Skessuhorn


Skessuhorn - 24.10.2018, Qupperneq 22

Skessuhorn - 24.10.2018, Qupperneq 22
MIÐVIKUDAGUR 24. OKTÓBER 201822 Svona verkefni hafa oft leitt af sér góða vináttu sem endist mörg ár,“ bætir hún við. Prjóna fyrir Hvíta Rússland Öll mánudagskvöld á milli klukk- an 20 og 22 hittist prjónahóp- ur í Rauðakrossbúðinni og prjón- ar teppi, húfur, vettlinga og sokka sem svo verður sent til Hvíta Rúss- lands. „Þetta er verkefni undir stjórn Guðnýjar Margrétar Ing- varsdóttur og Halldóru Ragnars- dóttur og geta allir áhugasam- ir tekið þátt. Fyrir þá sem þurfa er hægt að fá leiðsögn svo það er engin krafa um að vera flinkur að prjóna,“ segir Guðrún Vala. Rauði krossinn útvegar allt garn í verk- efnið. Áhugasamir prjónarar þurfa því aðeins að mæta með góða skap- ið á mánudagskvöldum og eiga kvöldstund í góðum félagsskap og styrkja gott málefni í leiðinni. „Þátttaka mætti vera betri en það hafa sex konur mætt undanfarna mánudaga. Ég lofa að þetta er mjög skemmtilegt og það er engin krafa að mæta í hverri viku. Félagsstarfið í Brákarhlíð hefur einnig tekið þátt í verkefninu með því að prjóna fyr- ir okkur og erum við mjög þakklát fyrir það og stefnum á áframhald- andi samstarf.“ Talþjálfun á íslensku Nýtt verkefni sem Borgarfjarð- ardeild Rauða krossins mun fara af stað með í vetur er talþjálf- un á íslensku undir stjórn Guð- nýjar Guðmarsdóttur. Verkefnið er unnið í samstarfi við Símennt- unarmiðstöðina og er hugmyndin að sjálfboðaliðar og innflytjend- ur hittist og kynnist. „Við verðum alltaf með þemu í gangi sem tengj- ast Íslandi á einhvern hátt. Fyrsta kvöldið verður 10. desember og þá mun þemað vera íslensk jól. Við munum þá kynna innflytjendur fyrir okkar jólahefðum,“ útskýr- ir Guðrún Vala. „Þetta er verkefni sem ég held að geti bæði hjálpað innflytjendum að komast betur inn í samfélagið og okkur að kynnast þeim.“ Þeir sem hafa áhuga á að taka gerast sjálfboðaliðar og taka þátt í þessu geta haft samband við Guðnýju eða við Rauða krossinn. Stofna neyðarvarnarnefnd Eitt af brýnustu verkefnum Rauða krossins í Borgarbyggð er að efla neyðarvarnir og stendur nú til að skipa sérstaka neyðarvarnarnefnd. „Það hefur verið mikil og auk- in krafa gerð á Rauða krossinn varðandi neyðarvarnir, að koma fram með skýra stefnu og kynna hana fyrir íbúum. Við erum með fjöldahjálparstöðvar í Borgarnesi, á Hvanneyri og á Bifröst og er nú hugmynd um að koma einnig slíkri stöð upp í Húsafelli. Þetta er mik- ið forgangsmál hjá okkur og í vet- ur ætlum við að koma neyðarvörn- um vel í gang hér í Borgarbyggð,“ segir Guðrún Vala. Þá býður Rauði krossinn upp á skyndihjálparnám- skeið og hvetur Guðrún Vala þá sem óska eftir slíku námskeiði að hafa samband. „Venjulega eru þetta fyrirtæki sem óska eftir nám- skeiðum fyrir sitt starfsfólk og það er vert að minna á að það er alltaf gott fyrir fólk að skerpa á kunnátt- unni með reglulegum námskeið- um.“ Þá vill Guðrún Vala benda á að Rauði krossinn taki alltaf vel á móti öllum sjálfboðaliðum. „Það er í heild mjög jákvæður og góður hópur sjálfboðaliða sem starfar fyr- ir Rauða krossinn í Borgarfirði, og eru þeir í raun burðarásinn í allri starfsemi okkar. Stjórnin okkar er líka góð og starfar vel saman. Ég get fullyrt að starfið innan Rauða krossins er afskaplega skemmti- legt og gefandi,“ segir hún glöð að endingu. arg Bleiki dagurinn nýtur sívax- andi athygli landsmanna. Þenn- an októberdag er fólk hvatt til að klæðast bleiku og hafa bleikt í fyrirrúmi. Tilefnið er árvek- niátak um brjóstakrabbamein. Í október eru einnig ýmis mann- virki lýst upp með bleikum ljós- um til að sýna samstöðu. Félagar í Lionsklúbbi Ólafsvíkur láta sitt ekki eftir liggja og hafa því lýst Tindinn upp með bleikum ljós- um og munu þau loga út októ- bermánuð. þa Tindurinn bleikur í október Stjórn Borgarfjarðardeildar Rauða krossins hélt fund síðastliðinn mánudag þar sem starfsemi kom- andi vetrar var skipulögð. Blaða- maður heyrði í Guðrúnu Völu El- ísdóttur formanni Borgarfjarðar- deildar Rauða krossins eftir fund- inn og rædd við hana um áherslur vetrarins. Eitt af stærri verkefn- um RKÍ í Borgarfirði er fataversl- un sem deildin hefur rekið í Borg- arnesi um nokkurra ára skeið. Þar er að finna fatnað og skó í öllum stærðum og gerðum. Rauðakross- búðin, eins og hún er alla jafnan kölluð, er nú staðsett að Brákar- braut 3, við hliðina á Dússabar. Í vetur verður opnunartími í versl- uninni á milli klukkan 15 og 18 á föstudögum og 13 og 16 á laugar- dögum. Leynast alltaf gullmolar í búðinni Vörurnar sem seldar eru í Rauða- krossbúðinni koma allar að sunn- an. „Við erum með söfnunargám fyrir notuð föt í Borgarnesi en fólk þarf ekki að hafa áhyggjur af því að finna fötin sín í versluninni hjá okkur. Allt sem safnast í gáminn hér fer annað hvort úr landi eða í verslanir í öðrum landshlutum,“ útskýrir Guðrún Vala og hvetur alla til að kíkja við í Rauðakross- búðina, því þar leynast allskonar gullmolar. „Við fáum alltaf reglu- lega fallega merkjavöru og ann- an vandaðan fatnað,“ segir hún og bætir því við að lopapeysur væru vel þegnar í verslunina. „Við tök- um öllum lopafatnaði fagnandi og það er í góðu lagi þó fötin séu göt- ótt því við kunnum að laga það. Lopafatnað má koma með beint í búðina til okkar, en ferðamenn- irnir eru æstir í lopapeysur svo þær stoppa ekki lengi hjá okkur.“ Guð- rún Vala segir enn fremur mikið úrval af barnafatnaði og stundum sé hægt að gera extra góð kaup á pokadögum annað slagið sem eru auglýstir sérstaklega. Núna um helgina verður hægt að gera góð kaup á buxum, þar sem allar buxur kosta 500 krónur. Þá áréttar Guð- rún Vala að Rauði krossinn taki á móti öllum fatnaði í söfnunargám- ana. „Það er allt notað sem safnast í gámana, hvort sem það er rúm- fatnaður, nærföt, eða annar fatnað- ur. Allt sem ekki er heilt er nýtt í vefnað eða endurunnið á einhvern hátt.“ „Borgarnes borðar saman“ Rauði krossinn er nú að fara af stað með nýtt verkefni sem kallast „Borgarnes borðar saman“. „Borg- nesingurinn Heiðrún Bjarnadóttir mun sjá um verkefnið en hún er nýlega flutt heim frá Danmörku þaðan sem hún tekur þessa hug- mynd með sér. Hugmyndin er að fólk af ólíkum uppruna og aldri komi saman yfir máltíð í Safnaðar- heimilinu. Búið væri að elda áður þannig að fólki þyrfti ekki að sjá um matinn, bara koma saman til að borða,“ útskýrir Guðrún Vala. „Þetta gæti verið góð samveru- stund þar sem fólk spjallar saman og kynnist hvert öðru. Ég sé fyrir mér að þetta væri góður vettvang- ur fyrir þá sem eru nýfluttir í Borg- arnes að kynnast öðrum íbúum.“ Viðburðurinn verður sérstaklega auglýstur þegar nákvæm dagsetn- ing liggur fyrir. „Við stefnum á að hafa fyrsta skiptið í nóvember og svo í hverjum mánuði eftir það,“ segir Guðrún Vala. Vantar fólk fyrir heimsóknarvini Verkefnið „heimsóknarvinir“ er í umsjón Margrétar Ástrósar Helga- dóttur. Það gengur út á að sjálf- boðaliðar heimsæki fólk sem af einhverjum ástæðum stendur höll- um fæti félagslega. Það getur t.d. verið eldra fólk, fatlaðir eða bara þeir sem af einhverjum ástæðum eru einmana. „Fyrirkomulag heim- sóknanna getur í raun verið hvern- ig sem er. Sjálfboðaliðar geta heim- sótt fólk eða jafnvel hitt viðkom- andi á kaffihúsi, það fer bara eftir því hvað hentar best fyrir báða að- ila. Ef fólk kýs væri jafnvel hægt að spjalla saman í síma,“ segir Guð- rún Vala og bætir því við margir sjálfboðaliðar hafi boðið sig fram í þetta verkefni. „Okkur vantar bara fólk sem vill fá heimsóknir,“ segir hún. „Ef einhver gæti notið góðs af svona heimsóknum eða veit um einhvern sem gæti gert það er hægt að hafa samband við Mar- gréti eða bara við Rauða krossinn. Vetrarstarf Rauða krossins í Borgarfirði skipulagt Rætt við Guðrúnu Völu formann Borgarfjarðardeildar Rauða krossins Frá vinstri: Dorota Gluszuk sjálfboðaliði, Halldóra Ragnarsdóttir gjaldkeri og Guðrún Vala Elísdóttir formaður.

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.