Skessuhorn - 20.06.2018, Blaðsíða 10
MIÐVIKUDAGUR 20. JÚNÍ 201810
Nýkjörin sveitarstjórn Borgar-
byggðar fundaði fyrsta sinni mið-
vikudaginn 13. júní síðastliðinn. Á
fyrsta fundi var kosið í helstu trún-
aðarstörf. Lilja Björg Ágútsdóttir var
kjörin forseti sveitarstjórnar, Magn-
ús Smári Snorrason fyrsti varaforseti
og Finnbogi Leifsson annar vara-
forseti. Samþykkt var að semja við
Gunnlaug A. Júlíusson um að hann
gegni áfram starfi sveitarstjóra næstu
fjögur árin, eða út kjörtímabilið
2018 til 2022.
Byggðarráð skipa þau Halldóra
Lóa Þorvaldsdóttir formaður, Lilja
Björg Ágústsdóttir varaformaður
og Guðveig Eyglóardóttir. Áheyrn-
arfulltrúi í byggðarráði er Magnús
Smári Snorrason.
Umhverfis-, skipulags- og land-
búnaðarnefnd skipa Sigríður Júlía
Brynleifsdóttir formaður, María
Júlía Jónsdóttir varaformaður, Sig-
urður Guðmundsson, Davíð Sig-
urðsson og Orri Jónsson.
Fræðslunefnd er skipuð þeim
Magnúsi Smára Snorrasyni for-
manni, Lilju Björg Ágústsdótt-
ur varaformanni, Guðmundi Frey
Kristbergssyni, Sigrúnu Sjöfn
Ámundadóttur og Einari Guðmanni
Örnólfssyni.
Velferðarnefnd skipa Silja Rún
Steingrímsdóttir formaður, Logi
Sigurðsson varaformaður, Frið-
rik Aspelund, Finnbogi Leifsson og
Kristín Erla Guðmundsdóttir.
Samþykkt var að Halldóra Lóa
Þorvalsdóttir yrði áheyrnarfulltrúi
sveitarfélagsins í stjórn Orkuveitu
Reykjavíkur og María Júlía Jóns-
dóttir yrði fulltrúi Borgarbyggðar
í stjórn Faxaflóahafna. Kjöri í aðr-
ar nefndir var frestað fram að auka-
fundi sveitarstjórnar í byrjun júlí.
Vilja niðurgreiða
máltíðir
Málefnasamningur meirihluta-
samstarfs Sjálfstæðisflokks, Vinstri
grænna og Samfylkingarinnar var
lagður fram á fundinum. „Þau, sem
að þessu samstarfi standa, vilja að
Borgarbyggð nýti þau miklu og
fjölbreyttu tækifæri sem blasa við.
Tækifæri til að bæta þjónustu og bú-
setuskilyrði, byggja upp innviði og
mannauð,“ segir í samningnum.
Meðal þess sem nýr meirihluti
leggur áherslu á er að áfram verði
gætt aðhalds í rekstri og sett skýr
fjárhagsleg markmið fyrir kjörtíma-
bilið þar sem meðal annars verði
sett markmið um lækkun fasteigna-
gjalda. Rafræn stjórnsýsla verði auk-
in og íbúagáttin notuð með mark-
vissari hætti og haldið fast við áætlun
um ljósleiðaravæðingu sveitarfélags-
ins. Leitað verði leiða til að flýta
lagningu þriggja fasa rafmangs til að
styrkja atvinnustarfsemi í dreifbýli
og þrýst á Vegagerðina um endur-
bætur á tengivegakerfinu.
Nýr meirihluti vill „lækka leik-
skólagjöld í leikskólum Borgar-
byggðar með niðurgreiðslu á skóla-
máltíðum. Einnig skal stefnt að
frekari niðurgreiðslu á máltíðum í
grunnskólum sveitarfélagsins,“ seg-
ir í samningnum. Þar kemur einnig
fram að fjöldi starfsstöðva grunn-
skólans verði óbreyttur og unnið
að því að bæta aðstöðu nemenda og
starfsfólks allra skóla. Þá verði staðið
vel að viðbyggingum og endurbót-
um á skólahúsnæði sem eru á fram-
kvæmdaáætlun.
Málefnasamninginn má lesa í
heild sinni í frétt á vef Skessuhorns
eða á heimasíðu Borgarbyggðar.
kgk
Fyrsti fundur nýrrar sveitar-
stjórnar í Borgarbyggð
Sveitarstjórn Borgarbyggðar ásamt sveitarstjóra. Ljósm. Borgarbyggð.
Ný sveitarstjórn Reykhólahrepps
fundaði fyrsta sinni þriðjudag-
inn 12. júní síðastliðinn. Við upp-
haf fundar bauð karl Kristjáns-
son, aldursforseti sveitarstjórnar,
nýju sveitarstjórnina velkomna.
Vakti hann máls á því að kon-
ur væru í fyrsta sinn í meirihluta
sveitarstjórnar Reykhólahrepps og
að Embla Dögg Bachmann væri
yngsti kjörni sveitarstjórnarfulltrú-
inn frá upphafi, en Embla verður
tvítug seinna í mánuðinum.
Að því búnu var kosið í nefnd-
ir. Ingimar Ingimarsson var kos-
inn oddviti og tók hann við stjórn
fundarins. Árný Huld Haralds-
dóttir var kosin varaoddviti.
Skipulags-, húsnæðis- og hafn-
arnefnd skipa Karl Kristjánsson,
Ingimar Ingimarsson og Jóhanna
Ösp Einarsdóttir.
Mennta- og menningarmála-
nefnd skipa Árný Huld Haralds-
dóttir, Vilberg Þráinsson og Ólafía
Sigurvinsdóttir.
Umhverfis- og náttúruverndar-
nefnd skipa Embla Dögg Bach-
mann, Tómas Sigurgeirsson og
Kolfinna Ýr Ingólfsdóttir.
Velferðarnefnd er skipuð Árnýju
Huld Haraldsdóttur, Emblu Dögg
Bachmann og Ingimari Ingimars-
syni.
Fjallskilanefnd skipa Arný Huld
Haraldsdóttir, Bergur Þrastar-
son, Styrmir Sæmundsson, Hjalti
Helgason og Vilberg Þráinsson.
Nánari skipan í nefndir og full-
trúa í stjórnir er að finna í fundar-
gerð á vefsíðu Reykhólahrepps.
kgk/ Ljósm. úr safni/ sm.
Konur í fyrsta
sinn í meirihluta
Fyrsti fundur nýrrar bæjarstjórnar
fór fram í bæjarþingsalnum á Akra-
nesi í gær. Það var aldursforseti bæj-
arstjórnar, Einar Brandsson, sem
setti fundinn og bauð nýkjörna bæj-
arstjórn velkomna til starfa og jafn-
framt til fyrsta fundar á kjörtíma-
bilinu.
Valgarður Lyngdal Jónsson, odd-
viti Samfylkingarinnar var kosinn
forseti bæjarstjórnar og Elsa Lára
Arnardóttir, oddviti Framsóknar-
flokks, formaður bæjarráðs. Athygli
vakti að báðir oddvitar listanna sem
mynda meirihluta nýrrar bæjar-
stjórnar, Samfylkingar og Fram-
sóknarflokks, voru fjarverandi á
fyrsta fundi. Gerður Jóhanna Jó-
hannsdóttir, bæjarfulltrúi Samfylk-
ingar og fyrsti varaforseti bæjar-
stjórnar, stýrði fundinum í fjarveru
forseta bæjarstjórnar.
Sævar Freyr Þráinsson var endur-
ráðinn bæjarstjóri Akraneskaupstað-
ar til næstu fjögurra ára, eða út kjör-
tímabilið 2018 til 2022.
Nefndir og ráð
Kosið var í nefndir og ráð og voru
allar tillögur samþykktar samhljóða.
Skipan nefnda og ráða er sem hér
segir:
Í bæjarráði er Elsa Lára Arnar-
dóttir formaður, Valgarður Lyng-
dal Jónsson varaformaður og Rakel
Óskarsdóttir aðalmaður.
Í skóla- og frístundarráði er Bára
Daðadóttir formaður, Ragnar B. Sæ-
mundsson varaformaður og Sandra
Sigurjónsdóttir aðalmaður.
Í skipulags- og umhverfisráði er
Ragnar B. Sæmundsson formaður,
Gerður Jóhannsdóttir varaformaður
og Karítas Jónsdóttir aðalmaður.
Í velferðar- og mannréttindaráði
er Gerður Jóhansdóttir formaður,
Elsa Lára Arnarsdóttir varaformað-
ur og Einar Brandsson aðalmaður.
Í menningar- og safnanefnd er
Ólafur Páll Gunnarsson formaður,
og aðalmenn eru Guðríður Sigur-
jónsdóttir, Helga Kristín Björgólfs-
dóttir, Ingþór Bergmann Þórhalls-
son og Guðmundi Claxton. Auk
þess á sveitarfélagið Hvalfjarðar-
sveit einn aðalmann í menningar-
og safnanefnd.
Í barnaverndarnefnd er Sigrún
Guðnadóttir formaður, Ragnheiður
Stefánsdóttir varaformaður og aðal-
menn þær Guðríður Haraldsdóttir,
Hildur Karen Aðalsteinsdóttir og
Hafrún Jóhannesdóttir. glh
Skipað í nefndir á fyrsta
bæjarstjórnarfundi
Ný bæjarstjórn samþykkir nefndarskipan.
Bára Daðadóttir fer yfir málefnasamn-
ing meirihlutans.
Nýkjörin sveitarstjórn Dalabyggð-
ar kom saman til fyrsta fundar síð-
astliðinn fimmtudag. Einar Jón
Geirsson starfsaldursforseti setti
fundinn. Að því búnu var skýrsla
kjörstjórnar um sveitarstjórnar-
kosningarnar lögð fram og síðan
kosið í trúnaðarstörf, nefndir og
ráð.
Eyjólfur Ingvi Bjarnason var
kosinn oddviti og Ragnheiður
Pálsdóttir varaoddviti, bæði til
eins árs.
Byggðarráð er skipað Skúla
Hreini Guðbjörnssyni formanni,
Sigríði Huld Skúladóttur varafor-
manni og Þuríði Jóneyju Sigurð-
ardóttur.
Í umhverfis- og skipulagsnefnd
eru Hörður Hjartarson formaður,
Bjarnheiður Jóhannsdóttir, Ragn-
heiður Pálsdóttir, Vilhjálmur Arn-
órsson og Jón Egill Jónsson.
Félagsmálanefnd er skipuð Ing-
veldi Guðmundsdóttur formanni,
Níels Hermannssyni og Þuríði
Sigurðardóttur.
Í fræðuslunefnd eru Sigríður
Huld Skúladóttir formaður, Eva
Björk Sigurðardóttir, Jóhanna H.
Sigurðardóttir, Pálmi Jóhannsson
og Jón Egill Jóhannsson.
Þorgrímur Einar Guðbjarts-
son var kosinn formaður menn-
ingarmálanefndar og með honum
í nefndinni eru Sigrún Sigurðar-
dóttir og Hlöðver Ingi Gunnars-
son.
Atvinnumálanefnd er skip-
uð Pálma Jóhannssyni formanni,
Garðari Vilhjálmssyni, Gyðu Lúð-
víksdóttur, Þóreyju Björk Þóris-
dóttur og Einari Jóni Geirssyni.
Þá var samþykkt að leita sam-
starfs við Hagvang um aðstoð við
ráðningu nýs sveitarstjóra, en til-
boða hafði verið aflað frá fjórum
ráðningastofum. Eins og áður hef-
ur verið greint frá hafði Sveinn
Pálsson, fráfarandi sveitarstjóri,
gefið það út fyrir kosningar að
hann myndi ekki sækjast eftir því
að gegna starfinu áfram.
kgk/ Ljósm. úr safni/ sm.
Kosið í trúnaðar-
störf í Dalabyggð