Skessuhorn - 05.09.2018, Side 1
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 36. tbl. 21. árg. 5. september 2018 - kr. 750 í lausasölu
arionbanki.is
Það tekur aðeins örfáar mínútur
að skrá sig í viðskipti hjá Arion banka.
Af því að okkar lausnir snúast um
tíma og þægindi.
Þægilegri
bankaþjónusta
gefur þér tíma
20 ÁR
Lúsina burt!
Augndropar!
Sveinn Sturlaugsson á Akranesi hefur í áranna rás komið sér upp dágóðu safni líkana af bátum Haraldar Böðvarssonar & Co. Telur safn hans nálægt tuttugu líkön, öll
smíðuð af hinum þekkta líkanasmiði Grími Karlssyni í Keflavík fyrir Svein, sem er einmitt fyrrum útgerðarstjóri HB & Co. og barnabarn Haraldar Böðvarssonar. Rætt er
við Svein í Skessuhorni í dag um líkönin fínu og hugmyndir hans um ráðstöfun þeirra. Ljósm. kgk.
Lögreglan á Vesturlandi hafði síð-
degis á fimmtudaginn hendur í
hári karlmanns sem fyrr um dag-
inn hafði brotist inn í að minnsta
kosti tvö hús á Snæfellsnesi. Fyrst í
hús á Hellissandi og síðar í Grund-
arfirði. Hafði hann á brott með sér
skartgripi og eitthvað af peningum
úr báðum þessum innbrotum. Til
ferða hans sást svo unnt var að gefa
greinargóða lýsingu á honum og
bíl sem hann ók. Tiltækt lið Lög-
reglunnar á Vesturlandi fór jafn-
framt á svæðið og fylgst var með
öllum akstursleiðum frá byggða-
kjörnunum sem um ræðir. Síð-
degis stöðvaði lögreglan svo för
mannsins á móts við Vegamót eft-
ir að hann hafði ekið Vatnaleiðina
áleiðis suður. Maðurinn var færður
til yfirheyrslu á Akranesi. Var hann
í kjölfar handtökunnar úrskurðað-
ur í tveggja vikna gæsluvarðhald frá
föstudeginum. Hann er útlending-
ur, búsettur á höfuðborgarsvæð-
inu og hefur fyrr á þessu ári kom-
ist í kast við lögin, m.a. í félagi við
föður sinn. Feðgarnir voru fyrr í
sumar úrskurðaðir í farbann. Sam-
kvæmt heimildum Skessuhorns eru
líkur taldar á að faðirinn hafi kom-
ist úr landi.
Að sögn Jóns S Ólasonar, yfir-
lögregluþjóns hjá LVL, hafa starfs-
menn embættisins verið í góðu
samstarfi við önnur lögregluemb-
ætti á landinu út af málinu. Strax
vaknaði grunur um að maðurinn
sem handtekinn var á fimmtudag-
inn við Vegamót tengdist fjölda inn-
brota sem framin hafa verið víða á
landsbyggðinni undanfarnar vikur,
þar sem farið var inn í ólæst hús og
peningum og skartgripum stolið.
Yfirleitt er náð í smærri skartgripi og
peninga og þýfinu samkvæmt heim-
ildum Skessuhorns komið úr landi
með almennum póstsendingum.
Á mánudaginn var birt ákæra yfir
manninum í Héraðsdómi Suður-
lands, m.a. fyrir fjögur innbrot sem
hann framdi í þeim landshluta sem
og líkamsárás. Eftir á að birta ákær-
ur yfir honum vegna annarra brota
sem hann er talinn hafa framið.
mm
Grunaður um fjölda innbrota
víðs vegar á landsbyggðinni
Innbrotsþjófur þessi tengist fréttinni ekki. Ljósm. úr erlendum myndabanka.