Skessuhorn


Skessuhorn - 28.02.2018, Blaðsíða 24

Skessuhorn - 28.02.2018, Blaðsíða 24
MIÐVIKUDAGUR 28. fEBRúAR 201824 Vörur og þjónusta Hönnun prentgripa & alhliða prentþjónusta Drei bréf - Boðsbréf Ritgerðir - Skýrslur Reikningar - Eyðublöð Umslög - Bréfsefni Fjölritunar- og útgáfuþjónustan Getum við aðstoðað þig? sími: 437 2360 olgeirhelgi@islandia.is R E S T A U R A N T Upplýsingar í síma: 430 6767 R E S T A U R A N T Upplýsingar í síma: 430 6767 H P Pípulagnir ehf. Alhliða pípulagnaþjónusta Hilmar 820-3722 Páll 699-4067 hppipulagnir@gmail.com SK ES SU H O R N 2 01 7 Sprautu- og bifreiðaverkstæði Sólbakka 5, Borgarnesi • 437-1580 • sbb@simnet.is Tjónaskoðun – Bílamálun – Réttingar – Bílrúðuskipti Þjónustum öll tryggingafélög Borgarness Skagabraut 6, Akranesi - sími: 431-5110/666-5110 www.smaprent.is - smaprent@smaprent.is Hönnum, prentum og merkjum fyrir einstaklinga, hópa, félög, samtök og fyrirtæki Smáprent Fyrir alla vigtun Húsarafmagn Töflusmíði Iðnaðarrafmagn Bátarafmagn Bílarafmagn RAFMAGN vogir@vogir.is Sími 433-2202 VOGIR Bílavogir Kranavogir Skeifuvogir Pallvogir Aflestrarhausar Sveitarstjórn Borgarbyggðar Borgarbraut 14 310 Borgarnesi fyrir nokkru átti ég leið í Borgarnes og kom við í Safnahúsinu til að skoða þar málverkasýningu. Ég hitti for- stöðumann hússins, Guðrúnu Jóns- dóttur, að máli sem sagði mér undan og ofan frá nýjum hugmyndum um breytingar á fyrirkomulagi safnanna í Borgarnesi. Þar sem mér eru þessi mál enn hugstæð langar mig til að leggja orð í belg um þau. Mín fyrstu afskipti af safnamálum í Borgarnesi hófust seint á áttunda áratugnum þegar ég tók sæti í stjórn Listasafns Borgarness. Þessi afskipti jukust þar til ég tók við starfi for- stöðumanns Safnahúss Borgarfjarðar árið 1990 sem ég gegndi síðan til árs- ins 2000. Allan þann tíma sem ég hafði af- skipti af þessum málaflokki og greini- lega enn, því miður, var á brattann að sækja með skilning á mikilvægi þess starfs og þeirrar þjónustu sem starf- semin í Safnahúsinu innti af hendi fyrir samfélagið. Mikil vinna var lögð í að reyna að vinna að bættum að- búnaði fyrir söfnin í fyrsta lagi með lagfæringum á því húsnæði sem til staðar var en einnig með tillögum um nýtt húsnæði með þó þeim ár- angri að núverandi húsnæði var smám saman tekið í notkun og end- urbætt. Það var engu að síður ljóst í upphafi að kröfur sem gerðar voru til húsnæðis fyrir þessa þjónustu voru ekki uppfylltar. Gerðar voru tilraunir til að afla fylgis við nýbyggingar fyr- ir söfnin í Borgarnesi sem ekki hlutu hljómgrunn. Á níunda áratugnum voru miklar umræður meðal safnafólks um þróun safna og stefnumörkun í málefnum safna á landinu. Þá var áberandi hluti umræðunnar um að fækka því sem kallað var bæði í gamni og alvöru „dritsöfn“ sem vísaði til þeirrar til- hneigingar að dreifa söfnum og safn- efni í minni einingar sem hafði óhjá- kvæmilega þær afleiðingar að það dró úr styrk þeirra og getu til öflugrar starfsemi og varð fjárhagslegur baggi á eigendum sínum. Lögð var áhersla á það gagnstæða að efla einingar með sameiningu safna og á þann hátt fá betri nýtingu á starfskröftum og betri möguleikum á sérhæfðara starfsfólki. Þessar áherslur kristölluðust síðan í þeim mikla áhuga á uppbyggingu menningarmiðstöðva víða á landinu eftir aldamótin. Það má líta svo á að þessi stefna hafi átt sinn þátt í því að í Borgar- nesi var ráðist í byggingu menning- arhúss fyrir um það bil tíu árum. Því miður þá báru menn ekki gæfu til að líta heildstætt á hlutina og gera ráð fyrir nýrri og vandaðri byggingu fyr- ir safnastarfsemina í Borgarnesi þar sem búið væri að þeim með sóma. Og nú er reynt að höggva í sama knérunn og grafa undan þeirri mik- ilvægu samfélagslegu þjónustu sem söfnin veita. Það hefði verið meiri reisn yfir því að leggja til veglega uppbyggingu, jafnvel viðbót við Hjálmaklett, þar sem öll söfnin gætu rúmast og ver- ið byggðarlaginu til sóma. Það má benda á að Menntaskólinn gæti sem best notað núverandi húsnæði Safna- hússins fyrir sína starfsemi. Mig langar til að draga sérstaklega fram þrjú atriði. Í fyrsta lagi langar mig til að vekja athygli á Listasafni Borgarness. Þetta safn hefur því mið- ur ekki notið sannmælis eða þeirrar athygli sem það á skilið. Safnið er að stofni til gjöf frá Hallsteini Sveinssyni sem kom til dvalar á Dvalarheimilinu í Borgarnesi á sínum tíma. Þarna er um að ræða eitt af stærri málverka- söfnum utan Stór-Reykjavíkursvæð- isins sem hefur auk þess þá sérstöðu að vera eitt stærsta safn óhlutbund- inna málverka á landinu sem endur- speglar einstaklega vel uppgangs- og umbrotatíma í íslenskri myndlist. Safnið er vel þekkt meðal fólks sem kann skil á sögu íslenskrar myndlist- ar og reynt hefur verið að sýna verk úr því í þeim litla sal sem Safnahús- ið hefur til umráða með reglulegum hætti. Þetta safn var gefið Borgarnes- hreppi á sínum tíma og var rekið að nokkru leyti sem sjálfstæð eining innan Safnahússins með framlagi frá Borgarneshreppi og síðar Borgar- byggð. Annað sem ég vil nefna sérstak- lega er Pálssafn. Það safn var ánafnað Safnahúsinu Í Borgarnesi af Páli Jóns- syni bókaverði og því fylgdi gjafabréf með ákveðnum skilyrðum. Ef ein- hverjum dettur í hug að hrófla við því safni úr Safnahúsinu verða skil- yrðin vanvirt og krafa erfingja Páls um að safninu verði skilað til þeirra aftur réttmæt. Ég vara við því að til nokkurs slíks komi. Þetta safn er öðrum þræði bókfræðilega merkilegt þar sem þarna er að sjá mjög vandað bókband og svo er þarna heildstætt safn ljóðabóka frá miðri síðustu öld auk nokkurra fágætra eldri útgáfna íslenskra bóka. Pálssafn er eitt af djásnum Safnahússins og óaðskiljan- legur hluti bókasafns Safnahússin. Í þessu sambandi er þess getið að safnið geti nýst fræðimönnum í Reykholti. Þessi rök tel ég afar lang- sótt og nánast algjörlega haldlaus. Ég fullyrði að í safninu séu hverfandi þau gögn sem nýtast við fræðimennsku í Reykholti. Ég bendi á að frá 1997 hafa verið gefin út fjórtán fræðirit af Snorrastofu, flest um fornleifafræði, önnur um handrit og enn önnur um skólastarf í Borgarfirði þar sem gögn Héraðsskjalsafnsins eru líklegri til að hafa nýst en bókasafn. Það má líka benda á í þessu sam- hengi að Snorrastofa fékk á tíunda áratug síðustu aldar að láni frá Safn- húsinu allmargar gamlar útgáfur af fornritum. Þessar bækur voru lengi vel til sýnis í glerskápum í nýbygg- ingu Snorrastofu. Ég hef ekki upp- lýsingar um hvort þeim hefur verið skilað til Safnahússins aftur, þar sem þær eiga heima. Í þriðja lagi langar mig að nefna Náttúru- gripasafn Borgarfjarðar. Það safn varð til fyrir áhuga forvera míns í starfi forstöðumanns, Bjarna Bach- manns, auk sparisjóðsstjóranna frið- jóns Sveinbjörnssonar og Sigfúsar Sumarliðasonar sem reyndar báru alltaf hag Safnahússins fyrir brjósti og vildu veg þess sem mestan. Þess- ir frumkvöðlar sáu fyrir sér safn þar sem náttúru Íslands væru gerð góð skil, jarðsögu og dýra- og jurtaríki. Því miður hefur sá draumur enn ekki ræst en er í fullu gildi. Ég hef lesið yfir skýrslu vinnu- hópsins og þar eru nokkur atriði sem vekja eftirtekt. Í fyrsta lagi eru til- greindar tölfræðilegar upplýsingar frá Safnahúsi Borgarfjarðar en ekki frá hinum söfnunum sem til umræðu eru í skýrslunni. Þá eru röksemdir fyrir uppskiptingu safnanna haldlitl- ar og vekja upp spurningar um hvað liggi að baki frekar en að upplýsa um þörf uppskiptingarinnar. Í niðurstöðum starfshóps um safn- amál í Borgarbyggð stendur: „Mögu- leikar til frekari vaxtar í menning- ar og safnastarfsemi í Borgarbyggð eru umtalsverðir að mati vinnuhóps- ins. Eins og fram kemur í skýrslunni byggir núverandi starfsemi á mjög traustum grunni sem áhugavert er að vinna frekar með.“ Þessu er ég hjartanlega sammála og hvet eindregið til þess að söfnun- um verði haldið saman eins og verið hefur og bætt úr húsnæðisþörf þeirra. Öflugt samfélag þarf öfluga miðlæga þjónustu í sem víðasta skilningi, þar má nefna heilsugæslu, skólaþjón- ustu, greiðan aðgang að opinberum stofnunum svo sem skrifstofu sveit- arstjórnar, löggæslu, félagsþjón- ustu, þjónustu við aldraða og síðast en ekki síst að menningarþjónustu, bókasafni, skjalasafni og sýningar- haldi ýmiss konar. Því öflugri sem þessi miðlæga þjónusta er því öflugra verður samfélagið sem heild og þar er menningarstarfsemi afar mikil- vægur hluti. Ég hvet sveitarstjórnarmenn til að standa saman að því að efla Safna- hús Borgarfjarðar sem sjálfstæða heildstæða einingu í Borgarnesi, það verður þegar upp er staðið öllu sam- félaginu til heilla. Reykjavík 23. febrúar 2018, Guðmundur Guðmarsson F.v. forstöðumaður Safnahúss Borgarfjarðar Safnamál í Borgarbyggð Pennagrein Guðmundur Guðmarsson greinarhöfundur og Bjarni Bachmann að störfum á safninu. Hér eru þeir að setja upp sýningu á eggja- og skeljasafni í eigu Nátt- úrugripasafns Borgarfjarðar. Náttúrugripasafn Borgarfjarðar varð til fyrir áhuga Bjarna Bachmanns og fleiri.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.