Haustsöfnun til kristniboðsins (heiðingjatrúboðsins) - 15.06.1935, Blaðsíða 22
Heiðindómur og villa.
Ritningin segir, að (iuð liafi skapað
manninn beinan, en að þeir hafi fundið
upp á mörgu furðulegu. Þetta furðulega
er ósjaklan andleg afvegaleiðsla og rang-
ar kenningar, og eru margar þeirra álika
gamlar og mannkynið er.
Eitt af þessu er kenningiu um ódauð-
lega sál, sem eftir að maðurinn er skilin
við flýr til einhvers ókunns staðar, sem
hún svo dvelur á þar til löngu seinna að
hún fer til baka aftur til þess að upp-
örva og liugga eða kvelja og' pína vini og
óvini. Þessi villa liefir leitt til margra
vondra siðvenja i lieiðnum löndum.
Ju-Ju hjáguð í nánd við Elele kristniboðsstöð.
Sumstaðar í Vestur-Afríku er það t. d.
siður, að skottulæknirinn og liinn illvilj-
aði meðhjálpari hans klæði sig á vissum
tíma árs i þá fáránlegustu búninga, sem
unnt er að liugsa sér og gangi frá þorpi
til þorps eða um göturnar og þykist vera
andar framliðinna manna. Með því að
hræða fólkið og lióta því öllu illu,
geta þeir narrað út úr þvi bæði eitt og
annað. Oft kemur það fyrir að þeir leg'gj-
ast í leyni og ráðast svo á þá, sem orðnir
eru kristnir og hætt liafa hinum lieiðing-
legu siðum sínum. Þessi ofbeldisverk eru
framin undir vernd fáfróðra og kæru-
lausra liöfðingja, þannig að venjulega er
ómögulegt að ná rétti sínum í slíkum til-
fellum.
Þessi mikla áminnsta villa hefur einn-
ig fætt af sér hina margvislegu andadýrk-
un, sem einnig er mjög almenn i Vestur-
Afríku. Afskaplegar og ferlegar eftir-
myndir, sem eiga að heita líking manna
eða dýra, sjást oft í andahofunum eða
meðfram vegunum. Þessar myndastytt-
ur eru gerðar af moldu eða leiri og prýdd-
ar með skeljum, stöfum, fjöðrum og
öðru þess háttar og eiga að tákna anda
framliðinna manna. Við hlið þeirra er
venjulega kar eða geymir, sem látin er í
fæða handa öndunum.Þetta eru þær fórn-
ir, sem menn færa þessum öndum, til
þess að tryggja sér hylli þeirra og bless-
un í hinum ýmsu fyrirtækjum svo sem
dýraveiðum, fiskiveiðum, verzlun, jarð-
rækt eða ferðalögum.
En hvað stoða þessir hlutir? Landslýð-
urinn fálmar áfram í villumyrkrinu. í
stað þess að öðlast það sem manneskj-
urnar óska eftir, líkjast þær smám sam-
an þeim guðum, sem þær tilbiðja.
Hin mikla ráðsályktun Guðs er sú, að
20