Skessuhorn - 13.06.2018, Blaðsíða 17
MIÐVIKUDAGUR 13. JÚNÍ 2018 17
hefði hún átt að fá nafnið Þórunn,
eftir ömmu sinni. Þórunn ákvað að
virða það og valdi sér nafnið Þórunn
en bætti Birna við út í loftið. „Mér
fannst það bara hljóma vel saman.“
Ferlið við nafnbreytinguna var ekki
auðvelt. „Ég þurfti að fá alls konar
leyfi til að breyta um nafn. Ég var
send á milli alls konar stofnana til
að fá pappíra sem ég þurfti svo að
skila til landlæknis og hann gaf svo
leyfi fyrir nafnbreytingunni.“ Þór-
unn gekk svo inn á Þjóðskrá með
pappírana til að breyta nafn sínu og
kyni í opinberum skjölum. Svo lán-
samlega vildi til að starfsmaðurinn
sem sér um þessar breytingar var
verkefnalaus þennan föstudagseft-
irmiðdag og því tók breytingin ekki
nema klukkutíma. „Ég fór inn sem
karlmaður en út sem kona og þetta
var alveg dásamlegt.“ klj
Á heimili Þórunnar kennir ýmissa grasa af alls kyns handverki.
Menntavísindasvið Háskóla Ís-
lands veitti á dögunum fimm
kennurum viðurkenningar fyr-
ir framúrskarandi störf. Þar í hópi
var Sigríður Ása Bjarnadóttir, leik-
skólakennari á Teigaseli á Akra-
nesi. „Ég var mjög hissa og átti alls
ekki von á þessu, þannig þetta kom
mér skemmtilega á óvart og mik-
ill heiður að fá þessa viðurkenn-
ingu,“ segir Sigríður Ása um við-
brögð sín.
Menntavísindasvið HÍ stóð fyr-
ir kynningarátakinu „Hafðu áhrif“
þar sem almenningur gat tilnefnt
eftirminnilega kennara. Markmið
átaksins var að vekja athygli þjóð-
arinnar á kennarastarfinu. Er þetta
þriðja árið í röð sem þessi verð-
laun eru veitt. „Þetta var hátíðleg
athöfn og gaman að fá að taka þátt
í henni. Ég er virkilega ánægð og
stolt af þessu. Því miður er allt-
of oft bara tekið eftir því sem fer
miður og því nauðsynlegt að hafa
viðurkenningar eins og þessar til
að minna á hvað margt gott er að
gerast í kringum okkur.“
Starfað á
Teigaseli í 20 ár
Í haust fagnar Sigríður Ásta 20 ára
starfsafmæli á Teigaseli og henni
þykir alltaf jafn gaman að mæta
til vinnu. „Ég byrjaði hjá Teigaseli
þegar leikskólinn hóf starfsemi,
þannig að ég hef verið þar frá upp-
hafi. Þetta er afskaplega fjölbreytt
og gefandi starf og enginn dagur
eins. Þetta er lifandi vinna, allt-
af koma ný börn og nýir foreldrar
og ég hef unnið með svo mörgu og
dásamlegu fólki í gegnum árin. Ég
hef ekki enn fundið þörf fyrir að
prófa eitthvað annað, þetta er al-
veg yndislegur staður að vinna á.“
Sem leikskólakennari leggur
Sigríður mikla áherslu á að börnin
verði örugg með sig og njóti þess
að vera til. „Það er mitt hlutverk
að skapa öruggt, hlýlegt og náms-
hvetjandi umhverfi þar sem hvert
barn getur dafnað á sínum for-
sendum,“ segir hún. Það er erf-
itt að velja eitthvað eitt uppáhalds
þegar kemur að leikskólastörfum
en Sigríður segir að samskiptin við
börnin séu eitt af því skemmtilega
við starfið. „Þetta eru yndislegar
manneskjur sem gefa lífinu lit,“
segir Sigríður að lokum um krakk-
ana á Teigaseli. glh
Hlaut viðurkenningu fyrir
framúrskarandi störf
Sigríður Ása við leikskólann Teigasel.
Verðlaunahafar ásamt menntamálaráðherra og fulltrúum í dómnefnd HÍ. Ljósm. Kristinn Ingvarsson.
www.skessuhorn.is