Skessuhorn


Skessuhorn - 24.10.2018, Blaðsíða 12

Skessuhorn - 24.10.2018, Blaðsíða 12
MIÐVIKUDAGUR 24. OKTÓBER 201812 Kúariða hefur greinst á nautgri- pabúi í Skotlandi. Þetta er fyrsta til- felli hefðbundinnar kúariðu í land- inu í tíu ár. Fáein tilfelli hafa komið upp í Evrópu á undanförnum árum en lítil hætta er á að sjúkdómur- inn komi upp á Íslandi, samkvæmt tilkynningu frá Matvælastofnun. Dreifingarbann hefur verið sett á nautgripi frá búi í Aberdeenshire í Skotlandi eftir að kúariða greindist við reglubundna sýnatöku úr dauð- um grip frá búinu. Þarlend stjórn- völd telja að neytendum og bú- greininni stafi ekki hætta af frekara smiti skv. upplýsingum yfirvalda þar í landi. Hættan á að kúariða komi upp á Íslandi er óveruleg sökum þess að hún hefur aldrei greinst hér á landi, lifandi nautgripir hafa ekki verið fluttir inn síðan 1933, bannað hef- ur verið að flytja inn kjöt- og beina- mjöl síðan 1968 og óheimilt er að fóðra nautgripi á kjöt- og beina- mjöli síðan 1978. Kúariða er ekki smitandi sjúkdómur á milli naut- gripa. Smitefnið finnst ekki í mjólk eða mjólkurvörum. Rannsóknir benda til þess að eini áhættuþáttur- inn í dreifingu sjúkdómsins sé þeg- ar nautgripir eru fóðraðir á kjöti eða beinamjöli úr sýktum nautgrip- um. Kúariða getur borist í menn með neyslu á sýktu kjöti (Creutz- feldt-Jakob). Árið 2017 greindust sex kúa- riðutilvik innan Evrópusambands- ins (þrjú á Spáni, tvö í Frakklandi og eitt á Írlandi). Auk þess greind- ist eitt tilfelli í Bandaríkjunum. Öll tilvikin voru af óhefðbundnu kúa- riðugerðinni. mm Fyrsta tilfelli kúariðu í Skotlandi í áratug Þórdís Kolbrún R Gylfadótt- ir ferðamálaráðherra hefur birt á samráðsgátt stjórnvalda frum- varp til laga sem breytir ákvæðum varðandi heimagistingu í landinu. Breytingarnar sem lagðar eru til varða allar starfssvið Sýslumanns- ins á höfuðborgarsvæðinu sem hefur umsjón með skráningu og eftirliti á heimagistingu í landinu. Frumvarpið verður í opnu samráði til 24. október nk. Í fyrsta lagi er lagt til að skrán- ing heimagistingar verði bundin við bæði þinglýst eignarhald og lögheimili en samkvæmt núgild- andi löggjöf er skráningin ein- göngu bundin við lögheimili. Með þeirri breytingu er markmiðið að koma í veg fyrir lögheimilisskrán- ingar til málamynda. Í öðru lagi er lagt til að sýslumaður geti lagt stjórnvaldssektir á þá sem reka leyfisskylda gististarfsemi án leyf- is, en samkvæmt núgildandi lög- gjöf ber sýslumanni að senda slík brot áfram til viðkomandi lög- reglustjóra. Sýslumaður hefur hins vegar heimild til að beita ein- staklinga stjórnvaldssektum vegna brota á skráningarskyldu heima- gistingar. Því hefur verið mun- ur á málsmeðferð aðila sem leiðir til þess að búast má við að hærri sekt liggi við því að stunda óskráða heimagistingu en ólöglega rekstr- arleyfisskylda starfsemi í atvinnu- skyni. Reynslan sýnir að sjaldan eru gefnar út ákærur í slíkum mál- um heldur er þeim lokið með lög- reglusekt. Markmiðið er að koma í veg fyrir ólíkar niðurstöður vegna sambærilegra brota, flýta máls- meðferð og draga úr kostnaði sem hlýst af formlegri og kostnaðar- samri ákærumeðferð fyrir dóm- stólum. Í þriðja lagi er lagt til að sýslu- maður fái heimild til að beita stjórnvaldssektum ef aðili með skráða heimagistingu skilar ekki inn nýtingaryfirliti í samræmi við ákvæði laganna. Hann hefur til þessa ekki haft nein úrræði til að knýja fram skil á nýtingaryfir- liti sem torveldar eftirlitshlutverk hans. mm Skerpt á reglum um heima- gistingu í nýju frumvarpi Fyrirtækið EM Orka mun standa fyrir kynningarfundi vegna fyr- irhugaðs vindorkugarðs í landi Garpsdals í Gilsfirði í kvöld, mið- vikudaginn 24. október. Þar verður verkefnið kynnt, farið yfir hvernig það mun birtast íbúum í nágrenn- inu og hver ávinningur Reykhóla- hrepps mun verða af því. Þá munu fulltrúar verkfræðistofunnar Mann- vits kynna umhverfismats verkefn- isins. Fundurinn verður haldinn í Nes- heimum, gamla Kaupfélagshúsinu í Króksfjarðarnesi og hefst kl. 20:00. kgk/ Ljósm. úr safni. Kynningarfundur um vindorkugarð í Garpsdal Mikil umræða hefur verið um erfitt rekstrarumhverfi fyrirtækja í ferða- þjónustu og því haldið fram að af- koma þeirra hafi versnað á síðustu misserum. Til að kanna hvort þessi staðhæfing ætti við rök að styðjast fól Ferðamálastofa endurskoðun- arfyrirtækinu KPMG að gera út- tekt á rekstri fyrirtækja í ferðaþjón- ustu. Niðurstaðan hefur nú verið kynnt í viðamikilli skýrslu. Fram kemur að ebidta framlegð hótela á landsbyggðinni var almennt mun lakari en á höfuðborgarsvæðinu á fyrstu sex mánuðum ársins 2018. Hún var í raun neikvæð á lands- byggðinni í öllum landshlutum, en jákvæð á höfuðborgarsvæðinu. Af- koma fyrirtækja virðist versna eftir því sem fjær dregur höfuðborgar- svæðinu. Ebidta framlegð fyrstu 6 mánuði 2018 var neikvæð á Suður- landi um 1% af veltu, neikvæð um 6,1% af veltu á Vesturlandi, en á Norðurlandi var hún neikvæð um 20,4%. Virðist þetta staðfesta þá skoðun að ferðamenn dvelji skem- ur á landinu, gisti mest á höfuð- borgarsvæðinu en fari síður út á land og því minna sem fjær dregur höfuðborginni. Fram kemur í skýrslu KPMG að laun sem hlutfall af tekjum hafa hækkað mikið og eru þau að jafn- aði hærra hlutfall af tekjum hjá hótelum á landsbyggðinni en á höfuðborgarsvæðinu. Laun sem hlutfall af tekjum námu 46,9% hjá hótelum á landsbyggðinni 2017 en þetta hlutfall var 38,7% á höfuð- borgarsvæðinu. Meðalverð á her- bergi og herbergjanýting er mun lægri á landsbyggðinni en á höfuð- borgarsvæðinu. mm Rekstrarafkoma landsbyggðar- hótela versnar til muna Sýn hf, móðurfélag Vodafone á Ís- landi, vill fá að koma á framfæri upplýsingum í framhaldi af birt- ingu fréttar Skessuhorns í síð- asta tölublaði undir fyrirsögninni „Vodafone vill leggja af fjarskipta- samband í Hítardal.“ Í tilkynningu frá Vodafone kemur fram að fyrir- tækið er í samskiptum við sveitar- stjórn Borgarbyggðar um stöðuna í Hítardal. „Við vonumst eftir ásætt- anlegri lausn á málinu. Vodafone mun áfram leggja metnað sinn í að veita öllum íbúum Borgarbyggðar góða þjónustu, eins og við leggjum okkur fram um að þjónusta land- ið allt sem best. Sem dæmi um það má nefna að 4G dreifing Vodafone er mjög víðtæk bæði yfir landið og miðin en dreifingin nær til meira en 98% landsmanna eftir búsetu en það hvíla ekki alþjónustukvaðir á Vodafone lögum samkvæmt,“ segir í tilkynningu frá fyrirtækinu. Vodafone bendir á að Fjarskipta- sjóður styrkir ljósleiðaravæðingu sveitarfélaga og Hítardalur gæti verið forgangsverkefni sé tekið mið af stöðunni þar. Forsaga málsins, samkvæmt tilkynningu Vodafone, er að Lofthraði, sem hefur oft verið kennt við eMax þráðlaus fjarskipti, fylgdi með í kaupum Vodafone á fjarskiptahluta 365 samstæðunn- ar. Í kjölfar sameiningarinnar við Vodafone var ákveðið að samþætta núverandi fjarskiptakerfi Vodafone við þráðlaust fjarskiptakerfi Loft- hraða/eMax á 6 – 8 mánuðum. Var sú ákvörðun byggð á nokkrum þáttum, meðal annars því að not- endum kerfisins hefur fækkað mjög undanfarin ár, eða úr u.þ.b. 1.500 niður í u.þ.b. 200. Tekjur kerfisins duga því ekki lengur fyrir rekstrar- útgjöldum. Þá er kerfi Lofthraða/ eMax að mestu leyti byggt upp á opnu tíðnisviði, sem getur eitt og sér leitt til truflana á fjarskiptum með neikvæðum afleiðingum fyr- ir notanda. Því er kerfi Lofthraða/ eMax a.m.k. að hluta til orðin úr- elt þar sem hröð þróun hefur orð- ið m.a. í öðrum kerfum, svo sem með uppbyggingu ljósleiðarakerfa í dreifbýli og hraðri þróun í 4G og 4,5G farsímakerfum. Þá segir í tilkynningu upplýs- ingafulltrúa Vodafone að ákvörðun fyrirtækisins hafi verið kynnt öllum notendum Lofthraða/eMax ítarlega með bréfi og notendum boðin net-, farsíma-, heimasíma- og sjónvarps- þjónusta í samræmi við það sem er í boði á hverjum stað og það kynnt í fjölmiðlum. „Þannig gafst öllum hlutaðeigandi rúmur frestur til að gera ráðstafanir og undirbúa þess- ar breytingar,“ segir í tilkynningu frá Vodafone vegna fréttar Skessu- horns. mm Vodafone í viðræðum um fjarskiptasamband í Hítardal Hítardalur.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.