Haustsöfnun til kristniboðsins (heiðingjatrúboðsins) - 15.06.1935, Qupperneq 17
Kirkja í Ipoti,
Nigaria. Hér sést
eitt af hinum
mörgu dæmum
um þá breytingu,
sem kristileg upp-
fræðsla hefur í
för með sér. Þessi
kirkja og skóli eru
í mjög heiðnu
þorpi, húsin eru
byggð af inniend-
um, kristnum
mönnum, sem
Jengi höfðu verið
fjötraðir af synd
og villu.
og verða að skríða á höndunum.
Sjúkdómarnir uppeta þá. Við höfum
fengið margar áskoranir um að koma
á fót skóla, en það getum við ekki
heldur, með því við höfum hvorki
skólahús né skólaáhöld.“ Uti í Nigaríu
búa 25 miljónir manna, er það meir
en sjötti hlutinn af íbiium Afríku.
Þar höfum vér aðeins tíu hvíta kristni-
boða, og eina hvíta kennslukonu,
handa hinum rnörgu miljónum stúlku-
barna.
Fyrir tveimur árum var í þessum
hluta starfssvæðisins fremur ískyggi-
legt útlit. Sumir kristniboða vorra
voru komnir á þá skoðun, að nær
ómögulegt væri að hafa nokkur áhrif
á fólkið. Nú er reynslan orðin allt
önnur. Frá fjarlægum og nálægum
stöðum koma beiðnir frá mönnum
og konum, sem hafa snúið sér til
Drottins og óska uppfræðslu. Frá
Gullströndinni koma fregnir um að
yfir 40 manneskjur hafi tekið kristna
trú fyrir starf eins leikmanns. Einn
af hinum innlendu evangelistum vor-
um heimsótti þennan stað og veitti
þeim frekari uppfræðslu, og nú eru
einnig margir aðrir, sem óska að fá
til sín kennara. A. J. Balogun prest-
ur, sem er leiðtogi safnaðarins í
Ibaden, bæ með yfir 250,000 íbúa,
sendir eftirfarandi tilmæli kristniboðs-
formanni vorum: „Meistari, þú veizt
að eg hef byrjað starfsemi á þessum
nýja stað með miklum erfiðleikum.
Fólkið langar að þekkja kenningar-
atriði þess eina kirkjufélags, sem
virðist vita hvað heimurinn á í vænd-
um í náinni framtíð. Væri ekki unnt
að senda þeim kennara með mjög
litlum launum? Fólkið þráir þennan
boðskap.“ Vér verðum að svara og
segja eins og er, að vér höfum ekki
efni á að senda neinn kennara. Vér
höfum ekki peninga til að launa með
einn einasta starfsmann í viðbót við
þá, sem vér höfum þegar ráðið. „En,
meistari“, bætti hann við, „þetta er
mjög áríðandi, og fólkið hefur beðið
15