Skessuhorn - 14.02.2018, Blaðsíða 28
MIÐVIKUDAGUR 14. FEbRúAR 201828
Vörur og þjónusta
Hönnun prentgripa
& alhliða prentþjónusta
Drei bréf - Boðsbréf
Ritgerðir - Skýrslur
Reikningar - Eyðublöð
Umslög - Bréfsefni
Fjölritunar- og
útgáfuþjónustan
Getum við
aðstoðað þig?
sími: 437 2360
olgeirhelgi@islandia.is
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
H P Pípulagnir ehf.
Alhliða pípulagnaþjónusta
Hilmar 820-3722
Páll 699-4067
hppipulagnir@gmail.com
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
7
Sprautu- og bifreiðaverkstæði
Sólbakka 5, Borgarnesi • 437-1580 • sbb@simnet.is
Tjónaskoðun – Bílamálun – Réttingar – Bílrúðuskipti
Þjónustum öll tryggingafélög
Borgarness
Skagabraut 6, Akranesi - sími: 431-5110/666-5110
www.smaprent.is - smaprent@smaprent.is
Hönnum, prentum og merkjum
fyrir einstaklinga, hópa, félög, samtök og fyrirtæki
Smáprent
Fyrir alla vigtun
Húsarafmagn
Töflusmíði
Iðnaðarrafmagn
Bátarafmagn
Bílarafmagn
RAFMAGN
vogir@vogir.is Sími 433-2202
VOGIR
Bílavogir
Kranavogir
Skeifuvogir
Pallvogir
Aflestrarhausar
Starfshópur, sem falið var að kanna
mögulegan ávinning fyrir lýð-
heilsu og vellíðan landsmanna af
því að leiðrétta klukkuna til sam-
ræmis við sólarganginn, hefur skil-
að heilbrigðisráðherra greinargerð
með tillögu þess efnis. Tillaga
starfshópsins felur í sér að klukkan
verði færð aftur um eina klukku-
stund sem myndi seinka fótaferð
fólks sem því nemur. Með því móti
myndi birtustundum á morgnana
fjölga um 13% vestast á landinu í
svartasta skammdeginu og vetrar-
dögum þar sem bjart er orðið kl.
9.00 myndi fjölga um 64. birtust-
undum síðdegis myndi við þessa
breytingu fækka um 13% en skerð-
ing þeirra yrði aðallega snemm-
og síðsumars, þ.e. í apríl og ágúst.
Starfshópurinn mælir gegn því að
hafa sumar- og vetrartíma og vís-
ar til þess að rannsóknir bendi til
þess að slíkar breytingar hafi nei-
kvæð áhrif á heilsu fólks.
Í greinargerðinni með skýrslu
starfshópsins kemur fram að sól-
arupprás og sólsetur verður að
meðaltali einni klukkustund síð-
ar hér á landi en ef miðað er við
rétt tímabelti. Þetta misræmi var
leitt í lög árið 1968 með svoköll-
uðum miðtíma sem ákveðinn var
fyrst og fremst með efnahags- og
viðskiptahagsmuni að leiðarljósi.
bent er á að hin síðari ár hafi vís-
indarannsóknir leitt í ljós neikvæð
áhrif þessa á heilsufar fólks. Það
skýrist af því að líkamsklukkan sem
samhæfir starfsemi líkamans, þarf
birtuboð til að halda réttum takti
og þar ræður sólarupprásin hvað
mestu. Seinki líkamsklukkunni er
hætta á að svefntíminn skerðist
og með því aukast líkur á ýmsum
sjúkdómum, svo sem offitu, sykur-
sýki og hjarta- og æðasjúkdómum.
Einnig veldur þetta lakari fram-
leiðni og kemur t.d. niður á náms-
árangri í skólum auk þess sem sýnt
hefur verið fram á samband milli
seinkaðrar líkamsklukku og auk-
innar depurðar/þunglyndis hjá
unglingum og ungu fólki.
Þá segir að Íslendingar fara
seinna að sofa en tíðkast í ná-
grannalöndunum. Fram kemur í
greinargerðinni að svefntími ís-
lenskra unglinga sé skemmri en
hjá evrópskum jafnöldum þeirra,
þeir sofi einungis um sex klukku-
stundir á virkum dögum og að
svokölluð klukkuþreyta sé algeng
meðal þeirra. Klukkuþreyta felst í
því að háttatíma seinkar og er ekki
í samræmi við fastákveðinn fóta-
ferðartíma á virkum dögum og
því skerðist svefntíminn. Að mati
starfshópsins er mögulegt að of lít-
ill svefn hafi áhrif á hátt brottfall
nemenda úr framhaldsskólum hér
á landi.
Minnisblað starfshópsins verður
kynnt í ríkisstjórn en heilbrigðis-
ráðherra leggur áherslu á að málið
fái þroskaða umræðu í samfélaginu
áður en ákvörðun verður tekin um
að færa klukkuna aftur um eina
stund.
mm
Leggja til að klukkunni
verði seinkað um eina stund
Starfshópurinn kynnti niðurstöðu sína á fundi með Svandísi Svavarsdóttur
heilbrigðisráðherra. Á myndinni eru f.v.: Sveinbjörn Kristjánsson, Ásthildur Knúts-
dóttir og Björg Þorleifsdóttir, fulltrúar í klukkuhópnum, ásamt Svandísi Svavars-
dóttur heilbrigðisráðherra.
Fréttaveita Vesturlands
www.skessuhorn.is
Vitinn, félag áhugaljósmyndara
á Akranesi, er átta ára um þess-
ar mundir. Næsti fundur félagsins
er afmælisfundur og fer hann fram
fimmtudaginn 15. febrúar kl. 20 í
aðstöðu félagsins að Suðurgötu 108
á Akranesi (dyr til vinstri). „Vilja
félagsmenn Vitans nota tækifærið
og bjóða allt áhugafólk um ljós-
myndun velkomið til að kynna sér
starf félagsins. Á fundinum verður
smá kynning á félaginu, létt spjall
auk kaffiveitinga. Vonumst til að
sjá sem flesta.“
Félagar í Vitanum funda tvisvar
í mánuði yfir vetrarmánuðina. Fé-
lagið hefur haldið margar samsýn-
ingar og ber þar hæst Vökudaga-
sýningu Vitans sem er orðin fastur
liður í starfseminni. Félagið hefur
auk þess gefið út þrjár ljósmynda-
bækur og farið í nokkrar ljós-
myndaferðir. mm
Almenningi boðið á fund hjá
félagi áhugaljósmyndara
Svipmynd úr einni af ljósmyndaferðum félagsins.
Íbúar létu veðrið ekki aftra sér á
laugardagskvöldið frá því að halda
Þorrablót Neshrepps utan Enn-
is, sem fram fór í Röstinni á Hellis-
sandi. Það voru Lionsklúbbur Nes-
þinga, Lionsklúbburinn Þerna og
Kvenfélag Hellissands sem stóðu
að blótinu. Vel var mætt á blótið en
180 miðar seldust á það. Veislustjóri
var hin eina sanna Dóra Unnars og
fór hún á kostum að venju. Þröstur
Kristófersson flutti minni kvenna
og Dóra Unnars minni karla. blóts-
gestir gæddu sér á þorramat frá
Múlakaffi áður en skemmtiatrið-
in hófust. Nefndin hafði greinilega
lagt mikla vinnu í frábær skemmti-
atriði sem komu öllum salnum til
að skellihlægja og myndaðist góð
stemning í salnum. Skemmtiatrið-
in samanstóðu af gömlu og nýju
efni og búið að leggja mikla vinnu
í að útbúa myndbönd og texta við
lög sem skiluðu sér vel til gestanna.
Að skemmtiatriðunum loknum tóku
þau Sigga beinteins, Grétar Örvars
og Jogvan Hansen við og héldu upp
fjöri fram eftir nóttu. Þó veðrið væri
ekki gott komust allir gestir blótsins
heim heilu og höldnu. þa
Þorrablót Neshrepps utan Ennis