Skessuhorn - 13.06.2018, Page 11
MIÐVIKUDAGUR 13. JÚNÍ 2018 11
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
8
Svæðisstjóri Borgarnesi
Vegagerðin auglýsir eftir öflugum einstaklingi til að taka við starfi svæðisstjóra vestursvæðis
Vegagerðarinnar. Vestursvæðið nær yfir Vestfirði og Vesturland, allt frá Hvalfirði að Holtavörðuheiði.
Svæðisstjóri hefur aðsetur í Borgarnesi.
Hlutverk svæðisstjóra hjá Vegagerðinni er að hafa yfirumsjón með starfsemi svæðisins og framkvæmd á stefnu
Vegagerðarinnar þar.
Starfssvið
Æðsti yfirmaður starfsmanna á svæðinu•
Stjórnun á starfsemi og verkefnum svæðis•
Áætlanagerð og fjármál svæðisins•
Yfirumsjón með kaupum á ráðgjöf og útboði •
verka á svæðisvísu
Framkvæmd á viðhaldi og þjónustu vegakerfis •
svæðisins
Samskipti við opinbera aðila og hagsmunaaðila•
Stefnumótun og seta í framkvæmdastjórn•
Menntunar- og hæfniskröfur
Meistarapróf í verkfræði eða sambærileg • menntun
sem nýtist í starfi
Farsæl reynsla af stjórnun•
Þekking og reynsla á sviði mannvirkjagerðar•
Skipulagshæfni, frumkvæði og hæfni til að • vinna
sjálfstætt
Framúrskarandi hæfni í mannlegum • samskiptum
Góð íslensku- og enskukunnátta í rituðu og • töluðu
máli
Vegagerðin er eftirsóknarverður
vinnustaður sem hentar jafnt báðum
kynjum.
Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningi
ríkisins og viðkomandi stéttarfélags.
Umsóknarfrestur er til og með 25. júní 2018.
Umsóknir berist Vegagerðinni á netfangið
starf@vegagerdin.is. Í umsókninni komi fram
persónulegar upplýsingar ásamt upplýsingum
um þá menntun og hæfni sem gerð eru
til starfsins, þar með talið menntunar- og
starfsferilsskrá.
Tekið skal fram að umsóknir geta gilt í sex
mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út.
Nánari upplýsingar um starfið veita
Hreinn Haraldsson vegamálastjóri
eða Sigurbjörg J. Narby Helgadóttir
mannauðsstjóri í síma 522-1000.
Öllum umsóknum verður svarað þegar
ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
HÁÞRÝSTIÞVOTTUR
Allt að 500 bör
sími: 896-5801 • netfang: calli78@outlook.com
Sími: 666 5110
smaprent@smaprent.is
www.smaprent.is Smáprent
Bolir
í mörgum litum
Við hönnum, prentum og
merkjum fyrir þig og þína
Slysavarnardeildin Helga Bárð-
ardóttir í Snæfellsbæ ætlar að
láta steypa styttuna Jöklarar, sem
staðsett er í Sjómannagarðinum
á Hellissandi, í brons. „Þetta er
stytta sem slysavarnardeildin lét
gera árið 1974 til minningar um
fallna sjómenn. Ragnar Kjartans-
son myndhöggvari gerði stytt-
una á sínum tíma úr epoxý og átti
það efni að vera varanlegt, sem nú
hefur komið í ljós að það er ekki,“
segir Albína Helga Gunnarsdóttir,
formaður Slysavarnardeildarinn-
ar Helgu Bárðardóttur, í samtali
við Skessuhorn. Ragnar kom að
Hellissandi og gerði við styttuna
fyrir um 10-15 árum síðan en það
dugði ekki til og styttan er nú orð-
in mjög illa farin. „Það eina sem
gæti bjargað styttunni er að steypa
hana í brons og er staðan nú orð-
in svo slæm að það er annað hvort
að gera þetta núna eða ekki,“ seg-
ir Albína og bætir því við að þetta
hafi staðið til í 25-30 ár. „Þetta er
stytta sem hefur vakið mikla at-
hygli og hefur mikið tilfinninga-
legt gildi fyrir marga. Það er okk-
ur því hjartans mál að geta varð-
veitt hana,“ segir hún.
Að steypa Jöklara í brons kost-
ar skildinginn, en áætlaður kostn-
aður er um sex og hálf milljón
króna. „Við höfum alltaf verið
með bankabók þar sem við söfn-
um pening fyrir Slysavarnardeild-
ina. Nú hefur safnast ágætis upp-
hæð, eða um helmingur af kostn-
aðinum við þetta verkefni,“ segir
Albína. Ekki eru til tæki og tól hér
á landi til verksins og verður stytt-
an því flutt til Þýskalands. „Stytt-
an fer út um miðjan ágúst og verð-
ur því ekki haggað því það þarf að
gera þetta núna til að bjarga henni.
Ef við verðum ekki búin að safna
fyrir þessu veðsetjum við okkur
bara sjálf,“ segir Albína og hlær.
„Ég er annars bjartsýn og hef fulla
trú á að þetta takist, annars hefði
ég aldrei lagt af stað í þetta verk-
efni.“ Verður það Inga S. Ragn-
arsdóttir, myndhöggvari og dóttir
Ragnars Kjartanssonar, sem mun
sjá um verkið.
Þeim sem vilja leggja verk-
efninu lið er bent á bent á reikn-
ing: 0190-15-380046 kennitala:
661090-2009. arg
Styttan Jöklarar, sem staðsett er í sjómannagarðinum á Hellissandi, er orðin ansi illa farin og stendur nú til að steypa hana í
brons til að bjarga henni. Ljósm. fengin af vef Snæfellsbæjar.
Jöklarar verða steyptir í brons