Skessuhorn - 13.06.2018, Blaðsíða 14
MIÐVIKUDAGUR 13. JÚNÍ 201814
Fyrir helgi var Innnesvegur á Akra-
nesi fræstur og var gamla malbikið
endurnýtt á tveimur bæjum í Hval-
fjarðarsveit. Þar var því dreift á inn-
keyrslur bæjanna og jafnað út. Næst
var valtað yfir það og með tímanum
mun það jafna sig og festast bet-
ur saman. Svona malbik hefur ekki
sama burð og það sem notað er á
fjölfarna vegi en dugar vel fyrir inn-
keyrslur, bílastæði eða vegi þar sem
umferð er lítil. arg
Endurnýta malbikið
Þarna er búið að sturta malbikinu sem fræst var af Innnesvegi í innkeyrsluna á
Leirá í Hvalfjarðarsveit. Ljósm. es.
Unnin hefur verið tillaga að úti-
sviði í Hólmgarði í Stykkishólmi
til að nota fyrir tónleikahald og við
ýmis önnur hátíðarhöld í bænum.
Hugmyndin er að byggja nýtt svið
og hellulagt svæði sem mun svo
mynda torg fyrir miðjum garðin-
um. Heildarstærð torgsins er áætl-
uð um 360 fermetrar.
Einar Júlíusson, yfirmaður
tæknisviðs og skipulags- og bygg-
ingarfulltrúi Stykkishólmsbæj-
ar, segir einróm vera um tillög-
una en þó hafi ekkert verið ákveð-
ið um framkvæmdir. „Viðbrögðin
hafa verið góð og jákvæð. Vonandi
verður ný kostnaðaráætlun gerð
þegar ný bæjarstjórn tekur við.
Enn sem komið er þá er ekki búið
að fastsetja neinar framkvæmdir en
það er vissulega brýn nauðsyn fyr-
ir svona torgi hér í Stykkishólmi,“
segir Einar í samtali við Skessu-
horn.
Í tengslum við tillöguna um úti-
svið og torg í Hólmgarði eru jafn-
framt uppi hugmyndir um að setja
á ný upp styttuna af Hafmeyj-
unni, að því er fram kemur á vef
Stykkishólmsbæjar. Sú stytta var
hluti af gosbrunninum sem áður
var í Hólmgarði, eða Kvenfélags-
garðinum eins og hann er einnig
nefndur.
glh
Hugmyndir um útisvið og torg í Hólminum
Séð yfir Hólmgarð í Stykkishólmi. Ljósm. sá.
Mikil hreyfing hefur verið á fast-
eignamarkaði undanfarna mánuði
og að sögn Soffíu Sóleyjar Magnús-
dóttur fasteignasala virðist ekkert lát
á því í fyrirsjáanlegri framtíð. „Það
hefur verið mjög mikið að gera,
eignir eru að fara mjög hratt og það
vantar alltaf fleiri á skrá,“ segir hún.
Soffía hafði aldrei unnið við fast-
eignasölu þegar hún stofnaði Fast-
eignamiðlun Vesturlands fyrir 25
árum, þann 21. maí 1993. Draum-
urinn um að stofna fasteignasölu
hafði þó blundað í henni í nokkurn
tíma. „Það var eitthvað sem kviknaði
innra með mér þegar ég keypti mína
fyrstu fasteign 19 ára gömul og ég
vissi að þetta var eitthvað sem mig
langaði að gera, að selja fasteign-
ir. Ég beið þó í nokkur ár og þegar
tækifærið gafst opnaði ég mína eig-
in fasteignasölu,“ segir Soffía. „Ég
stökk því beint í djúpu laugina og sé
ekki eftir því.“
Fyrst um sinn í fisk-
vinnsluhúsi
Soffía ólst upp á Kalastöðum í Hval-
fjarðarsveit en flutti á Akranes 19 ára
gömul þegar hún keypti sína fyrstu
íbúð við Garðabraut 24. Lengi vel
vann hún við bókhald eða þar til
henni bauðst húsnæði til að opna
fasteignasöluna í litlu skrifstofurými
í fiskvinnsluhúsi við Ægisbraut. „Þar
sem ég hafði ekki mikið milli hand-
anna var þetta mikið lán fyrir mig.
Þetta fór vel af stað og fljótlega flutti
skrifstofan á Kirkjubraut 40 og hef-
ur verið þar síðan.“
Soffía á þrjú börn og eitt þeirra er
Ragnheiður Rún Gísladóttir en hún
starfar einmitt hjá Fasteignamiðlun
Vesturlands. „Ragnheiður útskrif-
aðist sem fasteignasali árið 2009, á
sama tíma og Stefán Bjarki Ólafs-
son, systursonur minn, sem starfar
einnig hjá mér. Við erum bara þrjú
hjá fyrirtækinu svo það er óhætt
að segja að þetta sé fjölskyldufyrir-
tæki,“ segir Soffía og brosir.
Opnaði skrifstofu í
Borgarnesi
„Fyrst þegar ég opnaði Fasteigna-
miðlun Vesturlands langaði mig
að selja fasteignir á öllu Vestur-
landi, svona eins og nafnið gefur til
kynna. Það gekk þó ekki alveg upp.
Fasteignasalinn hefur alltaf þurft að
skoða sjálfur allar eignir sem koma
á sölu og ég gat ekki ferðast reglu-
lega út á Snæfellsnes eða í Dali til
að meta og skoða eignir. Ég byrjaði
því bara hér á Akranesi.“ Í dag hef-
ur Soffía fært út kvíarnar og opnað
skrifstofu í Borgarnesi í vor, auk þess
sem hún er farin að taka á sölu eign-
ir víðar í landshlutanum og í Reykja-
vík. „Aðstæður hafa breyst töluvert
með tilkomu tækninnar og nú á ég
auðveldara með að þjónusta mikið
stærra svæði og opnaði því skrifstofu
í Borgarnesi,“ segir Soffía.
Tippex staðalbúnaður
Tækniframfarir síðustu ára hafa
skipt sköpum í starfi Soffíu. „Þeg-
ar ég var að byrja var ég ekki með
internet hefur og bara tölvu sem ég
gat notað til að skrifa upp texta. Til
að fylla inn í alla samninga og önn-
ur eyðublöð varð ég að nota ritvél
og svo ljósrita. Svo má ekki gleyma
faxinu sáluga. Það var því mikilvægt
að eiga alltaf nóg tippex,“ segir hún
hlæjandi og bendir blaðamanni á
tippex á skrifborðinu. „Það geta þó
enn komið aðstæður þar sem ég þarf
að nota þetta svo ég á þetta alltaf
til,“ bætir hún við.
Fólk í fasteignaleit í dag fer eink-
um á internetið og leitar þar að hús-
næði til að kaupa en þegar Soffía var
að byrja í þessum geira var það ekki
hægt. „Fólk þurfti að koma hingað
á skrifstofuna þar sem ég var með
möppur fullar af söluyfirlitum með
myndum af húsunum. Svo sat fólk
hér hjá mér og skoðaði í leit að rétta
húsnæðinu fyrir sig. Í dag fer þetta
allt fram á netinu og það kemur fyr-
ir að ég hitti jafnvel ekki kaupend-
ur fyrr en við undirskrift kaupsamn-
ings,“ segir hún.
Heldur að verðið
skríði áfram upp
Eins og fyrr segir er fasteignamark-
aðurinn á mikilli hreyfingu þessa
dagana og Soffía segist vona að
markaðurinn fari að finna jafnvægi.
„Það er sorglegt að sjá að ungt fólk
er ekki að komast inn á markaðinn
því verð er of hátt. Það þurfa allir
þak yfir höfuðið. Þetta snýst jú um
framboð og eftirspurn og á meðan
eftirspurnin er meiri en framboð-
ið þá heldur verðið áfram að skríða
upp. Vissulega eru aðstæður tölu-
vert betri hér fyrir fyrstu kaup en
á höfuðborgarsvæðinu en verðið á
Akranesi og Borgarnesi er þó búið
að hækka töluvert undanfarið,“ seg-
ir Soffía og heldur áfram. „Á Akra-
nesi er t.d mikið framundan í ný-
byggingum sem ættu að hafa ein-
hver áhrif á markaðinn. Í Borgar-
nesi virðist vera sú staða uppi að
þörf sé fyrir fleiri nýbyggingar til að
koma meiri hreyfingu á markaðinn
þar. En allavega er bjart framundan
á fasteignamarkaðnum,“ segir Soffía
að endingu.
arg
„Það þurfa allir þak yfir höfuðið“
Rætt við Soffíu Sóleyju Magnúsdóttur fasteignasala
Fasteignamiðlun Vesturlands er fjölskyldufyrirtæki í eigu Soffíu Sóleyjar Magnúsdóttur. Hjá Soffíu starfa dóttir hennar og
systursonur. Frá vinstri: Stefán Bjarki Ólafsson, Soffía Sóley Magnúsdóttir og Ragnheiður Rún Gísladóttir. Ljósm. aðsend.
Fasteigamiðlun Vesturlands hefur verið starfrækt á Akranesi í 25 ár. Ljósm. úr
safni.
Fyrr á þessu ári opnaði Soffía Sóley Magnúsdóttir eigandi Fasteignamiðlunar
Vesturlands útibú í Borgarnesi. Ljósm. úr safni.