Skessuhorn


Skessuhorn - 24.10.2018, Blaðsíða 2

Skessuhorn - 24.10.2018, Blaðsíða 2
MIÐVIKUDAGUR 24. OKTÓBER 20182 síður þakklátur fyrir að hafa feng- ið hana í hendur að nýju og að ekk- ert tjón virðist hafa orðið á henni. Hann segist ætla að sigla skútunni aftur vestur á Ísafjörð strax og færi gefst en þarf fyrsta að fara vestur til að sækja segl hennar. Hann kveðst afar þakklátur Landhelgisgæsl- unni fyrir þátt hennar í að skútan fannst hratt og örugglega eftir að í ljós kom að henni hafði verið stol- ið í Ísafjarðarhöfn. Kvaðst hann í samtali við fréttaritara ekki vilja tjá sig frekar um málið þar sem hann átti eftir að gefa skýrslu hjá lögregl- unni á Vestfjörðum vegna málsins. Eftir komuna til Rifs og handtöku mannsins sem sigldi skútunni frá Ísafirði var hún innsigluð. Mættu lögregluþjónar á miðvikudaginn í Rifshöfn og rufu innsiglin svo eig- andinn gæti kannað ástand hennar. af Næstu daga mun lista- og menning- arhátíðin Vökudagar standa yfir á Akranesi og um komandi helgi verður haustfagnaður Félags Sauðfjárbænda í Dalasýslu. Fölbreytt og skemmtileg dagskrá verður á báðum þessum við- burðum en allar nánari upplýsingar er að finna í auglýsingum í Skessu- horni vikunnar. Á morgun er útlit fyrir norðlæga átt 5-13 m/s og él, einkum á norðan- verðu landinu, og hiti um og undir frostmarki. Á föstudag er spáð norðan- átt 8-13 m/s við austurströndina og dálítil él á Norður- og Austurlandi. Létt- skýjað á Suðurlandi og frost 0-6 stig. Á laugardag er útlit fyrir fremur hæga breytilega átt og víða bjart veður en norðanátt 8-13 m/s og lítilsháttar él á Austurlandi framan af degi og áfram kalt í veðri. Vaxandi sunnanátt og þykknar upp vestanlands um kvöldið. Á sunnudag er spáð allhvassri sunnan- átt með rigningu eða slyddu en þurrt á Norðurlandi og hlýnandi veður. Á mánudag er útlit fyrri suðaustanátt og rigningu, einkum á Suðaustur- landi, en þurrt fyrir norðan og hiti 2-7 stig. Í síðustu viku var spurt á vef Skessu- horns „Gengur þú með armbandsúr?“ Flestir lesendur, eða 52% sögðust allt- af ganga með armbandsúr. 24% les- enda eru hættir að ganga með arm- bandsúr og 13% segjast stundum ganga með armbandsúr. Fæstir, eða 11% svöruðu því að þeir hefðu aldrei gengið með armbandsúr. Í næstu viku er spurt: Hvernig tölvu notar þú mest? Sundkonan knáa Brynhildur Trausta- dóttir hjá Sundfélagi Akraness synti sig inn á Norðurlandameistaramót um liðna helgi og er hún Vestlend- ingu vikunnar að þessu sinni. Spurning vikunnar Til minnis Veðurhorfur Vestlendingur vikunnar Kvennafrí- dagurinn í dag Síðastliðið ár hafa frásagn- ir kvenna af áreitni, ofbeldi og misrétti á vinnustöðum undir- strikað að brýnt sé að tryggja ör- yggi kvenna og jaðarsettra hópa á vinnumarkaði. „Nú er nóg komið, konur eiga að vera óhult- ar heima og óhultar í vinnu,“ segir í tilkynningu um baráttu- fundi sem halda á víða um land í dag. Hér á Vesturlandi er vitað að halda á baráttufundi í Borg- arnesi, á Bifröst, Grundarfirði og Ólafsvík. Gefinn er fyrirvari um að mögulega eru fleiri fundir í landshlutanum, án þess að rit- stjórn hafi verið kunnugt um þá í gær. „Samkvæmt nýjustu tölum Hagstofu Íslands um launamun kynjanna eru meðalatvinnu- tekjur kvenna 74% af meðalat- vinnutekjum karla. Konur eru því með 26% lægri atvinnutekjur að meðaltali. Samkvæmt því hafa konur unnið fyrir launum sínum eftir 5 klukkustundir og 55 mín- útur miðað við fullan vinnudag frá kl. 9–17. Daglegum vinnu- skyldum kvenna er því lokið kl. 14:55. Með þessu áframhaldi ná konur ekki sömu launum og karlar fyrr en árið 2047 – eftir 29 ár! Eftir því getum við ómögu- lega beðið,“ segir í tilkynningu frá samtökum kvenna og launa- fólks. -mm Átak gegn ofbeldi LANDIÐ: Á fundi ríkisstjórn- ar Íslands í gær var kynnt tillaga til þingsályktunar um aðgerða- áætlun gegn ofbeldi og afleið- ingum þess. Áætlunin nær til til næstu fjögurra ára og verður unnið í samstarfi fjögurra ráðu- neyta. Stýrihópur með fulltrú- um hlutaðeigandi ráðuneyta hefur unnið að áætluninni í samstarfi við fjölda aðila á síð- ustu misserum. Áætlunin tekur til ofbeldis í ólíkum birtingar- myndum en aðgerðirnar taka til líkamlegs, kynferðislegs og and- legs ofbeldis. Áætlunin bygg- ist á þremur meginþáttum, þ.e; vakningu sem felur í sér for- varnir og fræðslu, viðbrögðum sem snúast um verklag og máls- meðferð og valdeflingu þar sem áhersla er lögð á styrkingu þol- enda í kjölfar ofbeldis. -mm Fjórðungssamband Vestfirðinga, SSNV og Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi réðu í sumar De- liotte til að vinna skýrslu um áhrif veiðigjalda í landshlutanum. Bor- in eru saman fiskveiðiárin 2016 og 2017. Í skýrslunni, sem nýver- ið kom út, kemur skýrt fram hversu mikil áhrif veiðigjöld hafa á fyrir- tæki í kjördæminu og sennilega eru áhrif þeirra mest á Snæfells- nesi. Greiningin náði til stærstu fyrirtækja í bolfiskvinnslu með lög- heimili í póstnúmerunum 300 til og með 570. Samanstendur hún af fé- lögum sem greiddu 81,1% af veiði- gjöldum á þessu svæði fiskveiðiár- ið 2017/18. Sjávarútvegsfyrirtæki í Norðvesturkjördæmi greiddu 2,5 milljarða króna í veiðigjöld fyrir fiskveiðiárið 2017/18, en á landinu öllu voru veiðigjöld 11,2 milljarð- ar það ár. Til að setja þessar tölur um veiðigjöld í samhengi við aðrar fjárhagsstærðir hefur Vífill Karls- son hagfræðingur hjá SSV bent á að 2,5 milljarðar króna í veiði- gjöld sem fyrirtækin í kjördæminu eru að borga er álíka há upphæð og heildartekjur 2500 íbúa sveit- arfélags. „Snæfellsbær sem er með tekjuhærri sveitarfélögum og með íbúafjölda í kringum 1.650 er með heildartekjur upp á 1.850 milljónir króna,“ segir Vífill. Afnám sérstakrar lækkunar veiði- gjalda hefur umtalsverð áhrif á fyr- irtækin í landshlutanum. Reikn- ar Deliotte það út að ebitda væri um 7% lægri ef sérstakrar lækk- unar veiðigjalda nyti ekki við, en þar er um að ræða skuldaafslátt. Greindar eru í skýrslunni tekjur og ebitda framlegð þessara ára sem og greiðslugeta og arðsemi eiginfjár fyrirtækjanna. Meðal helstu niður- staðna þá lækkaði ebitda framlegð sjávarútvegsfélaga í Norðvestur- kjördæmi um 38% milli áranna 2016 og 2017. Tekjur fyrirtækj- anna drógust saman um 19% milli ára, en kostnaður lækkaði jafnframt nokkuð. Samanlögð ebitda þeirra 40 félaga sem mynda úrtakið nam 4,6 milljörðum króna árið 2017. Arðsemi eigin fjár var 4,8%. Á því tímabili sem var til skoðunar þró- uðust ytri hagstærðir almennt með neikvæðum hætti fyrir sjávarút- vegsfyrirtæki. Verðlag sjávarafurða hefur lækkað verulega í íslensk- um krónum og launavísitala hef- ur hækkað töluvert. Einnig hafði tveggja mánaða verkfall sjómanna neikvæð áhrif á tekjumyndun og framlegð félaganna á fiskveiðiárinu. Þá kemur fram að ebitda framlegð félaga sem stunda vinnslu dróst meira saman en þeirra sem einung- is eru í útgerð. Afkoma og tekjur lækkuðu í öllum veiðikerfum en hlutfallslega var samdráttur mestur hjá félögum í aflamarkskerfi. mm Skýrsla um áhrif veiðigjalda í Norðvesturkjördæmi Eigandi frönsku skútunnar Inook Lorient sem stolið var frá Ísafirði aðfararnótt sunnudagsins 14. októ- ber á Ísafirði kom til landsins síð- astliðið þriðjudagskvöld. Hélt hann rakleiðis vestur á Snæfellsnes næsta morgun til að kanna ástand skút- unnar sem liggur í Rifshöfn. „Ég er í áfalli yfir að skútunni hafi verið stolið,“ sagði eigandinn í samtali við Skessuhorn. Hann kvaðst engu að Eigandinn vitjaði skútu sinnar

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.