Haustsöfnun til kristniboðsins (heiðingjatrúboðsins) - 15.06.1937, Blaðsíða 12
Múhameðs-menn.
Án tillits til þess, hverja skoðun
menn hafa á jafnræði hinna ýmsu
trúarbragða, geta menn ekki neitað
því, að sá sem ákveður að fylgja
Jesú og eignast lunderni hans, mun
aldrei hitta nokkurn mann, sem fall-
inn er svo djúpt, að kærleikur Jesris
leiti hann ekki uppi.
Það er ekki heldur hægt að neita
því, að sú trú, er skoðar alla atburði
sem senda frá Guði, fyrirfram ákveðna
og óbreytanlega, megnar ekki að fá
áhangendur sína til að nema staðar
og hjálpa þeim, sem fallnir eru. Það
mun verða skoðað sem heimskuleg
afskipti af ráðsályktun Guðs, og
nokkurskonar guðlast.
Þetta hefir greinilega komið í ljós
við reynslur þær, sem vér höfum
haft í Nígeríu.
Breska stjórnin hefir íhverjufylki
sett á stofn sjúkrahús, sem að nafn-
inutil er stjórnað af innfæddum mönn-
um, en er undir yfirstjórn evrópískra
lækna. Þar hafa verið gerðar lækn-
ingatilraunir á holdsveikum mönnum,
en án teljandi árangurs.
Það hefir reynst að vera nauðsyn-
legt, ef að tilraunirnar eiga að heppn-
ast, að vekja á ný sjálfsvirðingu hjá
sjúklingnum, og gefa honum ekki
aðeins von um heilsubót, heldur og
um hamingjusamt líf eftir lækninguna.
Mi'iham eðs-trúin, sem kennir að
allt sé fyrirfram álcveðið, stendur
ráðalaus gagnvart þessu atriði.
Kristindómurinn, sem gefur fullvissu
um guðdómlega hjálp í þessu lífi,
hjálp, sem líf Jesú hér á jörðu setti
oss fyrir sjónir, og sem einnig full-
vissaði oss um að Jesús lifir ávalt til
að biðja fyrir oss, er hinn eini kraft-
ur, sem getur veitt hinum holdsveiku
raunverulega hjálp. Það hefir sannast
í mörg ár í suður hluta Nígeríu að
þessu er þannig varið.
Sökum þess að Múhameðs-menn
hafa séð, að þeir hafa orðið eftirbátar
í þessu starfi, gefa þeir nti kristnum
trúboðum kost á að taka að sér allt
starf fyrir holdsveika í múhameðönsk-
um fylkjum í Nígeríu.
Þetta er erfitt og kostnaðarsamt
starf, því lækningastarfið útheimtir
tíma, og menn verða að taka að sér
að standa straum af sjúklingnum, og
oft líka af fjölskyldu hans, í tvö eða
þrjú ár.
Knúðir af kærleika Krists og eftir
dæmi hans takast kristnir menn á
hendur með gleði þetta ætlunar-
verk, og skoða það sem einkarétt
veittan af Guði.
Nú fá þeir tækifæri til að hjálpa
hinum þjáðu Múhameðs-mönnum,
sem allt til þessa hafa haldið kristni-
boðunum utan við sitt umdæmi.
Hér á lækningastofu vorri tökum
vér þátt í þessu starfi, meðal hinna
holdsveiku. En með þeim fáu hjálp-
artækjum, sem vér höfum, megnum
vér ekki að fullnægja hinum miklu
kröfum, sem til vor eru gerðar.
Hversu dýrðleg trúarbrögð höfum
10