Skessuhorn - 26.09.2018, Blaðsíða 19
MIÐVIKUDAGUR 26. SEpTEMBER 2018 19
Allt til heimaslátrunar
Egilsholti 1
Verslun, sími: 430 5500
Opið virka daga 8-18
Laugardaga 10-14
www.kb.is, verslun@kb.is
Kjötnet, kjötkrókar, pækilmælar
Gott úrval hnífa og brýna
Gott úrval af
tunnum og fötum
Kjötfarsblanda, rúllu-
pylsukrydd, lambakrydd,
reykkrydd, nítrítsalt og gróft salt
Vagúmvélar og pökkunarplast
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
8
Íbúðir á Bifröst
Nýstandsettar 3ja herbergja íbúðir á
Bifröst til leigu. Verið er að taka þær í
gegn og endurnýja allar innréttingar.
Leiguverð er frá 115 þús. kr. á mánuði.
Þriggja mánaða trygging. Einungis
traustir, reglusamir og ábyrgir aðilar
koma til greina.
Áhugasamir sendi upplýsingar um aldur,
starf, fjölskyldustærð, meðmæli og
annað sem skiptir máli ásamt síma-
númeri og netfangi á ritari@sagaz.is.
Eingöngu þeim sem senda
upplýsingar verður svarað.
Frekari upplýsingar í síma 570-7010.
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
8
Matarauður Íslands í samstarfi við
Bændasamtök Íslands hefur unn-
ið að því að koma REKO hug-
myndafræðinni af stað hér á landi
og nú hafa fyrstu hóparnir verið
myndaðir. REKO stendur fyrir
milliliðalaus viðskipti milli fram-
leiðenda og kaupenda og fara þau
viðskipti fram í gegnum Facebo-
ok. „Tilgangurinn er að efla nær-
samfélagsneyslu og færa fram-
leiðendur og kaupendur nær hver
öðrum, gera matarhandverki og
heimavinnslu hærra undir höfði
og færa smáframleiðendur ofar í
virðiskeðjuna. REKO er tekið úr
sænsku og er stytting á: Vistvæn-
ir og heiðarlegir viðskiptahættir,“
segir Oddný Anna Björnsdótt-
ir sem unnið hefur að verkefninu
fyrir Matarauð Íslands.
REKO gengur þannig fyrir sig
að stofnaðir eru svæðisbundnir
Facebook hópar og hafa m.a. ver-
ið stofnaðir hópar fyrir Vestur-
land (REKO Vesturland) og höf-
uðborgarsvæið (REKO Reykja-
vík). Í þá hópa skrá sig framleið-
endur sem hafa áhuga á að selja
vörur sínar þar sem og neytend-
ur og aðrir sem hafa áhuga á að
kaupa af þeim. Ákveðnir eru af-
hendingardagar og er stofnaður
viðburður í kringum hvern af-
hendingardag í Facebook hópun-
um. Inn í viðburðina setja fram-
leiðendur inn færslur þar sem þeir
tilgreina hvað þeir hafa í boði, til
dæmis kjöt, fisk, egg, sjávarfang,
grænmeti, brauð og kökur, osta
og sultur. Jafnframt er tilgreint
hvað varan kostar. Dæmi: „Er
með 40 bakka af landnámshænu-
eggjum á x krónur bakkann (10
egg í bakka).“ Undir hverja færslu
setja áhugasamir kaupendur inn
athugasemd þar sem þeir tilgreina
hvað þeir vilji kaupa og hve mikið.
Kaupendur greiða framleiðand-
anum rafrænt fyrir það sem þeir
ætla að kaupa, fyrir afhendingar-
daginn. Á afhendingardeginum
afhenda framleiðendur kaupend-
um síðan vörurnar milliliðalaust.
Fyrsta afhending REKO Vest-
urlands verður laugardaginn
13. október kl. 11-12 á bílaplani
Krónunnar á Akranesi og REKO
Reykjavík sama dag kl. 13-14 á
bílaplani Krónunnar í Lindum.
Sömu framleiðendur geta tekið
þátt í báðum hópum.
Þeir framleiðendur sem hafa
áhuga á að taka þátt hafi sam-
band við Hlédísi Sveinsdóttur hjá
Matarauði Vesturlands (REKO
Akranes), Arnheiði Hjörleifsdótt-
ur bónda (REKO Reykjavík) eða
Oddnýju Önnu Björnsdóttur hjá
Matarauði Íslands (tengt báðum).
mm
REKO hringir um
milliliðalaus viðskipti
Fréttaveita Vesturlands
www.skessuhorn.is