Skessuhorn


Skessuhorn - 14.02.2018, Blaðsíða 5

Skessuhorn - 14.02.2018, Blaðsíða 5
Sund er án efa útbreiddasta og vinsælasta almenningsíþróttin hér á landi. Fólk iðkar sund af ýmsum ástæðum, sumir nota sundið og sundlaugarnar sér til heilsubótar, aðrir til að slaka á og enn aðrir sækja þangað félagsskap og samveru við annað fólk. Sund er góður, aðgengilegur og ódýr kostur til að bæta heilsu og auka vellíðan. Í Borgarnesi er 25 metra útisundlaug með rennibraut, 12,5 metra innisundlaug, heitir pottar, kaldur pottur og gufubað. Opnunartími sundlaugarinnar í Borgarnesi er sem hér segir: Alla virka daga frá kl. 6:00-22:00 Um helgar kl. 9:00-18:00 Á Kleppjárnsreykjum er 25 metra útisundlaug með heitum potti og sólbaðsaðstöðu. Sundlaugin er tilvalin staður að koma á til að vera í rólegheitum og slaka á í notalegu umhverfi. Opnunartími sundlaugarinnar á Kleppjárnsreykjum er sem hér segir: Alla virka daga frá kl. 8:00-16:00 Fimmtudagskvöld frá kl.19:00-22:00 Sunnudaga frá kl. 13:00-18:00 Íbúar eru hvattir til að nýta sér sundlaugarnar í Borgarbyggð. SK ES SU H O R N 2 01 8 Opnunartími sundlauga í Borgarbyggð

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.