Skessuhorn - 23.05.2018, Side 1
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 21. tbl. 21. árg. 23. maí 2018 - kr. 750 í lausasölu
Framtíðarreikningur
-í fullu gildi í framtíðinni
Með því að leggja fermingarpeningana inn á
Framtíðarreikning auðveldar þú þér að láta
framtíðardraumana rætast.
Ef ��.��� kr. eru lagðar inn á Framtíðarreikning
leggjum við �.��� kr. á móti.
20 ÁR
Vinsæl vara við
tíðum þvaglátum
ÞÚ FERÐ LENGRA MEÐ
SAGAPRO
Lúsina burt!
Augndropar!
Það var vel sporrækt þegar Þórhildur Þorsteinsdóttir bóndi á Brekku í Norðurárdal hélt af stað á morgunvaktina í fjárhúsunum sínum klukkan fimm síðastliðinn
mánudagsmorgun. Tíðarfarið það sem af er maímánuði hefur verið afleitt einkum fyrir sauðfjárbændur sem verða að halda fénu á húsi meðan lítill hiti er og úrkomu-
samt. Á Brekku er úrkomumælir. Hann sýnir einn úrkomulausan dag í maí og ekki er útlit fyrir að þeir verði fleiri ef marka má veðurspár. Ljósm. þþ.
Komnar eru upp deilur í kjölfar lýs-
ingar Akraneskaupstaðar á væntan-
legu skipulagi við Krókalón á Akra-
nesi. Bréfasendingar í gegnum lög-
fræðinga hafa á undanförnum dögum
gengið manna á millum. Annars vegar
íbúa á svæðinu og hins vegar fyrirtæk-
isins Skagans 3X sem sækir um stækk-
un athafnasvæðis með landfyllingu.
Í aðsendri grein í blaðinu í dag, sem
Ingólfur Árnason framkvæmdastjóri
Skagans 3X skrifar, er sagt frá bréfi
sem lögfræðingur fyrirtækisins sendi
fjórum nafngreindum einstaklingum
sem búa við Krókatún og Vesturgötu.
Í því er sagt að röngum fullyrðingum
hafi verið haldið á lofti um meint lög-
brot Skagans 3X og fjallað m.a. um
landfyllingu sem gerð var 2012. Setur
lögfræðingur Skagans 3X fram kröfu
um að tiltekin ummæli sem fallið hafa í
ræðu og riti verði dregin til baka. Fjór-
menningarnir sem hlut eiga að máli
hafa samkvæmt heimildum Skessu-
horns svarað bréfi lögfræðings Skag-
ans 3X. Ritstjórn vill taka það fram að
fulltrúa fjórmenninganna var boðið
að birta svar lögfræðings þeirra hér í
blaðinu í dag samhliða birtingu grein-
ar Ingólfs, en það var ekki þegið.
Sjá nánar bls. 32.
Deilur vegna
skipulags
Margir óttast að kjörsókn í sveit-
arstjórnarkosningunum næsta
laugardag verði dræm. Blaðamenn
Skessuhorns hafa að undanförnu
rætt við fjölmarga frambjóðendur
á Vesturlandi og taka margir und-
ir þessar áhyggjur, en hvetja fólk
til að nýta stjórnarskrárvarinn rétt
sinn til áhrifa og mæta á kjörstað.
Þó segja þeir að áhugi almenn-
ings fyrir kosningunum þeirra hafi
aukist nú á allra síðustu dögum.
Kosningaþátttaka í sveitar-
stjórnarkosningum jókst frá 1950
til 1974 en hefur minnkað sam-
fellt frá árinu 2002. Hina auknu
þátttöku á sjötta og sjöunda ára-
tug 20. aldar má að mestu skýra
með dræmri kosningaþátttöku í
sveitahreppum fyrst í stað sem
smám saman jókst án þess þó að
ná sambærilegu hlutfalli og hún
var í kaupstöðum og svokölluð-
um kauptúnahreppum þess tíma.
Í samantekt Hagstofunnar kemur
fram að í sveitarstjórnarkosning-
um var þátttakan mest árið 1974
þegar hún var 87,8%. Til saman-
burðar má nefna að í alþingiskosn-
ingum var mest kosningaþátttaka
árið 1956, eða 92,1%, og við for-
setakjör árið 1968 var hún 92,2%.
Dræmust var kosningaþátttaka í
sveitarstjórnarkosningum síðast,
árið 2014, þegar hún var einungis
66,5%.
Í Skessuhorni í dag er ítar-
lega fjallað um kosningarnar sem
í hönd fara. Blaðið er stækkað til
að rúma fjölda aðsendra greina og
þá er rætt við fulltrúa 18 flokka
sem bjóða fram lista í sex sveitar-
félögum á Vesturlandi, þ.e. Akra-
nesi, Borgarbyggð, Hvalfjarðar-
sveit, Snæfellsbæ, Grundarfirði og
Stykkishólmi. Í fámennari sveitar-
félögunum verður persónukjör,
þ.e. í Skorradalshreppi, Helga-
fellssveit, Reykhólahreppi, Eyja-
og Miklaholtshreppi og Dala-
byggð.
mm
Sveitarstjórnarkosningar
verða á laugardaginn
Hlutfallslega versta kjörsókn frá því mælingar hófust var í kosningunum 2014.
Samfelld fækkun hefur verið frá 2002.