Skessuhorn - 24.10.2018, Page 15
MIÐVIKUDAGUR 24. OKTÓBER 2018 15
„Læknum rofið land, ljóðin heiðrum dýr …"
Rithöfundar lesa úr verkum sínum
Mánudaginn 29. október kl. 20:00 á Bókasafni Akraness
Sigurbjörg Þrastardóttir stýrir dagskrá
Fram koma:
Bjarni M. Bjarnason: Læknishúsið
Bubbi Morthens: Rof
Sigurbjörg Þrastardóttir: Hryggdýr
Sólveig Jónsdóttir: Heiður
Þórarinn Eldjárn: Vammfirring og Ljóðpundari
Þórunn Jarla Valdimarsdóttir: Skúli fógeti
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
8
Bókasafn Akraness • Dalbraut 1 • s. 433 1200 bokasafn.akranes.is • bokasafn@akranessofn.is
Allir velkomnir.
Kaffiveitingar. Bækur til sölu á góðum kjörum.
AKRANES
Hvítárbrúin 90 ára
Opnun sögusýningar í Safnahúsi
1. nóvember kl. 19.30
Fimmtudaginn 1. nóv. verða liðin 90 ár frá
vígslu Hvítárbrúarinnar við Ferjukot.
Þann dag opnum við yfirgripsmikla sýningu
um brúna og er verkefnið helgað minningu
Þorkels Fjeldsted í Ferjukoti. Sýningarstjóri
er Helgi Bjarnason og hönnuður Heiður
Hörn Hjartardóttir.
Við opnunina verður boðið upp á
kaffihressingu. Verið hjartanlega velkomin.
433 7200 - safnahus@safnahus.is
Bjarnarbraut 4-6, Borgarnesi
Sýningin er í Hallsteinssal. Hún er einn
dagskrárliða á Menningararfsári
Evrópu í samvinnu við Minjastofnun
Íslands. Hún verður opnuð 1. nóv. kl.
19.30 með samkomu á neðri hæð
Safnahúss og stendur til 12. mars
2019. Opnunartímar: kl. 13.00 -
18.00 virka daga eða eftir
samkomulagi. Ókeypis aðgangur.
Ef breytingar verða á auglýstum
opnunardegi vegna veðurs verður það
tilkynnt á www.safnahus.is
Vel var mætt á minningarsamveru
sem haldin var í Borgarneskirkju að
kvöldi föstudagsins 12. október síð-
astliðinn. Þar var Atla Snæs Jóns-
sonar minnst, en þennan sama dag
voru 22 ár frá fæðingu hans og ríf-
lega 20 ár frá því hann lést. Ýmsir
listamenn stigu á stokk og má þar
nefna Svavar Knút, Þóru Sif, Daða,
Anítu, Viðar og Barböru. Eng-
inn aðgangseyrir var að tónleikun-
um, en söfnunarbaukur var hafð-
ur í anddyri þar sem gestir gátu
minnst Atla Snæs og gefið í söfnun
til styrktar Barnaspítala Hringsins,
þar sem litli drengurinn bjó nánast
allt sitt líf. Söfnuðust 370 þúsund
krónur. Sædís Björk Þórðardóttir,
móðir Atla Snæs, skipulagði minn-
ingarsamveruna. Vill hún koma á
framfæri kærri þökk til þeirra sem
lögðu henni lið og þeim 200 gest-
um sem komu á samverustundina.
mm
Húsfyllir á minningar-
samveru um Atla Snæ
Uppselt er á öll hjónanámskeið árs-
ins hjá séra Þórhalli Heimissyni, en
hann hefur staðið fyrir slíkum nám-
skeiðum í 23 ár. Hann hefur nú opn-
að fyrir skráningu á fyrsta hjóna-
námskeið ársins 2019 sem haldið
verður í Reykjavík 14. janúar næst-
komandi. Námskeiðið verður með
hefbundnum hætti, stuttir fyrirlestr-
ar, verkefni, æfingar og samtal. Eft-
ir námskeiðið fá pörin með heim sjö
vikna heimaverkefni.
„Námskeiðið hentar öllum ald-
urshópum og tekur aðeins eina
kvöldstund, hefst klukkan 19.00.
Það er ætlað öllum pörum í sambúð,
giftum jafnt sem ógiftum og henta
bæði fyrir fólk sem vill gera gott
samband betra og hin sem þurfa að
taka á vandamálum. Fjallað er um
ástina, samskipti, kynlífið, börnin,
vinnuna, peningana, vandamál sem
upp kunna að koma í sambúð - en
fyrst og fremst lausnir og hvað hægt
er að gera til að bæta og styrkja sam-
bandið,“ segir í tilkynningu. mm
Uppselt á hjóna-
námskeið þessa árs
Vitinn, félag áhugaljósmyndara á
Akranesi, verður með ljósmyndasýningu
í Tónlistarskóla Akraness á Vökudögum.
Sýningin verður opnuð formlega föstudags-
kvöldið 26. október kl. 19:30, en verður svo
opin á opnunartímum Tónlistarskólans á meðan
Vökudögum stendur.
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
8