Skessuhorn - 05.09.2018, Blaðsíða 24
MIÐVIKUDAGUR 5. SEpTEMbER 201824
Vörur og þjónusta
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
H P Pípulagnir ehf.
Alhliða pípulagnaþjónusta
Hilmir 820-3722
Páll 699-4067
hppipulagnir@gmail.com
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
8
TEK AÐ MÉR GARÐAÚÐUN ALLA DAGA VIKUNNAR
GARÐAÚÐUN REYNIS SIG
SÍMI: 899-0304
Fyrir alla vigtun
Húsarafmagn
Töflusmíði
Iðnaðarrafmagn
Bátarafmagn
Bílarafmagn
RAFMAGN
vogir@vogir.is Sími 433-2202
VOGIR
Bílavogir
Kranavogir
Skeifuvogir
Pallvogir
Aflestrarhausar
HÓTEL
LAXÁRBAKKI
A BRIDGE TO THE WEST
laxarbakki@laxarbakki.is
tlf. +354 551 2783
www.laxarbakki.is
Fréttaveita Vesturlands
www.skessuhorn.is
Vigdís bjarnadóttir, sem ættuð
er frá Ólafsvík, heldur málverka-
sýninguna Þar sem jökulinn ber
við loft, í Átthagastofunni í Ólafs-
vík. Var sýningin opnuð síðastlið-
inn laugardag og verður opin út
septembermánuð. Þar sýnir hún
20 olíumálverk. Þetta er í fjórða
skiptið sem Vigdís sýnir verk sín á
heimaslóðum í Ólafsvík.
„Þema sýningarinnar er Snæ-
fellsjökull, eða Jökullinn eins og
við sem erum fædd hér og uppal-
in köllum hann einatt,“ segir Vig-
dís. „Við þekkjum hinn magnaða
kraft úr þessu fjalli sem margir trúa
að sé ekki alkulnað eldfjall. Verk-
in hafa öll skírskotun til Jökulsins
á einn eða annan hátt enda finnst
mér þetta fegursta fjall landsins.
Hann er fallegur frá öllum hliðum
og alltaf jafn skemmtilegt að reyna
að fanga hann á strigann,“ segir
Vigdís. af
Málverkasýning Vigdísar í Átthagastofu
Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir frá
bakkakoti í borgarfirði var kjörin
formaður Sambands ungra Fram-
sóknarmanna (SUF) á 43. Sam-
bandsþingi hreyfingarinnar sem fór
fram um helgina á bifröst. Hlaut
hún 82,1% greiddra atkvæða. Lilja
Rannveig er 22 ára nemi í grunn-
skólafræðum og skólaliði í Grunn-
skóla borgarbyggðar. Hún hef-
ur tekið virkan þátt í starfi Fram-
sóknarflokksins, þar á meðal í stjórn
SUF ásamt því að vera annar vara-
þingmaður Framsóknarflokksins í
Norðvesturkjördæmi.
,,Ég er virkilega þakklát fyrir
traustið sem mér er sýnt til þess að
gegna embætti formanns. SUF fagn-
ar 80 ára afmæli í ár og skipar mik-
ilvægan sess í starfi flokksins. Sem
formaður mun ég leggja áherslu
á jafnrétti til menntunar, geðheil-
brigðismál ungs fólks og umhverf-
ismál. Þá mun ég vinna að því að
gera starf SUF sýnilegra út á við og
styrkja innra starf SUF,‘‘ sagði Lilja
Rannveig, nýkjörin formaður SUF
eftir að úrslit lágu fyrir. mm
Lilja Rannveig hlaut yfir-
burðakosningu hjá SUF
Séra Þórhallur Heimisson hyggst
í haust halda áfram að bjóða
upp á hjónanámskeið og verð-
ur það næsta haldið í Reykjavík
13. nóvember. „Námskeiðið verð-
ur með hefbundnum hætti, stutt-
ir fyrirlestrar, verkefni, æfingar og
samtal. Eftir námskeiðið fá pör-
in með heim sjö vikna heimaverk-
efni,“ segir Þórhallur.
Hann segir að námskeiðin henti
öllum aldurshópum og taki að-
eins eina kvöldstund og sé það
ætlað öllum pörum í sambúð, gift-
um jafnt sem ógiftum. Námskeið-
in henta til að gera gott samband
betra sem og þeim sem þurfa að
taka á vandamálum. „Fjallað er um
ástina, samskipti, kynlífið, börn-
in, vinnuna, peningana, vandamál
sem upp kunna að koma í sam-
búð - en fyrst og fremst lausnir og
hvað hægt er að gera til að bæta og
styrkja sambandið.“ Þórhallur seg-
ir að nú hafi á áttunda þúsund pör
tekið þátt í þessum námskeiðum
en hann byrjaði að halda þau 1996.
„Námskeiðin eru algerlega sjálf-
stætt starf og rekin án tengsla við
eða stuðnings frá utanaðkomandi
aðilum eða stofnunum. Þeir sem
vilja skrá sig sendi honum póst á
netfangið thorhallur33@gmail.
com.
mm
Býður upp á hjónanámskeið
í Reykjavík
Kver um kerskni og heimsósóma
heitir ný bók eftir Helga Ingólfs-
son sem bókaútgáfan Sæmundur
gefur út. „Hér er að finna vísur og
kvæði af ýmsu tagi, einkum gam-
anmál þar sem skopast er að dæg-
urþrasi líðandi stundar og stjórn-
málamenn teknir á beinið, stund-
um nokkuð stórkarlalega, en inn
á milli eru einnig alvarlegri ljóð
og stökur. Form ljóðanna er fjöl-
breytt; kvæði, drápur, limrur, fer-
skeytlur, slitrur og sléttubönd, en
undantekningarlítið er ort í sam-
ræmi við hefðbundna bragfræði,
með ljóðstöfum og rími.
Helgi Ingólfsson er rithöf-
undur og framhaldsskólakennari.
Eftir hann liggur tugur skáld-
sagna af ýmsum toga, smásagna-
safn, ljóðabók og margt annað hrá-
viði af ritvellinum. Meðal skáld-
sagna Helga eru Letrað í vindinn
- Samsærið sem hlaut bókmennta-
verðlaun Tómasar Guðmundsson-
ar 1994, Þegar kóngur kom sem
hlaut blóðdropann, hin íslensku
glæpasagnaverðlaun 2010, og And-
sælis á auðnuhjólinu, en eftir þeirri
bók var gerð kvikmyndin Jóhann-
es, með Ladda í aðalhlutverki.
mm
Kver um kerskni
og heimsósóma