Skessuhorn - 18.04.2018, Blaðsíða 1
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 16. tbl. 21. árg. 18. apíl 2018 - kr. 750 í lausasölu
Lúsina burt!
Augndropar!
STYÐJUM
FRAMLEIÐSLU Á
VESTURLANDI
OPIÐ DAGLEGA
12-17
Ljómalind Sveitamarkaður, Brúartorgi 4, Borgarnesi.
Sími 437-1400. Netfang: ljomalind@ljomalind.is
Verðum
5 ára
í maí
Opið daglega
12:00-17:00
frá 1. maí 10:00-18:00
Framtíðarreikningur
-í fullu gildi í framtíðinni
Með því að leggja fermingarpeningana inn á
Framtíðarreikning auðveldar þú þér að láta
framtíðardraumana rætast.
Ef ��.��� kr. eru lagðar inn á Framtíðarreikning
leggjum við �.��� kr. á móti.
20 ÁR
Lóan er komin, þessi boðberi sumars og hlýnandi veðurs, mætti á Vesturlandið í liðinni viku. Myndin er tekin á Mýrunum
síðastliðinn föstudag. Ljósm. Sólveig Jóna Jóhannsdóttir.
Gleðilegt sumar!
Eftir tveggja ára hlé er útlit fyrir
að hvalveiðar hjá Hvali hf. hefj-
ist að nýju frá Hvalfirði í sum-
ar. Frá því var greint í Morgun-
blaðinu í gær að stefnt sé að veið-
ar hefjist 10. júní. Leyfi er til veiða
á 161 langreyði á þessari vertíð en
auk þess má nota hluta af ónýttum
kvóta síðasta árs. Megnið af hvala-
afurðum undanfarinna vertíða hafa
verið seldar til Japan. Hvalur hf.
hefur nú í samstarfi við Nýsköp-
unarmiðstöð Íslands og Háskóla
Íslands unnið að þróun á járnríku
fæðubótarefni úr hvalkjöti. Við
slíka vinnslu verður kjötið frost-
þurrkað og malað. Slík vinnsla
krefst mikilla rannsókna og dýrs
tækjabúnaðar. Afurðin mun nýt-
ast fólki sem þjáist af blóðleysi og
eru miklar vonir bundnar við þessa
nýjung við sölu hvalaafurða. Þá er
einnig unnið að þróun gelatíns úr
beinum og hvalspiki til lækninga
og í matvæli. mm
Stefnt að
hvalveiðum
í sumar
Hvalur flensaður í Hvalstöðinni. T.v.
glittir í Kristján Loftsson forstjóra.
Ljósm. úr safni Skessuhorns.
Guðný Baldvinsdóttir frá Grenj-
um á Mýrum verður 104 ára í dag,
18. apríl. Hún er við góða heilsu og
líklega sá íbúi í Brákarhlíð sem fer
reglulegast út til hreyfingar og til að
njóta hreina loftsins. Jónas Ragnars-
son, sem heldur úti vefnum Lang-
lífi, segir í samtali við Skessuhorn
að enginn íbúi Borgarness hafi orð-
ið eldri en Guðný. Næsthæstum
aldri náði Herdís Einarsdóttir, sem
dó árið 1965. Herdís lifði í 103 ár
og 152 daga. Aðeins einn Borgfirð-
ingur hefur orðið eldri en Guðný
frá Grenjum. Það var Þórdís Þor-
kelsdóttir, Skagfirðingur að upp-
runa sem lengstum bjó í Fljótum, en
flutti í Flókadal í Borgarfirði á efri
árum þar sem hún bjó í skjóli dætra
sinna sem þar bjuggu. Þórdís var
105 ára og 105 daga þegar hún lést,
snemma árs 2001. mm
Guðný er 104 ára í dag
Guðný Baldvinsdóttir er hér á basar íbúa á Brákarhlíð í nóvember á síðasta ári.
Þar voru prjónaðir tvíþumla vettlingar eftir hana til sölu.
HVALFJ: Hvalfjarðargöng verða
lokuð fimm nætur í næstu viku
vegna viðhalds og þrifa. Lok-
að verður á miðnætti til klukkan 6
að morgni aðfararnótt mánudags-
ins 23. apríl til og með aðfararnótt
föstudagsins 27. apríl. -mm
Næturlokun í
næstu viku