Skessuhorn - 04.04.2018, Page 1
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 14. tbl. 21. árg. 4. apíl 2018 - kr. 750 í lausasölu
Lúsina burt!
Augndropar!
STYÐJUM
FRAMLEIÐSLU Á
VESTURLANDI
OPIÐ DAGLEGA
12-17
Ljómalind Sveitamarkaður, Brúartorgi 4, Borgarnesi.
Sími 437-1400. Netfang: ljomalind@ljomalind.is
STYÐJUM
FRAMLEIÐSLU Á
VESTURLANDI
OPIÐ DAGLEGA
12-17
Ljómalind Sveitamarkaður, Brúartorgi 4, Borgarnesi.
Sími 437-1400. Netfang: ljomalind@ljomalind.is
Opið
daglega
12-17
Framtíðarreikningur
-í fullu gildi í framtíðinni
Með því að leggja fermingarpeningana inn á
Framtíðarreikning auðveldar þú þér að láta
framtíðardraumana rætast.
Ef ��.��� kr. eru lagðar inn á Framtíðarreikning
leggjum við �.��� kr. á móti.
20 ÁR
Víðast hvar á Vesturlandi gerði sannkallað páskahret. Mest snjóaði á Snæfellsnesi, Dölum og í uppsveitum Borgarfjarðar. Færð spilltist af þessum sökum og kafaldsbyl
gerði um tíma á Snæfellsnesi og á fjallvegum, svo sem á Bröttubrekku og Holtavörðuheiði. Á páskadag má rekja óhöpp í umferðinni til krapa á vegum með tilheyrandi
hálku. Meðfylgjandi mynd var tekin á páskadag í Ólafsvík. Ljósm. af.
Sterkar vísbendingar eru um að
fíkniefnaneysla sé að aukast á
Akranesi og reyndar einnig víðar
um umdæmi lögreglunnar á Vest-
urlandi. „Við höfum áhyggjur af
þessari þróun. Hér eru að finnast
tæki og tól til fíkniefnaneyslu út
um allar koppagrundir; á leikskóla-
lóðum, við grunnskólana, á fáförn-
um bílastæðum og víða á afskekkt-
um stöðum þar sem fíkniefnaneyt-
endur leita sér skjóls til neyslu og/
eða sölu. Tölfræðin í fjölda mála
bendir í sömu átt um að neysla sé
að aukast,“ segir Jónas H Ottós-
son hjá rannsóknadeild Lögregl-
unnar á Vesturlandi í samtali við
Skessuhorn. Á tímabilinu 1. janúar
til 3. apríl sl. hefur lögreglan stað-
fest 16 tilfelli á Vesturlandi þar sem
ökumenn hafa verið undir áhrifum
fíkniefna við akstur. Á sama tíma-
bili 2017 voru málin sjö talsins og
hefur því meira en tvöfaldast milli
ára.
Jónas segir að lögregla hafi tek-
ið ákvörðun um aukið umferðar-
eftirlit um mitt síðasta ár. Emb-
ættið hefur nú fengið til notkun-
ar svokölluð stroktest til að mæla
hvort viðkomandi sé undir áhrifum
fíkniefna og auðveldar það störf-
in til muna. Ný stroktest eru auk
þess væntanleg sem mæla fleiri
efni, þar á meðal róandi og slæv-
andi efni, eða svokallað lækna-
dóp. Áður þurfti að láta viðkom-
andi ökumenn pissa í glas til að fá
úr því skorið hvort neysla fíkni-
efna hefði átt sér stað. Ef stroktest
mælist jákvætt er viðkomandi síðan
sendur í blóðprufu til staðfesting-
ar á neyslu. Þessi aðferð lögreglu
til eftirlits var tekin upp á síðasta
ári og jókst verulega málafjöldinn
í kjölfarið. Frá 1. janúar 2017 til 3.
júní sama ár voru staðfest 13 tilfelli
aksturs undir áhrifum fíkniefna, en
málum fjölgaði í kjölfarið verulega
og voru 53 þegar árið 2017 var úti.
Lögreglan telur að neysla fíkni-
efna sé að aukast á Akranesi á nýjan
leik eftir nokkur ár þar sem ástand-
ið var mun skaplegra. „Neysla hef-
ur aldrei hætt alveg, en úr henni dró
verulega fyrir á að giska fimm til sjö
árum síðan. Meðal annars náðum
við að hrekja burtu eða leysa upp
hópa sem stóðu fyrir innflutningi
og sölu fíkniefna hér á svæðinu. En
það koma nýir hópar sem skipu-
leggja flutning efna inn á svæð-
ið. Oft eru þetta neytendur sem
selja efni frá sér til að fjármagna
eigin neyslu. Við höfum áhyggjur
af þessari þróun núna og munum
verða á tánum nú sem hingað til í
eftirliti með fíkniefnaneyslu,“ seg-
ir Jónas H Ottósson. Hann hvetur
íbúa til að láta lögreglu vita í hvert
sinn sem fólk hefur vísbendingar
um neyslu eða sölu ólöglegra efna.
„Almenningur verður að taka þátt
í að uppræta þetta böl sem fíkni-
efnin eru. Í því sambandi þurfa allir
að taka höndum saman; við í lög-
reglunni, stofnanir bæjarins og al-
mennir borgarar. Þetta er verkefni
samfélagsins alls að uppræta,“ seg-
ir Jónas og bendir að endingu á að
hægt er að senda lögreglu ábend-
ingar á Facebook á „Lögreglan á
Vesturlandi“.
mm
Fíkniefnaneysla að aukast á Akranesi og í nágrenni
Fíkniefni og tæki til neyslu hafa
fundist að undanförnu á nokkrum
stöðum. Þessi poki með kannabisefni
fannst á mánudaginn á bílastæði við
skógræktina við Klapparholt.