Haustsöfnun til kristniboðsins (heiðingjatrúboðsins) - 15.06.1937, Blaðsíða 9

Haustsöfnun til kristniboðsins (heiðingjatrúboðsins) - 15.06.1937, Blaðsíða 9
í fótspor Livingstones. „Mætti Guð af náð sinni leyfa mér að gera eitthvað til að efla málefni Krists í þessum myrku af- kimuin jarðar vorrar?“ — D. Living- stone. Dr. Livingstone, þessi góði og göf- ugi Guðs maður, sem fórnaði öllu fyrir „meginlandið myrka“, og hvers hjarta liggur þar grafið, sagði með sanni: „Þrældómurinn er hið opna sár Afríku“. Þegar þrælahaldið var af- numið, urðu milljónir Afríku alls ekki lausar við hlekki, ótta og fáfræði, sem fjötruðu þá og héldu þeim niðri. Það eru til önnur sár, djúp sár, sem synd, fávizka og hjátrú hafa sært þá innfæddu og valdið þeim ólýsanleg- um kvölum. Vér þökkum Guði fyrir þá mörgu göfugu menn og konur, sem fetað hafa í fótspor Livingstones, og aðra sem finna sig knúða af kærleika Guðs til þess að ferðast til heiðingjaland- anna og hefja þar fána ljóssins. Hin guðdómlega kristniboðsskipun hefir hljómað, og mun halda áfram að hljóma til enda tímans: „Farið út um allan heim og kunngerið gleði- boðskapinn“.„Farið því og gerið allar þjóðir að lærisveinum“. I nafni hans skulu þeir „reka út illa anda“. . . . „yfir sjúka skulu þeir hendur leggja, þá mun þeim batna“. Innfæddir menn í Súdan. Þegar menn heimsækja kristniboðs- stöðvar, sjúkrahús og lækningastofur vorar, þar sem þúsundir sjúkra manna fá hjálp og lækningu sjúkdóma sinna, verða rnenn fyrir sterkum áhrifum af sjálfsfórnar starfi því, sem kristni- boðar vorir, læknar, hjúkrunarkonur og aðstoðarmenn þeirra framkvæma. Þeir eru í sannleika líknandi englar. Þeir eru ljós í þessu myrkri. Vér hugsum einnig til þeirra mörgu í heimalöndunum, sem ár eftir ár hjálpa til að sjá fyrir starfsmönnum þessum og halda uppi starfi þeirra með fórnargjöfum þeim, er þeir leggja fram til hjálpar hinum þjáðu. Vér skulum ekki þreytast á að gera gott, Frarah. á bls. 9. 7

x

Haustsöfnun til kristniboðsins (heiðingjatrúboðsins)

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Haustsöfnun til kristniboðsins (heiðingjatrúboðsins)
https://timarit.is/publication/1405

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.