Skessuhorn - 26.09.2018, Blaðsíða 1
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 39. tbl. 21. árg. 26. september 2018 - kr. 750 í lausasölu
arionbanki.is
Það tekur aðeins örfáar mínútur
að skrá sig í viðskipti hjá Arion banka.
Af því að okkar lausnir snúast um
tíma og þægindi.
Þægilegri
bankaþjónusta
gefur þér tíma
Lúsina burt!
Augndropar!
Grettissaga
Einars Kárasonar
Næstu sýningar
á Sögulofti
sími 437-1600
Laugardagur 13.október kl. 20:00
Sunnudagur 14.október kl. 16:00
Laugardagur 20.október kl. 20:00
Sunnudagur 28.október kl. 16:00
Miðapantanir:
landnam.is/vidburdir
sími 437-1600
Sauðamessan
6. október
í Borgarnesi
Tillaga samgönguráðherra að
samgönguáætlun 2019-2033 er nú
til umsagnar í þingflokkum stjórn-
arflokkanna á Alþingi. Það er Sig-
urður Ingi Jóhannsson samgöngu-
ráðherra sem leggur tillöguna fram
og er henni skipt niður í þrjú fram-
kvæmdatímabil. Árin 2019-2023
eru fyrsta tímabil, 2024-2028 ann-
að og 2029-2033 þriðja tímabilið.
Samgönguáætlun er þannig ætlað
að verða hluti af; „heildstæðri sam-
þættri stefnu í samgöngumálum,
fjarskiptamálum, byggðamálum
og málefnum sveitarfélaga og gerð
í samræmi við samþykktar áætlanir
á vegum Alþingis og ríkisstjórnar,“
eins og segir í upphafi þingsálykt-
unartillögunnar sem Skessuhorn
hefur undir höndum.
Af verkefnum sem snerta íbúa
Vesturlands sérstaklega er í sam-
gönguáætlun lagt til að ráðist verði
í uppbyggingu 9 kílómetra vegar-
kafla um Kjalarnes á fyrsta tímabili
áætlunarinnar, árin 2019-2023.
Áætlaður kostnaður er 3,2 mill-
arðar króna. Á fyrsta tímabili verði
einnig lokið við endurbætur á veg-
inum yfir Fróðárheiði á Snæfells-
nesi og áætlað að það kosti 250
milljónir króna. Ekki er gert ráð
fyrir að ráðist verði í tvöföldun
Hvalfjarðarganga miðað við fyrstu
drög að fimmtán ára samgön-
guáætlun. Varðandi Vestfjarða-
veg um Gufudalssveit er áætlað að
vegaframkvæmdir þar muni kosta
6,7 milljarða króna jafnvel þótt
ákvörðun um veglínu liggi ekki
fyrir. Það verk er hins vegar sett í
forgang í samgönguáætlun og gert
ráð fyrir að komi til framkvæmda
árin 2019-2023.
Á öðru tímabili samgönguáætl-
unar, árin 2024-2028 er gert ráð
fyrir að farið verði í tvöföldun
eða 2+1 veg á 20 kílómetra kafla
frá Akrafjallsvegi í Borgarnes, en
sú framkvæmd er talin kosta fjóra
milljarða króna. Einnig verð-
ur Uxahryggjavegur frá Brautar-
tungu að Kaldadal endurbættur á
því tímabili, en það verk er talið
kosta 1700 milljónir króna. Lag-
færingar á 4,5 kílómetra kafla um
Borgarnes, að andvirði 1400 millj-
ónir króna, eru ekki á ætlun fyrr en
á þriðja tímabili samgönguáætlun-
ar 2029-2033. Loks er fyrirhugað
að gera endurbætur á 27 kílómetra
kafla um Skógarströnd fyrir 1500
milljónir króna. Ekki verður byrj-
að á því verki á fyrsta tímabili sam-
gönguáætlunar, en 450 milljónum
ráðstafað í verkið árin 2024-2028
og 650 milljónum árin 2029-2033.
Auk sérgreindra verkefna sem
hér hafa verið nefnd er í drögum
að samgönguáætlun gert ráð fyrir
framlögum til að bæta tengivegi
landsins. 4,4 milljarðar fara í þann
málaflokk á fyrsta tímabili, 6,6
milljarðar á öðru tímabili og 7,4
milljarðar á síðasta tímabili, alls
18,4 milljarðar króna á fimmtán
árum. Auk þess á að breikka brýr
og bæta hjóla- og göngustíga svo
fátt eitt sé nefnt.
Sjá jafnframt bls. 12 í Skessu-
horni í dag umræður um sam-
göngumál á Haustþingi SSV sem
fram fór í síðustu viku.
mm
Fimmtán ára samgönguáætlun kynnt í stjórnarflokkunum
Vegabætur í fyrsta áfanga um Kjalarnes, Gufudalssveit, Fróðárheiði og Uxahryggi
Brúarvinna yfir Haffjarðará á Snæfellsnesi fyrir nokkrum árum. Ljósm. úr safni.
Haustið er tími fagurra lita í flóru landsins. Fjölæringar af ýmsum gerðum búa sig undir vetrardvala og skarta sínu fegursta. Meðfylgjandi mynd var tekin fyrir nokkrum
dögum í Hallmundarhrauni í Borgarfirði. Ljósm. mm.