Skessuhorn - 13.06.2018, Síða 26
MIÐVIKUDAGUR 13. JÚNÍ 201826
MT: Stefán Gísli með verðlauna-
gripinn síðastliðinn sunnudag.
„Hvað er skemmtilegast
við sumarið?“
Spurni g
vikunnar
Sigþrúður Jóhannsdóttir:
„Gróðurinn og birtan.“
Sigríður Ólöf Valdimarsdóttir:
„Útilegur og gott veður.“
Ragnheiður Þ. Benediktsdóttir:
„Veðrið, þegar það er gott.“
Sigurlaug Inga Árnadóttir:
„Góða veðrið.“
Grímur Björnsson:
„Ferðast eitthvert á hjólhýsinu
mínu.“
(spurt á Akranesi)
Ólafsvíkingar lyftu sér upp í fjórða
sæti 1. deildar karla í knattspyrnu
eftir 3-1 útisigur á Þrótti R. á
föstudagskvöld.
Þróttarar fengu óskabyrjun því
Hreinn Ingi Örnólfsson kom þeim
yfir strax á sjöttu mínútu. Horn-
spyrna var skölluð þvert fyrir
markið þar sem Hreinn var réttur
maður á réttum stað og átti ekki
í vandræðum að skora með við-
stöðulausu skoti.
Leikmenn Víkings Ó. þurftu
smá tíma til að finna taktinn eft-
ir erfiða byrjun en smám saman
komust þeir betur og betur inn í
leikinn. Á 38. mínútu fengu þeir
tækifæri til að jafna þegar dæmd
var vítaspyrna á Þróttara. En Arnar
Darri Pétursson markvörður gerði
sér lítið fyrir og varði góða spyrnu
Gonzalo Zamorano. En Víkingum
tókst þó að brjóta ísinn skömmu
síðar. Kwame Quee átti góða
stungusendingu sem ætluð var
Ingibergi Kort Sigurðssyni. Arnar
Darri kom út úr markinu og ætlaði
að hreinsa boltann frá. Hann skaut
hins vegar beint í Ingiberg, þaðan
sem boltinn féll fyrir hann og átti
Ingibergur ekki í vandræðum með
að skora í autt markið. Staðan var
því jöfn í hálfleik, 1-1.
Síðari hálfleikur byrjaði með
látum þegar Gonzalo sendi bolt-
ann inn í teiginn þar sem Nacho
Herreras henti sér á hann kom
kom Víkingi yfir. Þróttarar fengu
dauðafæri skömmu síðar og eftir
því sem leið á sóttu þeir stífar. En
það voru Ólafsvíkignar sem skor-
uðu. Á 59. mínútu kom löng send-
ing fram völlinn. Boltinn hrökk af
varnarmanni Þróttara og á Pape
Mamadou Faye sem slapp einn í
gegn og kláraði færið listilega vel.
Fleiri mörk voru ekki skoruð og
lokatölur því 3-1, Víkingi Ó. í vil.
Liðið situr í fjórða sæti deilarinnar
með tíu stig, jafn mörg og Hauk-
ar í sætinu fyrir neðan. Næsti leik-
ur Víkings fer fram í kvöld, mið-
vikudaginn 13. júní. Er það lang-
þráður heimaleikur. Liðið mætir
Leikni R. á spánýjum gervigras-
velli í Ólafsvík.
kgk/ Ljósm. úr safni.
Víkingur Ó.
klifrar upp töfluna
Skagamenn halda áfram góðri byrj-
un sinni í 1. deild karla í knatt-
spyrnu þetta sumarið. Á föstudags-
kvöld tóku þeir á móti ÍR og unnu
öruggan 3-0 sigur.
ÍA var mun sterkara liðið allan
fyrri hálfleikinn en tókst þó ekki
að brjóta ísinn fyrr en á 39. mín-
útu þegar þeir fengu aukaspyrnu
úti á vinstri kanti. Ragnar Leósson
sendi boltann fyrir markið, beint á
kollinn á Hafþóri Péturssyni sem
stangaði hann í netið. Staðan 1-0 í
hálfleik.
Skagamenn komu ákveðnir til
síðari hálfleiks og hefðu hæglega
getað bætt tveimur mörkum við
fyrsta korterið. Fyrst átti áður-
nefndur Ragnar Leósson þrumu-
fleyg af 30 metrunum sem small í
samskeytunum. Skömmu síðar var
það Stefán Teitur Þórðarson sem
smellti boltanum í þverslána eftir
undirbúning Bjarka Steins Bjarka-
sonar. Stefán Teitur skaut síðan yfir
úr dauðafæri aðeins mínútu síðar.
Gestirnir máttu prísa sig sæla að
vera aðeins einu marki undir en það
átti eftir að breytast. Stefán Teitur
skoraði annað mark Skagamanna
á 86. mínútu með góðu skoti fyrir
utan teig í bláhornið. Það var síð-
an Garðar Gunnlaugsson sem inn-
siglaði 3-0 sigur ÍA á 88. mínútu.
Markvörður gestanna náði ekki að
grípa fyrirgjöf frá vinstri og boltinn
féll fyrir Garðar sem kláraði vel.
Með sigrinum tylltu Skagamenn
sér í toppsæti deildarinnar með 16
stig eftir fyrstu sex leikina og hafa
þeir tveggja stiga forskot á HK í
sætinu fyrir neðan. Efstu liðin tvö
mætast einmitt í deildinni í kvöld,
miðvikudaginn 13. júní.
kgk
ÍA fór létt með ÍR
Hafþór Pétursson nýbúinn að koma ÍA yfir gegn ÍR. Ljósm. gbh.
Kvennalið Skallagríms í körfu-
bolta er á fullu um þessar mund-
ir að styrkja lið sitt fyrir komandi
átök á næsta tímabili. Liðið hef-
ur þegar samið við Ara Gunnars-
son til að þjálfa liðið áfram, eins
og greint er frá hér að neðan, og
nú hafa tvær stúlkur einnig skrifað
undir samninga og því skuldbundið
sig félaginu næsta vetur. Þetta eru
þær Árnína Lena sem kom seint
inn í liðið á síðasta tímabili og spil-
ar stöðu bakvarðar. Hún ætlar að
halda áfram með liðinu. Auk þess
hefur Karen Dögg Vilhjálmsdóttir
samið við Skallagrím, en hún spil-
ar stöðu miðherja. Báðar eru þær
frá Njarðvík og spiluðu þar saman
í einhver ár og því kunnugar því að
vera liðsfélagar.
glh
Borgnesingar sækja liðsstyrk
Árnína (t.h.) og Karen innsigla sam-
starfið með handabandi við formann
meistaraflokk kvenna, Ragnheiði Guð-
mundsdóttur. Ljósm. Skallagrímur.
Körfuknattleiksdeild Skallagríms
hefur endurnýjað samning sinn
við Ara Gunnarsson sem tók fyrst
við kvennaliðinu eftir minnis-
stætt tap á móti Njarðvíkurstúlk-
um í undanúrslitum Maltbikarsins
í Laugardalshöll á síðasta tímabili,
þá undir stjórn Spánverjans Ric-
ardo Gonzalez Dávila. Ari náði að
snúa blaðinu við eftir slæmt gengi
um miðbik Íslandsmótsins. Liðið
komst í úrslitakeppnina þar sem
núverandi Íslandsmeistarar Hauka
slógu Borgnesinga úr leik í und-
anúrslitum.
Ari er vel kunnugur herbúðum
Skallagríms og spilaði sjálfur með
meistaraflokki karla í efstu deild í
um áratug. glh
Ari Gunn áfram
hjá Skallagrími
Ari Gunnarsson. Ljósm. úr safni.
Þórshöfn í Færeyjum er
kannski ekki fyrsti stað-
urinn sem manni dytti í
hug að fara til að hlaupa
maraþon. En þau Rán
Kristinsdóttir, Fannar
Baldursson, Ari Bjarna-
son og Fanný Berit Svein-
björnsdóttir í Ólafsvík
eru á öðru máli. Þangað
skelltu þau sér í hlaupa-
og skemmtiferð fyrstu
helgina í júní. Höfðu
þau Rán, Fannar og Ari
ákveðið snemma í vor að
skrá sig í hálft maraþon,
þar sem þau höfðu heyrt
svo vel af þessu hlaupi
látið.
Hlaupið í Þórshöfn er
götuhlaup og því tölu-
vert af brekkum í því og
hlaupið bæði upp og nið-
ur. Að sögn þeirra var
hlaupið mjög skemmtilegt og mæla
þau klárlega með því að taka þátt,
enda mjög auðvelt að fljúga þang-
að. Aðeins tekur rúman klukkutíma
að fljúga til Færeyja frá Reykjavík.
Á hlaupaleiðinni var fólk að
hvetja, kindur á vappi og stemmn-
ingin var því mjög skemmtileg að
sögn Ránar, Fannars, Ara og Fann-
ýjar. Voru þau einnig einstaklega
heppin með veður, þó sérstak-
lega á hlaupadaginn þar sem þau
hlupu í sól og blíðu. Rúmlega 700
manns voru skráðir í hlaupið að
þessu sinni og voru þátttakendur
frá 25 þjóðum. Alls hlupu 12 Ís-
lendingar þetta árið. Fannst þeim
vel staðið að hlaupinu og voru al-
sæl með frændur okkar enda eru
Færeyingar léttir og skemmtilegir
og lausir við allt stress. Sagði Rán
að einn Færeyingurinn hefði orðað
það þannig að þeir væru nú ekkert
að kippa sér upp við það að mæta
30 mínútum of seint. „Nú er bara
að finna næsta hlaup og setja sér ný
markmið,“ sagði Rán að lokum en
þess má geta að þau Rán og Fann-
ar hafa undanfarin ár staðið fyrir
Snæfellsjökulshlaupinu en það fer
fram í áttunda skipti 30. júní næst-
komandi.
þa
Ólsarar á hlaupum
í Færeyjum