Skessuhorn


Skessuhorn - 02.05.2018, Blaðsíða 11

Skessuhorn - 02.05.2018, Blaðsíða 11
MIÐVIKUDAGUR 2. MAÍ 2018 11 Síðastliðinn föstudag var tekin fyrsta skóflustunga að þúsund fer- metra þjónustumiðstöð í Borg- arnesi þar sem fyrirhugað er að verði til húsa verslanir og veit- ingahús. Húsið verður reist á lóð- inni Digranesgötu 4, á milli húsa Bónuss og Arionbanka næst þjóð- veginum þegar ekið er inn í bæinn að sunnan. Það er Borgarland ehf. sem byggir með tilstyrk Kaup- félags Borgarfirðinga en kaup- félagið á eins og kunnugt er allt hlutafé í fyrirtækinu. Í máli Guð- steins Einarssonar kaupfélags- stjóra og framkvæmdastjóra Borg- arlands kom fram að þetta verkefni markaði tímamót því það verður fyrsta stóra framkvæmdin sem fé- lögin ráðast í eftir hrun. Húsin á lóðinni verða tvö. Í þessum fyrri áfanga verður stærra húsið byggt, en það verður rúmir þúsund fer- metrar. Seinna húsið verður um 700 fermetrar. Lóðaframvæmd- ir fara þó fram í þessum áfanga vegna beggja húsanna. Jarðvegsframkvæmdir og bygg- ingin sjálf verður alfarið í höndum heimafólks. Borgarverk annast alla jarðvinnu og lóðafrágang, Tré- smiðja Eiríks J Ingólfssonar er að- alverktaki við bygginguna en ein- ingar í húsið koma frá Límtré Vír- neti. Reist verður límtréshús og eru áætluð verklok 1. mars 2019. Þá á húsið að vera nánast fullbú- ið til þeirrar starfsemi sem í því verður. Samkvæmt arkitektateikn- ingum verður stór veitingastaður í húsinu sem og verslun ásamt rúm- góðri hreinlætisaðstöðu. Guð- steinn sagði í samtali við Skessu- horn að þrátt fyrir gríðarlega fjölgun ferðafólks á Vesturlandi, og ekki hvað síst í Borgarnesi, hafi til þess að gera lítið bæst við af þjónusturými á liðnum árum. „Við sjáum sóknarfæri í þessari gegn- umstreymis þjónustu og staðsetn- ing verslunar og veitingasölu á þessum stað styrki þá trú okkar að fjárfestingin verði góð. Við ætlum engu að síður að leggja áherslu á að byggja hagkvæmt. Húsið verð- ur á einni hæð og aðgengi verður eins og best verður á kosið,“ segir Guðsteinn. Hönnuður hússins er Batteríið, en um verkfræðihönnun sá Verkís. mm Hyrjarhöfði 8 110 Reykjavík sími: 577-1090 Við Önnumst Skóflustunga tekin að nýrri þjónustumiðstöð í Borgarnesi Skóflustunga tekin að nýju þúsund fermetra húsi á lóðinni Digranesgötu 4. Að lokinn skóflustungu var tími fyrir myndatöku. F.v. Guðrún Sigurjónsdóttir stjórnarformaður KB, Eiríkur J Ingólfsson byggingaverktaki, Margrét Guðnadóttir verslunarstjóri og Guðsteinn Einarsson kaupfélagsstjóri. Guðrún Sigurjónsdóttir á Glitstöðum, stjórnarformaður KB, tók fyrstu skóflu- stunguna að fyrra húsinu af tveimur sem reist verða á lóðinni. Hér er hún við stjórnvölinn í gröfu frá Borgarverki. Guðsteinn ávarpaði gesti og sagði frá verkefninu. Hér má sjá teikningu af austur og norður hlið hússins.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.