Skessuhorn - 13.06.2018, Page 13
MIÐVIKUDAGUR 13. JÚNÍ 2018 13
Skipulagsauglýsing
Sveitarstjórn Borgarbyggðar hefur á 171. fundi sínum þann 7. júní 2018, samþykkt að
auglýsa eftirfarandi:
Miðnes í Borgarnesi – lýsing vegna breytingar á Aðalskipulagi Borgarbyggðar 2010-2022,
vegna þéttbýlisuppdráttar Borgarness. Í breytingunni felst að nýtingarhlutfall mun breytast á
svæðinu. Málsmeðferð verði samkvæmt 36. grein Skipulagslaga nr. 123/2010.
Iðunnarstaðir í Lundarreykjardal – lýsing vegna breytingará Aðalskipulagi Borgarbyggðar
2010-2022.
Í breytingunni felst að landnotkun svæðis í landi Iðunnarstaða, breytist úr landbúnaði í verslun- og
þjónustu og opið svæði til sérstakra nota. Breytingin tekur til 4,2 ha svæðis, verslunar- og þjónustu-
svæðis 1,6 ha með nýtingarhlutfalli 0,18 og opins svæðis til sérstakra nota 2,6 ha. Málsmeðferð verði
samkvæmt 36. grein skipulagslaga nr. 123/2010. Endanlegri afgreiðslu vísað til sveitarstjórnar.
Litlu-Tunguskógur – lýsing vegna breytingar á deiliskipulagi frístundabyggðar.
Í skipulagstillögunni er 21 frístundahúsalóð ásamt lóð undir dæluhús. Lóðirnar eru breytilegar að
stærð allt frá 2.861 m² upp í 7.226 m². Búið er að velja hverju húsi byggingarreit sem fellur best að
landi og orsakar sem minnsta röskun á gróðri. Með tilkomu nýs frístundasvæðis fylgir ruðningur á
hluta af birkiskógi svæðisins, tæpur 1 hektari að stærð, en ruðningur verður í götustæðum og innan
byggingarreits. Í samráði við Skógrækt ríkisins er gert ráð fyrir jafn stóru svæði til mótvægisaðgerða.
Málsmeðferð verði samkvæmt 43. grein Skipulagslaga nr. 123/2010.
Ábendingar vegna ofangreindra lýsinga skulu vera skriflegar og berast í síðasta lagi miðvikudaginn
6. júlí 2018 í Ráðhús Borgarbyggðar, Borgarbraut 14, 310 Borgarnesi eða á netfangið
borgarbyggd@borgarbyggd.is.
Melabraut, Hvanneyri – tillaga að nýju deiliskipulagi athafnasvæðis.
Um er að ræða nýtt deiliskipulag fyrir athafnasvæði nyrst og austast í útjaðri þéttbýlis á Hvanneyri
í Borgarbyggð. Skipulagssvæðið sem er um 5,7 ha að stærð, afmarkast af beitilandi prestsetursins
Staðarhóls til vesturs, Melabraut til norðurs, Grímarsstaðavegi (nr. 5317) til austurs og beitilandi
Landbúnaðarháskólans til suðurs. Aðkoma er frá Melabraut sem tengist þéttbýli Hvanneyrar til
vesturs og Grímarsstaðavegi til austurs. Gert er ráð fyrir 21 lóð á svæðinu og eru þær á bilinu 1.518
– 2.258 m² að stærð. Tvær lóðir eru þegar byggðar þ.e. við Melabraut 6 og 10. Málsmeðferð verði
samkvæmt 41. grein Skipulagslaga nr. 123/2010. Endanlegri afgreiðslu vísað til sveitarstjórnar.
Skipulagstillaga liggur frammi í Ráðhúsi Borgarbyggðar, Borgarbraut 14 í Borgarnesi frá 15. júní til
27. júlí 2018 og verður einnig aðgengileg á heimasíðu Borgarbyggðar, www.borgarbyggd.is.
Hverjum þeim aðila sem hagsmuna á að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemd við tillöguna.
Athugasemdir og ábendingar skulu vera skriflegar og berast í síðasta lagi 27. júlí 2018 í Ráðhús
Borgarbyggðar, Borgarbraut 14, 310 Borgarnesi eða á netfangið borgarbyggd@borgarbyggd.is.
Fimmtudaginn 21. júní 2018 milli kl 17:00 og 18:00 verður umhverfis- og skipulagssvið Borgar-
byggðar með opið hús í Ráðhúsi Borgarbyggðar, Borgarbraut 14 í Borgarnesi þar sem tillaga að nýju
deiliskipulagi fyrir athafnasvæði við Melabraut verður kynnt sérstaklega þeim sem þess óska.
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
8
Askalind 3 • 201 Kópavogur • Sími: 562 1500 • friform.is
Opið: Mán. - fimmt. kl. 09-18 / Föst. 09-17.
Lokað á laugardögum í sumar.
INNRÉTTINGAR
DANSKAR
Í ÖLL HERBERGI HEIMILISINS
FJÖLBREYTT ÚRVAL AF HURÐUM,
FRAMHLIÐUM, KLÆÐNINGUM OG EININGUM,
GEFA ÞÉR ENDALAUSA MÖGULEIKA Á
AÐ SETJA SAMAN ÞITT EIGIÐ RÝMI.
STERKAR OG GLÆSILEGAR
Sæunn Oddsdóttir á Steinum I í
Stafholtstungum lenti í óskemmti-
legu atviki í síðustu viku þegar
hún gekk fram á hundsbitið lamb
í bæjarhlaðinu. Lambið er með
stórt sár í hnakkanum á bakvið
annað eyrað. Sæunn segir þetta
ekki í fyrsta skipti sem hundur bít-
ur lömbin hennar. „Fyrir tveim-
ur árum síðan saumaði Gunnar
Gauti Gunnarsson dýrlæknir tíu
spor í lamb sem búið var að bíta
eyrað af og hafði einnig verið bit-
ið aftan í læri. Hann sagði mér
að þetta væri bit eftir hund, ekki
tófu. Í fyrra var síðan bitið eyra af
einu lambi,“ segir Sæunn. „Þetta
er því þriðja árið í röð sem hundur
bítur lamb frá mér og ég er orð-
in frekar þreytt á því,“ segir hún
og vill hvetja hundaeigendur til
að hafa auga með hundunum sín-
um og bændur til að vera vakandi
yfir því að þetta geti átt sér stað.
„Ég veit ekki hvaða hundur bítur
lömbin mín og vil því beina því
til hundeigenda að hafa auga með
hundunum sínum og passa upp á
þá. Við berum ábyrgð á hundun-
um sem eigum þá,“ segir Sæunn
að endingu.
kgk
Börn á sumarnámskeiði á Reykhól-
um heimsóttu starfsfólk hrepps-
skrifstofu Reykhólahrepps á dögun-
um og kynntu sér starfsemina þar.
Krakkarnir fengu sér sæti í fundar-
herbergi og blésu til sveitastjórnar-
fundar þar sem mikilvæg mál voru
rædd og margar hugmyndir litu
dagsins ljós. Krakkarnir vildu m.a.
fá aparólu í þorpið, rennibraut í
sundlaugina, fleiri bækur á bóka-
safnið og nýja girðingu og hlið fyrir
leikskólann.
glh
Laugardaginn 16. júní næstkom-
andi verður brautskráning frá Há-
skólanum á Bifröst. Útskrifaðir
verða um 80 nemendur úr grunn-
og meistaranámi, auk nemenda í
Háskólagátt, að því er fram kemur í
tilkynningu frá skólanum.
Vilhjálmur Egilsson, rektor Há-
skólans á Bifröst, mun útskrifa
nemendur ásamt sviðsstjórum.
Tónlistaratriði á útskriftarathöfn-
inni verða í höndum Karlakórsins
Söngbræðra og undirleikara kórs-
ins. Útskriftarathöfnin hefst kl.
10:00 og boðið verður upp á mót-
töku að athöfn lokinni.
kgk/ Ljósm. úr safni.
Útskrifað frá Bifröst
á laugardaginn
Krakkarnir funduðu
um mikilvæg mál
Málin voru afgreidd á lýðræðislegan hátt. Ljósm/ Lovísa Ósk.
Hundsbitið lamb þriðja árið í röð
Lambið er með ljótt sár í hnakkanum á bakvið eyrað. Ljósm. aðsend.