Skessuhorn - 03.10.2018, Síða 1
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 40. tbl. 21. árg. 3. október 2018 - kr. 750 í lausasölu
arionbanki.is
Það tekur aðeins örfáar mínútur
að skrá sig í viðskipti hjá Arion banka.
Af því að okkar lausnir snúast um
tíma og þægindi.
Þægilegri
bankaþjónusta
gefur þér tíma
Nýtt!
Fæst án lyfseðils
Eru bólgur og verkir
að hrjá þig?
30%
afslátt
ur
Grettissaga
Einars Kárasonar
Næstu sýningar
á Sögulofti
sími 437-1600
Laugardagur 13.október kl. 20:00
Sunnudagur 14.október kl. 16:00
Laugardagur 20.október kl. 20:00
Sunnudagur 28.október kl. 16:00
Miðapantanir:
landnam.is/vidburdir
sími 437-1600
Sauðamessan
6. október
í Borgarnesi
Fyrsti forvarnarsamningur „Ég á bara eitt líf“
Lýtur að víðtækri forvarnarfræðslu í Hvalfjarðarsveit
Síðastliðinn miðvikudag var und-
irritaður forvarnarsamningur milli
fjölskyldu- og frístundanefndar og
fræðslunefndar Hvalfjarðarsveit-
ar og forvarnarhópsins Ég á bara
eitt líf. Snýr hann að víðtækri for-
varnarfræðslu í Hvalfjarðarsveit og
er jafnframt fyrsti forvarnarsamn-
ingurinn sem forvarnarhópurinn
Ég á bara eitt líf undirritar. Um er
að ræða samvinnuverkefni tveggja
nefnda sveitarfélagsins til að styrkja
forvarnir í Hvalfjarðarsveit fyrir alla
aldurshópa.
Samningurinn felur meðal ann-
ars í sér forvarnarfræðslu á vorönn
í elstu bekkjum Heiðarskóla og sér-
stöku forvarnarkvöldi fyrir alla ald-
urshópa í sveitarfélaginu. Þá er einn-
ig ákvæði um fræðsluerindi á opnu
húsi eldri borgara í Hvalfjarðarsveit
og afhendingu á varningi tengdu
málefninu. „Ég á bara eitt líf er búið
að snerta allt Ísland, unga sem aldna
á öllum stigum þjóðfélagsins. Hóp-
urinn hefur á stuttum tíma galopn-
að á umræðuna um hættur varðandi
fíkniefni og misnotkun á lyfseðils-
skyldum lyfjum þar sem þráðurinn
á milli feigs og ófeigs er vart sýni-
legur,“ sagði Helgi Pétur Ottesen,
formaður fjölskyldu- og frístunda-
nefndar Hvalfjarðarsveitar, við und-
irritun samningsins.
„Við höfum á undanförnum
mánuðum fylgst með hópnum Ég
á bara eitt líf, ásamt öllu því fag-
fólki sem styður hópinn og lætur sig
málið varða til að vara við þeim vá-
gesti sem misnotkun lyfja og fíkni-
efna er. Tugir einstaklinga á Íslandi,
ungmenni og fullorðnir, hafa lát-
ist á þessu ári vegna ofneyslu slíkra
efna og lyfja. Á bak við þessa látnu
einstaklinga eru fjölskyldur og vin-
ir, harmleikir og sorgir og er okkar
sveitarfélag ekki undanskilið,“ bætti
hann við. „Stórt og öflugt forvarn-
arverkefni Ég á bara eitt líf byrjar í
Hvalfjarðarsveit, heimasveit Einars
Darra heitins. Við metum það sem
dýrmæta fjárfestingu fyrir sveitar-
félagið okkar til framtíðar,“ sagði
Helgi Pétur.
Bára Tómasdóttir, móðir Ein-
ars Darra, lýsti fyrir hönd hóps-
ins ánægju með að fyrsti forvarn-
arsamningur Ég á bara eitt líf væri
undirritaður í Hvalfjarðarsveit, þar
sem Einar Darri hafði verið búsett-
ur og alltaf liðið vel. Jafnframt þakk-
aði hún þann stuðning sem samfé-
lagið hefði sýnt fjölskyldunni frá því
Einar Darri lést. Andrea Ýr Arnars-
dóttir, systir Einars, tók undir með
móður sinni. Hún hafði jafnframt
orð á því að hópurinn væri ánægður
með að í samningnum væri kveðið
á um forvarnarfræðslu fyrir alla ald-
urshópa og móðir hennar tók undir
það. Misnotkun lyfja væri ekki ein-
ungis bundin við unglinga og ung-
menni. Hver sem er gæti orðið háð-
ur lyfjum, óháð aldri.
Sjá ítarlegt viðtal á miðopnu
við mæðgurnar Báru Tómas-
dóttur og Andreu Ýr Arnarsdótt-
ur þar sem rætt er m.a. um fráfall
Einars Darra og starf forvarnar-
hópsins. kgk
Frá undirritun forvarnarsamningsins. Sitjandi f.v. eru Dagný Hauksdóttir formaður fræðslunefndar, Helgi Pétur Ottesen formaður fjölskyldu- og frístundanefndar, Andr-
ea Ýr Arnarsdóttir, systir Einars Darra og Linda Björk Pálsdóttir, sveitarstjóri Hvalfjarðarsveitar. Fyrir aftan standa Sigrún Bára Gautadóttir, uppeldissystir Einars Darra,
Bára Tómasdóttir, móðir Einars Darra og Aníta Rún Óskarsdóttir, systir Einars Darra. Ljósm. kgk.