Fréttablaðið - 18.10.2019, Blaðsíða 26

Fréttablaðið - 18.10.2019, Blaðsíða 26
eða að deyja. En það eru kringum- stæðurnar sem geta verið skoplegar. Og hláturinn getur svona létt undir, mér fannst góð tilhugsun að ef til vill væri einhver sem stæði frammi fyrir lyfjameðferð sem hefði gagn af því. Að það væri ekki jafn ógnvæn- legt. En ómeðvitað þá notar maður þessar hugleiðingar sem kvikna í veikindum eða því að hugsa um dauðann í öllu sem maður gerir. Besta partýið Af hverju er það enn tabú haldið þið? Að ræða dauðann? Ragnar: Það ætti ekki að vera tabú að ræða þetta. Eitt sem mörgum finnst erfitt að ræða er þegar manni verður létt fyrir hönd þeirra sem eru alvarlega þjáðir og veikir, eiga enga von um lækningu og fá hvíld. Hekla Eísabet: Margir fyllast tilgangsleysistilfinningu af því að hugsa um dauðann. Hugsa með sér, til hvers er þetta þá allt? En gef ur dauðinn ekki líka tilgang? Hekla Elísabet: Jú, það er rétt. Baldvin: Það sem drepur dauð- ann í okkar samfélagi eru jarðar- farir. 90% jarðarfara sem ég hef farið í eru leiðinlegar og þvingaðar. Presturinn heldur ræðu sem er sjaldan í takti við manneskjuna sem er verið að jarða. En það eru á þessu undantekningar. Ég fór fyrir nokkrum árum í jarðarför mömmu vinar míns. Hún var haldin í sal en ekki í kirkju. Börn og barnabörn klifruðu upp á kistuna og settu teikningar handa ömmu í kistuna. Bob Dylan var á fóninum. Athöfnin varð persónuleg og við áttum góða stund. En þetta getur verið alveg glötuð athöfn. Hekla: Besta partí sem ég hef farið í var jarðarför. Við vorum að kveðja góðan vin sem hafði valið tónlistina sjálfur. Hann setti mark sitt á partíið. Jón Gunnar: Vinur minn dó úr krabbameini fyrr á þessu ári. Hann var mikill kvikmyndaunnandi, búinn að sérvelja lögin. Það var góð upplifun. Maður fagnar lífinu þegar maður minnist þeirra látnu. Að skipuleggja eigin jarðarför Já, ætti fólk kannski bara að skipu- leggja eigin jarðarför? Svo þetta verði ekki glatað allt saman? Jón Gunnar: Já, ég held að margir séu með hugmyndir um hvernig þeir vilja hafa eigin jarðarför. Kristófer: En ég held líka að margir þori ekki að festa hugmynd- ir á blað og finnist þeir þá vera að ögra dauðanum. Hekla: Ég er búin að segja vinum mínum hvaða lög ég vil hafa í minni jarðarför. En ég get ekki sett það á blað, finnst þá eins og ég sé að bjóða dauðanum heim til mín. Jón Gunnar: Það er eitthvað óþægilegt við það að skipuleggja eigin endalok. En samt. Væri það ekki góð hugmynd? Það finnst að minnsta kosti söguhetjunni. Ragnar: Þetta er ekki í fyrsta sinn sem við Jón Gunnar skrifum um jarðarför. Fyrsta verkefnið sem við unnum saman var handrit að „road trip“ bíómynd sem fjallaði um hóp manna sem fara með lík vinar síns þvert yfir landið og lenda í alls konar veseni á leiðinni. Myndin endaði svo á geggjuðu partíi í kirkjunni. Þar sáum við að jarðar- farir þurfa ekki að vera leiðinlegar heldur eru þær frekar tækifæri til þess að fagna lífinu. Svo hugsuðum við hvernig það væri ef líkið sjálft fengi að taka þátt í skemmtuninni. Það væri engin jarðarför eins frábær og hjá manneskju sem væri sjálf að skipuleggja hana. Hvernig kom hugmyndin til þín Jón Gunnar? Jón Gunnar:  Hún kom ein- mitt úr þessum þankagangi. Hvort maður myndi ekki vilja hafa áhrif á sína síðustu veislu. Hvort maður myndi ekki vilja sjálfur vera við- staddur jarðarförina sína og kveðja sína nánustu. En um leið og hug- myndin fæddist þá var aðalleikar- inn ákveðinn í huga mínum. Fá ástsælasta gamanleikara þjóðar- innar sl. 50 ár til að leika hlutverkið sem mér finnst þjóðin eiga inni hjá honum. Þetta er brosmild saga um krabbamein, dauða, jarðar- farir og þessa dásamlega skrýtnu og skemmtilegu fjölskyldu sem við öll þekkjum og elskum. Allir þekkja einhvern sem er að ganga í gegnum erfið veikindi. Systir mín greindist með krabbamein í annað sinn og er nú að glíma við það. Ég finn mjög sterkt hvað það er nauðsynlegt að halda í gleðina og húmorinn í svona aðstæðum. Hvernig er að vinna svona mörg saman, eruð þið ekki alltaf að rífast? Baldvin: Við settumst niður og rifum þetta í okkur. Spóluðum okkur í gegnum framvinduna í gegnum sex þætti. Kristófer: Hugmyndin er svo sterk. Við vissum öll um hvað þetta er frá byrjun. Við erum með mann sem ætlar að deyja en hann ætlar að vera viðstaddur eigin jarðarför. Hekla: Ég hef aldrei verið í svona teymi og það kom mér á óvart hvað þetta gekk vel því við komum öll úr mismunandi áttum og erum með mismunandi sýn á lífið. Góður andi yfir verkefninu Þannig að þið hafið ekki unnið saman áður? Sóli: Nei, en bransinn finnur allt- af leið til að tengja fólk saman. Ég held að það sé að vissu leyti gott að við höfum ekki unnið saman áður. Við rökstyðjum og útskýrum hug- myndir okkar betur. Þegar maður þekkir vel þá sem maður vinnur með á maður til að gera það ekki. Við rerum öll í sömu átt og það er ótrúlega fallegur og góður andi yfir þessari seríu. Og ég veit ekki hvort ég hef endilega gert mér grein fyrir því í upphafi hvernig þetta myndi fara. Þetta er mjög gott handrit, bara spurning um hvernig þetta verður leikið! Laddi: Já! Það er nú það! Baldvin: En það er rétt sem Sóli segir, það er góður andi yfir þessu því þó að við séum að skrifa gaman- þætti þá nálgumst við öll viðfangs- efnið af mikilli virðingu. Því jú, þetta er grín en við erum ekki að gera grín að dauðanum. Þættirnir verða frumsýndir hjá Símanum á næsta ári. RÚV var að frumsýna Pabbahelgar. Er metnaður og gróska í íslenskri sjónvarpsþátta- gerð? Kristófer: Sjónvarp Símans er að koma mjög sterkt inn og svolítið að blása í lúðrana. Það mun hafa góð áhrif á alla keppinauta. Baldvin: Keppinautar eru að gera það sama. Við erum komin með aðila sem ætla að spýta í lófana. Ragnar: Það er nefnilega þannig að til þess að öflug innlend þátta- gerð þrífist þá er ekki hægt að reiða sig á styrki. Margar seríur stranda á styrkjum. En Síminn er að hjóla í þetta og það er vel. En Laddi hvað finnst þér? Myndir þú vilja gera þetta eins og sögu- hetjan sem þú leikur? Skipuleggja sjálfur eigin jarðarför? Laddi: Mín jarðarför verður stór. Það verða svo margir jarðaðir með mér. Það verður fjöldagröf og það verður sjóv í kirkjunni. Jón Gunnar: Já, það þarf nátt- úrulega að jarða þá alla. Eirík Fjalar, Martein Mosdal og restina. Legsteinninn verður þriggja metra hár! Mín jarðarför verður stór. Það verða svo margir jarðaðir með mér. Það verður fjölda- gröf og það verður sjóv í kirkjunni. FRÉTTABLAÐIÐ/ ANTON BRINK ÉG ER BÚIN AÐ SEGJA VINUM MÍNUM HVAÐA LÖG ÉG VIL HAFA Í MINNI JARÐARFÖR. EN ÉG GET EKKI SETT ÞAÐ Á BLAÐ, FINNST ÞÁ EINS OG ÉG SÉ AÐ BJÓÐA DAUÐANUM HEIM TIL MÍN. Hekla Elísabet 1 9 . O K T Ó B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R26 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 1 9 -1 0 -2 0 1 9 0 4 :5 9 F B 1 0 4 s _ P 0 8 2 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 7 9 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 4 0 B -7 3 2 4 2 4 0 B -7 1 E 8 2 4 0 B -7 0 A C 2 4 0 B -6 F 7 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 A F B 1 0 4 s _ 1 8 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.