Skessuhorn - 07.02.2018, Page 1
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 6. tbl. 21. árg. 7. febrúar 2018 - kr. 750 í lausasölu
Lúsina burt!
Augndropar!
Grettissaga
Einars Kárasonar
laugardagur 3. mars kl. 20:00
laugardagur 10. mars kl. 20:00
sunnudagur 11. mars kl. 16:00
Auður djúpúðga
Uppselt í febrúar
Næstu sýningar í mars
fimmtudagur 1. mars kl. 17:00
sunnudagur 4. mars kl. 16:00
laugardagur 17. mars kl. 20:00
laugardagur 31. mars kl. 20:00
sjá nánar á landnam.is
Miðpantanir:
landnam@landnam.is
sími 437-1600
Frumsýning
föstudaginn
2. mars
kl. 20:00
Besta bankaappið
á Íslandi
Samkvæmt könnun MMR
20 ÁR
Þessa friðsælu vetrarmynd tók Friederike Roolf í Borgarnesi þegar vetur var nákvæmlega hálfnaður samkvæmt fornu tímatali, á kyndilmessu. Bekkur þessi er fyrir gesti
sem rölta meðfram Brákarsundi og vilja tylla sér niður, njóta náttúrunnar og nálægðarinnar við sjóinn. Fjær til hægri er Brákarey og brúin út í hana en Hafnarfjallið
vakir yfir byggðinni.
Breytingar framundan
í safnamálum
Vinnuhópur
sem sveitar-
stjórn Borgar-
byggðar skip-
aði á síðasta
ári til að vinna
tillögur um
framtíðarskipan safnamála í Borg-
arbyggð hefur skilað skýrslu til
byggðarráðs og verður hún form-
lega kynnt sveitarstjórn á morgun.
Tillögur hópsins eru einkum þrí-
skiptar og fela í rauninni í sér nýja
hugsun í safnamálum í Borgar-
byggð, miðlun og varðveislu. Til-
lögurnar snúa að Hjálmakletti sér-
staklega, að stofnað verði varð-
veislusetur fyrir landshlutann og
loks um sýningarhald. Horft er til
Hjálmakletts sem framtíðar menn-
ingarhúss í sveitarfélaginu og efl-
ingar þess. Leggur starfshópurinn
til að leitað verði leiða til að auka
nýtingu hússins, bjóða upp á fjöl-
breyttari starfsemi en nú er og gefa
fleirum möguleika á að njóta þeirr-
ar aðstöðu sem húsið hefur upp á
að bjóða.
Sjá nánar bls. 10.
Draugr á Kalastöðum
Á Kalastöðum í Hvalfjarðarsveit
hefur verið stofnað Draugr Brugg-
hús. Að brugginu standa þrír fé-
lagar sem hófu bjórbruggun sem
áhugamál og var markmiðið í
fyrstu að hver lögun dygði þar til
sú næsta yrði tilbúin. Enn er verk-
efnið fyrst og fremst til gamans
gert og flokkað sem áhugamál
þeirra, en viðtökurnar hafa engu
að síður verið með þeim hætti að
stöðugt verða keröldin stærri og
framleiðslan meiri hverju sinni.
Þeir hafa nú sent frá sér tvær teg-
undir af bjór og nýrrar tegund-
ar er að vænta. Byrjað er að selja
bjórinn Axlar-Björn og hins veg-
ar Djáknann. Þeir segjast ætla
að halda sig við draugasögurnar
og þjóðsögurnar í nafngiftinni á
bjórnum, enda af nógu að taka.
Sjá nánar bls. 20-21.
Reyna að styðja við
nýbyggingar
Íbúðalánasjóður hefur ákveðið að
grípa til sérstakra aðgerða vegna
langrar stöðnunar í húsnæðis-
uppbyggingu á landsbyggðinni.
Í húsnæðiskafla sáttmála núver-
andi ríkisstjórnar segir; „öruggt
húsnæði, óháð efnahag og bú-
setu, er ein af grundvallarforsend-
um öflugs samfélags“. Íbúðalána-
sjóður skoðar nú þær leiðir sem
eru færar til að bregðast við skorti
á nýbyggingum á landsbyggð-
inni. Meðal þess sem er til skoð-
unar er að taka upp sömu úrræði
hér á landi og eru til staðar fyrir
framkvæmdaaðila á strjálbýlum
svæðum í nágrannalöndum okk-
ar varðandi fjármögnun bygg-
inga. Lögð verður áherslu á að
vinnan skili árangri sem fyrst og
verði í formi raunhæfra tillagna
sem félagsmálaráðherra og ríkis-
stjórn geti tekið afstöðu til.
Sjá nánar bls. 23.
Amtsbóka-
safnið opnað
Nýtt húsnæði Amtsbókasafns-
ins í Stykkishólmi var formlega
tekið í notkun við hátíðlega at-
höfn síðastliðinn föstudag. Fjöl-
menni var við opnunina þrátt
fyrir að nokkrir gestir hefðu for-
fallast vegna veðurs. Eftir að
klippt hafði verið á borða og
safnið formlega opnað var gest-
um boðið upp á veitingar og að
skoða sig um safnið. Á meðfylgj-
andi mynd má sjá hvar áhuga-
samur gestur gluggar í bók-
menntir á nýja safninu.
Sjá nánar bls. 22.