Skessuhorn


Skessuhorn - 24.10.2018, Síða 11

Skessuhorn - 24.10.2018, Síða 11
MIÐVIKUDAGUR 24. OKTÓBER 2018 11 Hlutverk sjóðsins er að stuðla að varðveislu og viðhaldi friðlýstra og friðaðra húsa og mannvirkja, sbr. reglur um úthlutun úr húsafriðunarsjóði nr. 577/2016. Veittir verða styrkir úr sjóðnum til: viðhalds og endurbóta á friðlýstum og friðuðum húsum og mannvirkjum, og öðrum húsum og mannvirkjum, sem hafa menningarsögulegt, vísindalegt eða listrænt gildi. byggingarsögulegra rannsókna, þar með talið skráningu húsa og mannvirkja, og miðlun upplýsinga um þær. sveitarfélaga til að vinna tillögur að verndarsvæði í byggð, í samræmi við ákvæði laga nr. 87/2015 og reglugerðar nr. 575/2016 um verndarsvæði í byggð og til verkefna innan verndarsvæða í byggð. Umsóknir eru metnar með tilliti til varðveislugildis, t.d. vegna byggingarlistar, menningarsögu, umhverfis, upprunaleika og tæknilegs ástands ásamt gildis fyrir varðveislu byggingararfleifðarinnar. Umsóknareyðublað og nánari upplýsingar, m.a. úthlutunarreglur, er að finna á vef Minjastofnunar Íslands, www.minjastofnun.is. Umsóknarfrestur er til og með 1. desember 2018. Umsóknir sem berast eftir að umsóknarfresti lýkur koma ekki til álita við úthlutun styrkja. Minjastofnun Íslands hefur eftirlit með að styrkt verkefni séu viðunandi af hendi leyst og í samræmi við innsend umsóknargögn. Bent er á leiðbeiningarit um verndarsvæði í byggð og um viðhald og endurbætur friðaðra og varðveisluverðra húsa sem finna má á vef Minjastofnunar Íslands (undir Gagnasafn) og á Húsverndarstofu í Borgarsögusafni Reykjavíkur/Árbæjarsafni. Suðurgötu 39,101 Reykjavík Sími: 570 1300 www.minjastofnun.is husafridunarsjodur@minjastofnun.is Minjastofnun Íslands auglýsir eftir umsóknum um styrki úr húsafriðunarsjóði fyrir árið 2019 Hæstiréttur kvað síðastliðinn fimmtudag upp þann úrskurð að Lyf og heilsa skuli greiða Apóteki Vesturlands 4,5 milljónir króna í bætur, auk vaxta, vegna tjóns af völdum samkeppnisbrota fyrr- nefnda fyrirtækisins fyrir rúmum áratug síðan. Með dómi Hæsta- réttar er snúið við niðurstöðu Hér- aðsdóms Reykjavíkur í málinu og er Lyf og heilsa auk þess dæmd til greiðslu alls málskostnaðar, eða átta milljóna króna fyrir héraðs- dómi og í Hæstarétti. Tveir dóm- arar skiluðu sératkvæði og vildu dæma Lyfjum og heilsu í vil þar sem þeir töldu ekki sannað að Apó- tek Vesturlands hefði orðið fyr- ir fjártjóni vegna brota Lyfja og heilsu. Vildu þeir staðfesta sýknu- dóm Héraðsdóms Reykjavíkur og auk þess dæma Apótek Vesturlands til greiðslu málskostnaðar. Rót skaðabótamálsins má rekja allt til ársins 2010 þegar áfrýjun- arnefnd samkeppnismála úrskurð- aði að Lyf og heilsa hefði brotið gegn samkeppnislögum með því að hafa nýtt sér markaðsráðandi stöðu sína til að hindra innkomu Apó- teks Vesturlands á lyfsölumarkað á Akranesi árið 2007. Eftir opn- un Apóteks Vesturlands á Akra- nesi brást Lyf og heilsa við með því að bjóða viðskiptavinum upp á afslætti sem einvörðungu stóðu til boða í verslun lyfsölufyrirtækis- ins á Akranesi en ekki í öðrum 24 verslunum lyfsölukeðjunnar. Þetta hafi fyrirtækið m.a. gert með út- gáfu vildarkorta og með svonefnd- um baráttuafsláttum. Hæstiréttur staðfesti þann úrskurð árið 2012. Í kjölfarið krafði Apótek Vestur- lands Lyf og heilsu um rúmar átján milljónir króna í skaðabætur vegna tjóns sem það hefði orðið fyrir vegna samkeppnisbrotanna. Hér- aðsdómur Reykjavíkur sýknaði Lyf og heilsu af kröfunni í janúar í fyrra en meirihluti dómara í Hæstarétti, eins og fyrr segir, snéri þeim úr- skurði nú við og dæmdi Apóteki Vesturlands í vil. Löng vegferð að baki Ólafur Adolfsson lyfsali rekur Apó- tek Vesturlands. Hann var að von- um sæll með lyktir málsins þegar Skessuhorn heyrði í honum hljóð- ið. Hann segir langa vegferð að baki en málið teygi anga sína ellefu ár aftur í tímann, eða allt til þess tíma sem hann opnaði apótek á Akranesi sumarið 2007. „Nú eru níu ár síðan úrskurðarnefnd samkeppnismála kvað upp þann úrskurð að á fyr- irtæki mínu hafi verið brotið með ólögmætum samkeppnishindrun- um. Það er nú búið að taka níu ár að kalla fram þessa niðurstöðu, sem mér finnst að sjálfsögðu allt- of langur tími. En það breytir ekki því að ég er ánægður með lyktir málsins og hefði í raun ekki getað fengið ánægjulegri afmælisgjöf,“ sagði Ólafur sem einmitt fagn- aði 51 árs afmæli sínu sama dag og dómur Hæstaréttar féll. „Það sem þessi dómur ætti að kenna okk- ur er að fagna samkeppni, en hún verður að sjálfsögðu alltaf að vera á heiðarlegum nótum,“ segir Ólafur Adolfsson. mm Apóteki Vesturlands dæmdar bætur í Hæstarétti Lyfjum og heilsu gert að greiða sekt fyrir samkeppnisbrot Ólafur Adolfsson lyfsali í Apóteki Vesturlands.

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.