Skessuhorn - 04.07.2018, Page 1
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 27. tbl. 21. árg. 4. júlí 2018 - kr. 750 í lausasölu
arionbanki.is
Það tekur aðeins örfáar mínútur
að skrá sig í viðskipti hjá Arion banka.
Af því að okkar lausnir snúast um
tíma og þægindi.
Þægilegri
bankaþjónusta
gefur þér tíma
20 ÁR
Lúsina burt!
Augndropar!
Írskir dagar
verða á Akranesi
5. - 8. júlí
Undanfarna daga hefur Unnsteinn Elíasson hleðslumeistari frá Ferjubakka hlaðið vegg milli bílaplansins og Fosshótels Reykholti. Honum til aðstoðar hafa verið þeir
Einar Ólafsson frá Gilsbakka og Þorsteinn Guðmundsson frá Fróðastöðum sem sjá um vélavinnu, jarðvegsframkvæmdir og gamanmál. Veggurinn er hinn glæsilegasti
en hleðsluveggir Unnsteins gefa Reykholtsstað afar fallegt yfirbragð. Meðal annars er komin hleðsla umhverfis kirkjugarðinn, vestan við hótelið. Ljósm. bhs.
Síðastliðinn miðvikudag boðaði
Reykhólahreppur til opins íbúafund-
ar þar sem kynntar voru niðurstöður
norsku verkfræðistofunnar Multi-
consulant og ráðgjafarstofunnar
Alta á rýnivinnu vegna lagningar nýs
Vestfjarðavegar. Samkvæmt bráða-
birgðaniðurstöðu þessarar skoðunar
er mælt með að farin verði svoköll-
uð Reykhólaleið (R-leið) sem þýðir
vegtenging við sunnanverða Vest-
firði um Reykhólaveg og þorpinu
á Reykhólum þannig komið í þjóð-
braut. Reist yrði 800 metra brú yfir
Þorskafjörð milli Staðar á Reykja-
nesi og Skálaness. Með þessari til-
lögu yrði horfið frá vegagerð um
þrætueplið Teigsskóg, jarðgangaleið
undir Hjallaháls eða um aðrar leiðir
til uppbyggingar framtíðar vegteng-
ingar við Vestfirði. Fram hafa kom-
ið efasemdir fulltrúa Vegagerðar-
innar með niðurstöðu Norðmann-
anna, eins og fjallað er um í ítarlegri
fréttaskýringu í Skessuhorni í dag.
mm
Reykhólum hugsanlega
komið í þjóðbraut
Strandveiðitímabilið er nú hálfnað,
en það er eins og kunnugt er mán-
uðina maí til og með ágúst. Tölu-
vert er um að sjómenn hafa ekki get-
að róið alla 12 dagana sem leyfilegt
er í hverjum mánuði, sökum gæfta-
leysis. Aflinn á þessum fyrri helm-
ingi tímabilsins er 167 tonnum
minni en í fyrra. Í júní veiddust um
2.500 tonn, sem er svipað og í fyrra.
Á fyrri helmingi strandveiðitímabils-
ins var samtals komið með um 4.400
tonn að landi. Færri stunda veið-
arnar nú í samanburði við síðasta
ár og er ástæðan talin léleg afkoma
í fyrra og gott ástand á vinnumark-
aði. Þeir sem róa hafa að undanförnu
þurft að fara langt til fiskjar, m.a. sjó-
menn sem róa frá höfnum á Vestur-
landi. Síðastliðinn fimmtudag, und-
ir lok mánaðarins, réru til að mynda
nokkrir frá Snæfellsnesi þrátt fyrir
varhugavert veðurútlit. Áttu nokkrir
í basli til hafnar enda suðvestan rok
skollið á, en skiluðu sér þó allir heilu
og höldnu. mm
Strandveiðitímabilið hálfnað
Á leið til lands í brælu síðastliðinn fimmtudag. Hér öslar báturinn Ás SH síðasta
spölinn til hafnar. Ljósm. af.