Skessuhorn - 13.06.2018, Qupperneq 2
MIÐVIKUDAGUR 13. JÚNÍ 20182
Það er stór helgi framundan sem margir
Íslendingar hafa eflaust beðið eftir. Ann-
ars vegar spila Íslendingar sinn fyrsta
leik á Heimsmeistaramóti karla í knatt-
spyrnu á laugardaginn. Hins vegar er
þjóðhátíðardagur okkar Íslendinga á
sunnudaginn og af því tilefni er við hæfi
að draga fram þjóðbúninginn, nú eða
landsliðsbúninginn, og halda af stað í
skrúðgöngu.
Á morgun fimmtudag er spáð norð-
austanátt 8-13 m/s og súld eða rign-
ing á Norður- og Austurlandi. Hægari
norðlæg átt og úrkomuminna í öðr-
um landshlutum og hiti 5-15 stig, hlýj-
ast á Suðausturlandi. Á föstudag er gert
ráð fyrir norðlægri átt, víða 3-8 m/s og
skýjað en þurrt að kalla norðanlands.
Gert er ráð fyrir austlægri átt og dálítilli
vætu um sunnanvert landið. Hiti 2-10
stig, hlýjast syðst. Gert er ráð fyrir Hægri
suðlægri eða breytilegri átt og vætu í
flestum landshlutum á laugardaginn.
Heldur hlýnandi veður. Á sunnudaginn
er spáð suðaustanátt og rigningu með
köflum á Suður- og Vesturlandi en skýj-
að og þurrt á norðaustanverðu landinu.
Hiti 8-13 stig. Á mánudag er spáð norð-
lægri eða breytilegri átt og rigningu eða
súld með köflum í flestum landshlutum
og það kólnar heldur.
Í síðustu viku var spurt á vef Skessu-
horns „Hver er hinn sanni sumarilmur?“
Lyktin af nýslegnu grasi sigraði með yf-
irburðum og er það hinn sanni sumar-
ilmur að mati 69% svarenda. 14% sögðu
það vera lyktina sem kemur í hægviðri
eftir úrkomu. 6% sögðu „grilllykt“ og 5%
sögðu það vera blómaangan. Fæstir,
eða 4% svarenda, sögðu lyktina af sólar-
vörn vera hinn sanna sumarlykt.
Í næstu viku er spurt:
Hversu langt kemst landsliðið á
HM karla í knattspyrnu?
Þórunn Birna Guðmundsdóttir á Akra-
nesi tók það skref að leiðrétta kyn sitt
og segir frá því í blaði vikunnar. Þór-
unn Birna er Vestlendingur vikunnar að
þessu sinni.
Spurning
vikunnar
Til minnis
Veðurhorfur
Vestlendingur
vikunnar
ALLT FYRIR ATVINNUMANNINN
MHG Verslun ehf | Akralind 4 | 201 Kópavogi | Sími 544-4656 | www.mhg.is
Ársskýrsla Heilbrigðisstofnun Vest-
urlands fyrir árið 2017 var birt á
vefsíðu stofnunarinnar um mánaða-
mótin. Í skýrslunni má finna upp-
lýsingar um helstu þætti starfsem-
innar en það sem einkennir skýrsl-
una er fjármagnsskortur til stofn-
„Stofnunin hefur verið í svelti“
Brýn þörf á endurnýjun tækja fyrir 150 milljónir
unarinnar og nauðsyn á uppfærslu
tækjabúnaðar.
Brýnt að endurnýja
næstu árin
Jóhanna Fjóla Jóhannesdóttir hef-
ur starfað sem forstjóri HVE síð-
an í febrúar á síðasta ári. Hún seg-
ir starfsemina hafi gengið að mestu
vel síðasta árið en þó mætti ganga
betur. „Með samstilltu átaki stjórn-
enda og starfsmanna tókst að halda
rekstrinum nokkurn veginn innan
fjárheimilda. Ljóst er að ekki verð-
ur gengið lengra í hagræðingar-
aðgerðum án þess að skerða þjón-
ustu og hafa stjórnendur bent á það
undanfarin ár að fjármagn skorti
til rekstursins miðað við umfang
og verkefni.“ Jóhanna Fjóla bind-
ur jafnframt vonir að heilbrigðis-
mál verði sett í enn frekari forgang.
„Stofnunin hefur verið í svelti varð-
andi framlög til endurnýjunar tækja
og búnaðar í mörg ár. Fyrirliggjandi
er tækjalisti upp á um 150 milljón-
ir króna sem brýnt er að endurnýja
á næstu þremur árum. Það er sóun
á fjármunum þegar stofnanir þurfa
að setja háar fjárhæðir í viðgerðir
á gömlum tækjum til þess eins að
lengja líf þeirra um einhver misseri
vegna þess að ekki er til fé til að við-
halda eðlilegri endurnýjun tækja,“
segir forstjórinn í ársskýrslunni.
Neikvæð
rekstrarniðurstaða
Í skýrslunni segir að ljóst hafi ver-
ið við gerð rekstraráætlunar fyr-
ir árið 2017 að það yrði lítið rými
fyrir óvænt fjárútlát og stjórnendur
hefðu ekki annan kost en halda að
sér höndum á öllum sviðum eitt árið
enn. Þrengt hafi verið að rekstrinum
síðan 2015 en það ár var reksturinn
á núlli. Í lok árs 2016 var rekstrar-
halli 40 milljónir. Helsta skýring-
in að þessu er að það voru gerðir
nýir kjarasamningar við lækna árinu
áður og því hefur vantað 50 millj-
ónir árlega í rekstrargrunninn.
Þar að auki segir í skýrslunni að
óvæntur kostnaður vegna tíðra bil-
ana í tækjabúnaði sett strik í reikn-
inginn og endurnýja þurfi gömul
tæki sem hrundu. Miklir fjármunir
fari í að gera við gömul tæki til að
lengja líf þeirra, því ekki hafi feng-
ist fjármagn til að viðhalda eðlilegri
endurnýjun tækja. Sífellt erfiðara
verði að finna leiðir til frekari hag-
ræðingar án þess að skerða þjón-
ustu. Niðurstaða ársins sýndi að
rekstrarafkoma af reglulegri starf-
semi var neikvæð um 12 milljónir
króna eða 0,5% af tekjum. Heild-
arfjöldi starfsmanna HVE í árslok
2017 var 422, þar af 337 konur og
85 karlar.
glh/ Ljósm. úr safni.
Verktakafyrirtækið Spennt ehf. í
Reykjavík átti lægsta tilboð í bygg-
ingu fimleikahúss við Vesturgötu á
Akranesi, 607 milljónir króna. Var
tilboð fyrirtækisins 40 milljónum
lægra en næstlægsta boð, að því er
fram kemur í fundargerð skipulags-
og umhverfisráðs Akraneskaup-
staðar. Alls bárust sex tilboð, þau
voru eftirfarandi:
1. Þingvangur ehf., 773.136.873 kr.
2. Munck Íslandi ehf., 658.493.786 kr.
3. Þarfaþing h/f., 737.313.018 kr.
4. Ístak h/f., 647.428.824 kr.
5. Spennt ehf., 607.513.985 kr.
6. Spennt ehf., frávikstilboð kr.
549.673.985 kr.
Skipulags- og umhverfisráð fól
sviðsstjóra að ganga til samninga
við Spennt ehf. um verkið. Fim-
leikahúsið við Vesturgötu á Akra-
nesi verður 1.640 fermetrar að
stærð og sambyggt íþróttahúsinu
sem þar stendur. Stefnt er að því að
verkinu verði að fullu lokið 12. júlí
2019.
kgk
Lægsta boð í fimleikahús var 600 milljónir
Teikning af fyrirhuguðu fimleikahúsi við Vesturgötu á Akranesi, það er til hægri
við íþróttahúsið sem fyrir er.
Fráfarandi bæjarstjórn Snæfells-
bæjar fundaði í síðasta sinn á mið-
vikudaginn var. Þrautreyndir bæj-
arstjórnarfulltrúar láta af störfum
og nýtt fólk kemur inn í þeirra stað,
eins og gengur og gerist. Kristján
Þórðarson á Ölkeldu hættir eft-
ir 16 ára setu í bæjarstjórn, fjög-
ur kjörtímabil og Kristjana Her-
mannsdóttir eftir tólf ár, eða þrjú
kjörtímabil. Kristjana gegndi enn
fremur stöðu forseta bæjarstjórnar
á tímabili og hefur verið formaður
bæjarráðs frá árinu 2010. „Það er
því reynslumikið fólk sem hverf-
ur á braut og kann Snæfellsbær því
bestu þakkir fyrir góð störf,“ segir
á vef Snæfellsbæjar.
Fimmtudaginn 14. júní næstko-
mandi tekur ný bæjarstjórn til star-
fa. Hana skipa núverandi bæjarfull-
trúar Björn Haraldur Hilmarsson,
Fríða Sveinsdóttir, Júníana Björg
Óttarsdóttir, Rögnvaldur Ólafsson
og Svandís Jóna Sigurðarsdóttir,
en Auður Kjartansdóttir og Mi-
chael Gluszuk koma ný inn í bæ-
jarstjórn. Bæjarstjóri verður áfram
Kristinn Jónasson.
kgk
Reynslumikið bæjarstjórn-
arfólk lætur af störfum
Fráfarandi bæjarstjórn Snæfellsbæjar ásamt bæjarstjóra. F.v. í aftari röð eru Kris-
tinn Jónasson bæjarstjóri, Júníana Björg Óttarsdóttir, Fríða Sveinsdóttir, Björn
Haraldur Hilmarsson, Rögnvaldur Ólafsson og Kristján Þórðarson. Fyrir framan
þau standa Kristjana Hermannsdóttir og Svandís Jóna Sigurðardóttir.
Ljósm. snb.is.