérstaka stofnun, þar sem karlar og
konur fá kennslu í heilsusamlegri
matreiðslu. Vér höfum margar stofn-
anir, sem veita róttæka kennslu í
öllu því, sem lýtur að hjúkrunarstarfi,
þaðan koma árlega útlærðir hjúkr-
unarmenn og hjúkrunarkonur.
Engin þessara stofnana er rekin
með hagnað einnar einstakrar per-
sónu fyrir augum. Öllum ágóða af
10