Skessuhorn


Skessuhorn - 17.01.2018, Side 1

Skessuhorn - 17.01.2018, Side 1
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 3. tbl. 21. árg. 17. janúar 2018 - kr. 750 í lausasölu Lúsina burt! Augndropar! www.landnam.is - landnam@landnam.is Sími: 437 1600 föstudagur 20:30 – 22:30 laugardagur 16:00 – 22:30 sunnudagur 14:00 – 16:00 Sýndar verða alþjóðlegar fræðslu- og heimildamyndir og kvikmyndir Sjá nánar á landnam.is Frítt inn Borgarnes Film Festival á Sögulofti 19. til 21. janúar Besta bankaappið á Íslandi Samkvæmt könnun MMR BÓNDADAGURINN Nánar á bls. 7 Áhöfnin á Tryggva Eðvarðs SH, f.v. Kjartan Haraldsson, Gylfi Scheving og Alexander Rodriguez. Búið er að semja um sölu á mann- virkjum að Laugum í Sælingsdal í Dalasýslu, þó ekki hafi enn verið und- irritaðir samningar. Að sögn Sveins Pálssonar sveitastjóra var samið um að selja húseignir á Laugum og eign- arhlut Dalabyggðar í jörðinni Laug- um og jörðinni Sælingsdalstungu auk alls þess sem fylgir þeim eignum, að undanskildum kaldavatnsréttindum í Sælingsdalstungu, þar sem vatnsból er fyrir vatnsveitu Dalabyggðar. „Á endanum seldum við meira en upp- haflega var ætlunin, en við töldum það besta kostinn í stöðunni. Lengi hefur legið fyrir að byggja íþrótta- hús og sundlaug í Búðardal og var tilgangurinn með þessari sölu að fá handbært fé til að hefja þær fram- kvæmdir,“ segir Sveinn. Hann bæt- ir því við að umsamið kaupverðið er 460 milljónir króna. Síðar í þessum mánuði verður haldinn íbúafundur þar sem meðal annars sala eignanna verður kynnt fyrir íbúum og fjallað um næstu skref. „Í fjárhagsáætlun, sem samþykkt var í desember, er gert ráð fyrir byggingu mannvirkja á árunum 2018-2019 og næsta skref er því að semja við hönn- uði að nýja íþróttahúsi,“ segir Sveinn. Íþróttahúsið verður staðsett á lóð í grennd við skólann. „Fyrst og fremst er þetta hugsað sem skólamannvirki en ég reikna með að þar verði einn- ig líkamsræktarsalur. Salurinn sem við höfum nú þegar er á annarri hæð og ekki aðgengilegur fyrir alla,“ segir Sveinn. Aðspurður hvað verði um skóla- íþróttir og tómstundabúðirnar sem hafa verið á Laugum segir Sveinn það að undir nýjum eigendum kom- ið. „UMFÍ sér um tómstundabúð- irnar og leigir aðstöðuna á Laugum. Kaupandi yfirtekur leigusamninginn sem gildir út skólaárið 2018-2019 og framhaldið verður á milli nýs eiganda og UMFÍ. Við höfum nú þegar flutt skólasund alfarið í litla sundlaug við Dalabúð í Búðardal en skólaíþrótt- irnar hafa verið á Laugum yfir kald- asta tíma ársins, þegar ekki er hægt að hafa íþróttatímana úti. Það er enn óráðið hvar íþróttatímarnir verða þar til nýtt íþróttahús verður tilbúið en það kæmi til greina að leigja að- stöðuna á Laugum ef ekki er hægt að finna tímabundna lausn hér í Búðar- dal,“ segir Sveinn að endingu. arg Búið að semja um sölu á Laugum Áhöfnin á línubátnum Tryggva Eðvarðs SH frá Rifi hefur að undanförnu vakið athygli þeirra sem starfa við og hafa áhuga á sjávarútvegi vegna stífrar sjósóknar og mikils afla á þessari vertíð. Hafa þeir ítrekað verið í efsta sæti í flokki báta undir 15 tonnum. Fréttaritari Skessuhorns var mættur á bryggj- una í Ólafsvík í síðustu viku og voru þar hressir og kátir piltarnir á Tryggva Eðvarðs að þá var að koma í land með 12 tonn á 48 bala. Gylfi Scheving Ás- björnsson er á sinni fyrstu vertíð sem skipstjóri og segir hann að gott tíðar- far hafi verið framan af vertíðinni en núna sé brælutíð framundan. Nái því áhöfnin að hvíla lúin bein. Þrír eru um borð en fimm í landi við beitningu. „Ég get ekki kvartað unda aflabrögðum,“ segir Gylfi og bætir við að gott verð hafi verið á fiskmörkuðum og því stefni í flotta vertíð. Hann segir að- spurður að þeir hafi að mestu haldið sig á heimaslóðum og róið oftast frá Arnarstapa en þó hafi þeir farið nokkra róðra frá Hólmavík fyrir jól, vegna slæms veðurs á Breiðafirði, og þar náð í 30 tonn. „Það sem er af kvótaári erum við komnir með 700 tonn upp úr sjó. Það munar miklu að Fiskmarkaður Snæfellsbæjar, þar sem við löndum, er opinn allan sólarhringinn og gerir það okkur kleift að vera óbundnir klukkunni. Við höfum til dæmis landað tvisvar á dag á Arnarstapa og þaðan er stutt í land svo því höfum við getað róið stífar. Við löndum og siglum svo út aftur. Þá höfum við landað hátt í 20 tonnum í einu, en það gerðist í síðustu viku,“ segir Gylfi kampakátur að venju. af

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.