Skessuhorn - 24.10.2018, Side 28
MIÐVIKUDAGUR 24. OKTÓBER 201828
Eitruð blanda:
97% á móti 3%
Vörur og þjónusta
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
H P Pípulagnir ehf.
Alhliða pípulagnaþjónusta
Hilmir 820-3722
Páll 699-4067
hppipulagnir@gmail.com
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
8
TEK AÐ MÉR GARÐAÚÐUN ALLA DAGA VIKUNNAR
GARÐAÚÐUN REYNIS SIG
SÍMI: 899-0304
Fyrir alla vigtun
Húsarafmagn
Töflusmíði
Iðnaðarrafmagn
Bátarafmagn
Bílarafmagn
RAFMAGN
vogir@vogir.is Sími 433-2202
VOGIR
Bílavogir
Kranavogir
Skeifuvogir
Pallvogir
Aflestrarhausar
Hönnun prentgripa
& alhliða prentþjónusta
Drei bréf - Boðsbréf
Ritgerðir - Skýrslur
Reikningar - Eyðublöð
Umslög - Bréfsefni
Fjölritunar- og
útgáfuþjónustan
Getum við
aðstoðað þig?
sími: 437 2360
olgeirhelgi@islandia.is
www.skessuhorn.is
Á íbúafundi fyrir Vesturland sem
haldinn var í Menntaskólanum í
Borgarnesi árið 2010 var lögð sér-
stök áhersla á að tenging Vestur-
lands og Suðurlands með bundnu
slitlagi á Uxahryggjaleið væri mik-
ilvæg samgöngubót. Ég hygg að
þessi áhersla sé enn ríkjandi hjá
íbúum svæðisins. Ferðamálasam-
tök Vesturlands hafa og margí-
trekað mikilvægi þessarar veg-
tengingar, sem liggur um 60 km.
frá Borgarfjarðarbraut (miðjum
Borgarfirði) eftir Lundarreykjar-
dal, um Uxahyggi og Þjóðgarðinn
á Þingvöllum. Ákveðið var í sam-
gönguáætlun árið 2011 að vinna
að þessari vegagerð, leggja bundið
slitlag í áföngum og fullklára á ár-
unum 2019/20.
Aðeins til að skýra verkefnið og
stöðuna: Búið er að leggja bund-
ið slitlag frá vegamótunum Borg-
arfjarðarbrautar að Brautartungu
í Lundarreykjardal og frá Ux-
ahryggjarvegamótum að Þingvöll-
um. Eftir á að leggja bundið slitlag
frá Brautartungu að Uxahryggjar-
vegamótum og innan Þjóðgarðsins
á Þingvöllum.
Í samgönguáætlun sem nú ligg-
ur fyrir Alþingi hefur sú breyt-
ing átt sér stað að framkvæmdin
frá Brautartungu að Uxahryggj-
arvegamótum er færð til 2024/28
en vegagerðin innan Þjóðgarðsins
á Þingvöllum, tengingin við Þing-
vallaveg, er ekki að finna í áætlun-
inni.
Rökin eru næg
Helstu forsendur frá sjónarhorni
Vestlendinga fyrir endurbótum og
lagningu bundins slitlags á um-
rædda leið sem í daglegu tali er
nefnd Uxahryggjaleið, eru:
Að vegalengdin frá miðju Vest-•
urlandi yfir til Þingvalla verður
60 km greiðfær, heilsárs leið sem
tengir saman þá landshluta sem
næst liggja höfuðboragarsvæð-
inu.
Í stað þess að beina allri umferð •
af Vesturlandi til Suðurlands eftir
Vesturlandsvegi í átt til Reykja-
víkur er hægt að þvera landið og
þannig er leiðin til Þingvalla 60
km í stað 110.
Með fullklárun þessarar vega-•
gerðar opnast möguleiki á dags-
hringferðum út frá höfðuborgar-
svæðinu til Vesturlands.
Með fullklárun skapast sam-•
göngubót fyrir íbúa og fyrirtæki
beggja landshlutanna.
Gott aðgengi opnast á afar fal-•
lega leið sem gefur ferðafólki
möguleika á að njóta einstakrar
námundunar við íslenska nátt-
úru.
Uxahryggjarleið með bundnu •
slitlagi gæti leitt til þess að um-
ferð léttist verulega á hámarks-
annatímum á Vesturlandsvegi.
Það stingur í augun, að fyrir-
liggjandi tillaga í samgönguáæt-
un um að fresta lagningu vegarins
frá Brautartungu að Uxahryggj-
arvegamótum og slá af vegagerð
innan Þjóðgarðsins á Þingvöll-
um, gengur algjörlega á móti yfir-
lýstum forsendum áætlunarinnar.
Samgönguráðherra hefur klifað
á því viðtal eftir viðtal að megin-
forsenda samgönguáætlunar sé;
öryggissjónarmið. Mikilvægasti
þáttur öryggis í samgöngugerð er
að dreifa umferðinni. Það er ein-
mitt aðall Uxahryggjarleiðarinnar.
Náist það markmið má t.d. örugg-
lega endurmeta gerð nýrra Hval-
fjarðargangna sem koma til með
að kosta gríðarlega mikið fé.
Vanræksla bætir upp
vanrækslu
Í samgönguáætlun er falin ákvörð-
un um stórfellda endurbót á Vest-
fjörðum. Öll höfum við fylgst með
deilunum og öll viljum við sjá góða
vegi á Vestfjörðum. En í sam-
gönguáætlun er líka falin algjört
ákvörðunar- og framkvæmdaleysi
í samgöngum á Vesturlandi. Töl-
urnar tala sínu máli. Heildarkostn-
aður fyrsta áfanga fyrir það sem
kallað er Vestursvæði er 17.880
milljarðar og skiptist þannig: Vest-
urland (Hvalfjarðarsveit, Borgar-
fjörður, Snæfellsnes, Dalir) 550
milljónir eða 3%. Vesfirðir 17.330
milljarðar eða 97%. Svakaleg slag-
síða á útdeilingu fjármagns, sem
hýtur að vekja upp spurningu. Er
sanngjarnt að bæta vanrækslu sam-
göngumála á Vestfjörðum upp
með vanrækslu á Vesturlandi?
Uxahryggjaleið spannar
tvö kjördæmi
Mikil uppbygging hefur átt sér stað
á Vesturlandi undanfarið og hefur
verið litið til þess að Uxahryggja-
leið opni viðbótarmöguleika þeg-
ar hún kláraðist 2019/20 eins og
gildandi samgönguáætlun gerir
ráð fyrir. Það kemur því á óvart að
eftir að verkið er hálfnað skuli vera
uppi hugmyndir um að klára það
ekki. Það eru einfaldlega öll rök
fyrir því að ljúka því sem hafið er
og engin rök fyrir því að gera það
ekki. Málið snýst ekki um fjárhags-
lega getu heldur hugarfarslega.
Staðreyndin er sú að að samgöngu-
legar áherslur og útdeilingar eru
kjördæmapólitískar. Uxahryggja-
leið spannar tvö kjördæmi. Eft-
ir að hafa fylgt þessu máli í rúman
áratug veit ég að áhuginn er marg-
fallt meiri á Vesturlandi en Suður-
landi. Nú liggur fyrir í nýrri sam-
gönguáætlun að ekki stendur til að
klára þann hluta vegagerðarinnar
sem eftir er á Suðulandi og fresta
á Vesturlandi um 10 ár. Frestun-
in gæti alveg eins verið upptaktur-
inn af því að slá þann kafla alveg af
því þau sjónarmið eru vel kunn að
miklu betra sé að halda traffíkinni
á Suðurlandi og óþarfi að tappa
henni af til vesturs. Sunnlenskur
ráðherra hefur séð um að brugga
samgöngukokteilinn og vestlensk-
ir fulltrúar íbúanna súpa meðvirkir
á. Eða hvað?
Steinar Berg Ísleifsson.
Höfundur er ferðaþjónustubóndi í
Fossatúni og áhugamaður um bættar
vegasamgöngur á Vesturlandi.
Pennagrein Heilsupistill
Steinunnar Evu
Við fullorðna fólkið getum bug-
ast þegar erfiðleikar verða of mikl-
ir. Hvar bugunarþröskuldur hvers
og eins liggur er mismunandi. Það
fer bæði eftir einstaklingunum og
því hvernig við erum á okkur kom-
in að takast á við það einmitt þegar
það gerist. Ef áfall hittir þig þegar
þú ert t.d. búin að sofa illa í lang-
an tíma eða sinna langveikum maka,
þá ertu verr í stakk búin en ella. Ef
það sama gerist þegar þú ert í góðu
líkamlegu og andlegu formi þolir
þú meira. Þar sem við vitum aldrei
hvað næsta manneskja er að fást við
er ekki gagnlegt að hugsa: „Ég hef
nú séð það miklu svartara en þessi
og ekki brotnaði ég.“ En hvað er þá
gagnlegt þegar erfiðleikar steðja að?
(Svaraðu því í huganum eða á blað,
því það getur einmitt verið hagnýtt
að hafa íhugað það fyrirfram hvað
hefur hjálpað þér áður).
Aðspurt nefnir fólk oft hugarfar.
Það að hafa þrautseigju, von og hafa
áður sigrast á erfiðleikum. Það sem
er erfitt er oft mikilvægt og ógnvæn-
legt en ekki endilega óyfirstíganlegt
né hættulegt. Ef við endurskilgrein-
um álag og streitu sem áskorun en
ekki ógn gjörbreytir það upplifun-
inni. Til dæmis að reyna að sjá það
að missa vinnuna og fara á bætur
sem tækifæri til að breyta til, frek-
ar en heimsendi, þó að það sé auð-
vitað skítt.
Fólk nefnir líka alltaf mikilvægi
þess að hafa einhvern sem styður þig,
fjölskyldu, vini, samstarfsfólk eða
góðan þerapista. Það segir sig sjálft
en samt er ekki nóg að hafa tengsl
við fólk. Þú þarft líka að vera tilbú-
inn að viðurkenna að þú ráðir ekki
við aðstæður, nokkuð sem mörgum
fullorðnum og jafnvel börnum, vex
í augum. Sumum finnst það skömm
að leita sér hjálpar. Þeir bera sína
þjáningu í hljóði þar til þeir bresta.
Afleiðingarnar geta verið heilsu-
brestur, kulnun, jafnvel sjálfsvíg.
Dæmi um erfiðleika sem flestum
finnst erfitt að viðurkenna að þeir
ráði ekki við eru skuldir. Því að það
er stöðutákn í okkar samfélagi að
skorta aldrei peninga. Erlendis kom
í ljós að í 40% tilvika þegar fullorðið
fólk framdi sjálfsvíg voru fjárhags-
erfiðleikar til staðar. Þannig er það
grafalvarlegt að við höfum gert það
skammarlegt tabú að ræða þessi mál.
Til að geta fengið hjálp þurfum við
að berskjalda okkur gagnvart ein-
hverjum, sem er erfitt og krefst hug-
rekkis og trausts.
Að lokum er gott að vita af því
að margir sem upplifa áföll og jafn-
vel brotna við það, koma til baka,
ekki bara jafngóðir, heldur upplifa
svokallaðan áfallaþroska við það að
vinna úr hlutunum. Fólk endurmet-
ur líf sitt. Það skilur á annan hátt
hvað er mikilvægt, upplifir meira
þakklæti og nýtur lífsins á annan,
dýpri hátt en áður. Bara að vita að
þetta getur gerst er líka gagnlegt
fyrir okkur.
Steinunn Eva Þórðardóttir
Bugað fólk
eða lífsreynt