Skessuhorn - 18.04.2018, Blaðsíða 19
MIÐVIKUDAGUR 18. ApRÍL 2018 19
Hvalfjarðarsveit óskar íbúum Hvalfjarðarsveitar
og Vestlendingum gleðilegs sumars.
Reykhólahreppur óskar íbúum
og Vestlendingum öllum
gleðilegs sumars
Grundararðarbær óskar íbúum Grundararðar
og öðrum Vestlendingum gleðilegs sumars
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
8
Laust starf skrifstofumanns
Embætti Sýslumannsins á Vesturlandi auglýsir laust
til umsóknar 50% starf skrifstofumanns á skrifstofu
embættisins á Akranesi. Umsóknarfrestur er til 27. apríl nk.
og þarf starfsmaðurinn að hefja störf sem fyrst í maí nk.
Starfið felst í að vinna öll almenn skrifstofustörf við
embættið svo sem afgreiðslu viðskiptavina, skírteinaútgáfu,
símaþjónustu við viðskiptavini, móttöku gagna, skráningu,
skjalavistun, veita almennar upplýsingar og sinna öðrum
verkefnum sem starfsmanni verða falin.
Starfið krefst lipurðar í samskiptum, nákvæmni í
vinnubrögðum, sveigjanleika og frumkvæðis. Vegna
eðlis starfsins er gerð krafa um þjónustulund, góða
íslenskukunnáttu og góða hæfni í mannlegum samskiptum.
Starfsstöð viðkomandi starfsmanns verður á skrifstofu
embættisins að Stillholti 16-18, Akranesi. Starfshlutfall
er 50% og vinnutími er á opnunartíma skrifstofunnar
sem er frá 10:00 til 15:00. Æskilegt er að umsækjandi
hafi lokið menntun sem nýtist í starfi, eða hafi reynslu af
skrifstofustörfum og tölvuvinnslu. Launakjör eru í samræmi
við kjarasamning fjármálaráðuneytisins við opinbera
starfsmenn (SFR).
Umsóknir skulu berast skriflega (engin eyðublöð)
á skrifstofu embættisins að Stillholti 16-18, 300 Akranesi,
eða á netfangið dadey@syslumenn.is. Upplýsingar
um stöðuna veitir Daðey Þóra Ólafsdóttir, sviðsstjóri
þjónustusviðs, í síma 458-2300.
Öllum umsóknum verður svarað þegar
ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.
Fréttaveita Vesturlands
www.skessuhorn.is
Leikfélagið Grímnir í Stykkishólmi
frumsýndi á föstudagskvöld gaman-
leikinn Maður í mislitum sokkum,
eftir Arnmund S. Backman. Sýnt er í
sal Tónlistarskólans í Stykkishólmi.
Maður í mislitum sokkum fjallar
um Steindóru og vini hennar. Stein-
dóra er ósköp ljúf ekkja en þykir hálf
taugaveikluð, tepruleg en góðleg
kona sem hefur áhyggjur af almenn-
ingsálitinu. Eftir ferð í matvörubúð-
ina dagar uppi hjá henni minnislaus
maður sem ratar ekki heim.
Leikstjórn er í höndum Bjarka
Hjörleifssonar og leikendur eru Jó-
hanna Hjaltalín, Almar Þór Jónsson,
Jón G. Breiðfjörð Álfgeirsson, Björg
Brimrún Sigurðardóttir, Baldvin
Mattes, Salvör Mist Sigurðardóttir,
Heiðrún Edda pálsdóttir, Birta Sig-
þórsdóttir og Viktoría Huld Ragn-
arsdóttir.
Leikarahópurinn er ungur og tekst
vel að koma efninu til skila. Jóhanna,
sem leikur Steindóru og Almar Þór,
sem leikur Guðjón, eru hryggjar-
stykkið í verkinu með góðum stuðn-
ingi annarra leikara. Jón Grétar,
Björg og Salvör leika skemmtileg-
ar týpur sem gera Mann í mislitum
sokkum að hinni bestu skemmtun.
Leikunnendum er bent á að sjötta
sýning verksins verður í kvöld, mið-
vikudaginn 18. apríl kl. 20:00. Næst
verður sýnt á föstudag kl. 21:00, þá
á laugardag kl. 20:30 og lokasýning
verður sunudaginn 22. apríl kl. 16:00.
Miðasala er hjá Hafrúnu Bylgju
Guðmundsdóttur í síma 863-0078,
eftir kl. 16:00 virka daga. sá
Maður í mislitum sokkum
er hin besta skemmtun
Nemendur í 6. bekk Grunnskóla
Snæfellsbæjar ætla svo sannar-
lega að láta til sín taka í umhverf-
ismálum. Ætla þeir að hafa áhrif
með plastrannsóknum, plast-
lausum áskorunum og hreinsun-
um, en Grunnskóli Snæfellsbæj-
ar er í samstarfi við Landvernd
um að vinna að þróunarverkefni
sem heitir Hreint haf - Ungt fólk
á móti plasti. Stefnt er að því að
út komi námsefni fyrir grunnskóla
um þetta efni að ári liðnu. Það
er Margrét Hugadóttir verkefna-
stjóri hjá Skólum á grænni grein
og sérfræðingur hjá Landvernd
sem heldur utan um verkefnið og
heimsótti hún krakkana í bekkn-
um á dögunum til að fylgja verk-
efninu eftir. þa
Þróunarverkefnið Hreint
haf í Grunnskóla Snæfellsbæjar