Skessuhorn - 18.07.2018, Blaðsíða 1
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 29. tbl. 21. árg. 18. júlí 2018 - kr. 750 í lausasölu
arionbanki.is
Það tekur aðeins örfáar mínútur
að skrá sig í viðskipti hjá Arion banka.
Af því að okkar lausnir snúast um
tíma og þægindi.
Þægilegri
bankaþjónusta
gefur þér tíma
20 ÁR
Lúsina burt!
Augndropar!
Á laugardaginn var mikið hrun úr
sárinu sem varð í Fagraskógarfjalli
í Hítardal aðfararnótt 7. júlí síðast-
liðinn. Jón Guðlaugur Guðbrands-
son bóndi á Staðarhrauni hefur
fylgst grannt með fjallinu og tók
myndirnar sem fylgja þessari frétt.
Hann segir að milli klukkan 14 og
15 laugardaginn 14. júlí hafi byrj-
að að falla nokkrar stórar skriður og
aðrar minni úr fjallinu. Hrunið hélt
síðan áfram allt fram á miðnætti um
kvöldið. Enginn þessara skriða féll
þó langt niður á jafnsléttu og eng-
in fór út úr gamla farinu sem fyrsta
skriðan féll á. Jón tók meðfylgjandi
myndir á sitt hvorum tíma dagsins
síðastliðinn laugardag. Ein myndin
er tekin klukkan 13:00 laugardag-
inn 14. júlí og önnur klukkan 22:00.
Greinilega má sjá með því að bera
þessar myndir saman að stórt berg-
hlaup hefur fallið efst úr fjallsbrún-
inni þá um kvöldið. Jón Guðlaugur
segir að hringt hafi verið í lögregl-
una en hann hafi ekki orðið var við
viðbragðsaðila. Hann segir að ann-
að slagið sjái heimamenn fólk á ferð
í skriðunni og slíkt sé eðli málsins
samkvæmt stórhættulegt miðað við
aðstæður.
mm
Áfram falla skriður úr Fagraskógarfjalli
Þessi mynd er tekin klukkan 13 laugardaginn 14. júlí. Þessi mynd er tekin klukkan 22 laugardaginn 14. júlí. Greinilega sést hvernig stórt
berghlaup hefur orðið úr fjallinu.
Ríkisstjórn Íslands hélt sumarfund sinn í Langaholti í Staðarsveit á Snæfellsnesi síðastliðinn mánudag. Að loknum fundi var rætt við sveitarstjórnarfólk á Vesturlandi
um helstu áherslumál sveitarfélaga gagnvart fjárveitingavaldinu. Fjallað er um fundinn á blaðsíðu 10-11 í Skessuhorni í dag. Hér er hluti ríkisstjórnarinnar og í baksýn
er Snæfellsjökull. Þessir ráðherrar eiga það sameiginlegt að hafa annað hvort alist upp á Vesturlandi eða eiga þangað sterka tengingu. F.v. Svandís Svavarsdóttir, Guð-
mundur Ingi Guðbrandsson, Guðlaugur Þór Þórðarson, Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir og Ásmundur Einar Daðason. Ljósm. mm.