Skessuhorn


Skessuhorn - 07.11.2018, Side 1

Skessuhorn - 07.11.2018, Side 1
Ábúendaskipti eru ekki sér- lega tíð um þessar mundir í sveitum landsins. Á bæn- um Valþúfu á Fellsströnd í Dölum hafa nýir ábú- endur nú keypt jörðina og tekið við búskap. Það eru þau Sæþór Sindri Kristins- son og Rúna Blöndal sem söðluðu um, seldu húsið sitt á Akranesi, keyptu sér jörð og taka við búi af þeim Hrefnu Ingibergsdóttur og Rúnari Jónassyni, sem veita unga fólkinu ýmsa að- stoð við fyrstu skrefin í bú- skapnum. Í viðtali við þau Sæþór og Rúnu í Skessu- horni í dag kemur fram að þau eru bæði sveitafólk þó hvorugt þeirra hafi alist upp á sveitabæ. Sjá bls. 22 FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 45. tbl. 21. árg. 7. nóvember 2018 - kr. 750 í lausasölu arionbanki.is Það tekur aðeins örfáar mínútur að skrá sig í viðskipti hjá Arion banka. Af því að okkar lausnir snúast um tíma og þægindi. Þægilegri bankaþjónusta gefur þér tíma Nýtt! Fæst án lyfseðils Eru bólgur og verkir að hrjá þig? 30% afslátt ur Okkar glæsilega og holla sími 437-1600 hádegishlaðborð Bjóðum ykkur velkomin alla daga frá kl. 11:30 til 14:30 Jólahádegishlaðborð í desember, sjá á landnam.is Borðapantanir landnam@landnam.is og síma 437-1600 20 ÁR Þegar haustið leggst yfir og daginn tekur að stytta eru tjaldútilegur ekki ofarlega í huga margra en það á ekki við um nokkra galvaska skáta úr Grundarfirði. Berserkja- skátar voru einmitt í einni slíkri útilegu um liðna helgi undir öruggri leiðsögn Aðalsteins Þorvaldssonar og Mörtu Magnúsdóttur skátahöfðingja Íslands. Á fimmtudags- kvöld var haldið inn í Kolgrafafjarðarbotn og slegið upp stóru tjaldi undir stjörnubjörtum himni á meðan norðurljósin dönsuðu fyrir ofan. Þar var gist fyrstu nóttina í tjaldi og var hitastigið vel undir frostmarki. Á föstudagsmorgninum var pakkað saman og haldið í gönguferð yfir Tröllaháls og yfir í Hraunsfjörð. Þaðan var gengið að skálanum við Selvallavatn þar sem gist var aðra nótt. Á laugardeginum var svo pakkað saman og haldið heim reynslunni ríkari eftir frábæra ævintýraferð þar sem ófáir kílómetrarnir voru lagðir að baki og stórir persónulegir sigrar unnir hjá þessum dugmiklu krökkum. Á myndinni er hópurinn á föstudagsmorguninn áður en tjöldin voru tekin niður. F.v. Marta Magnúsdóttir skátahöfðingi Íslands, Gunnar Jökull Sigurðsson, Kristján Freyr Tómasson, Gabríel Ómar Hermannsson, Aðalsteinn Þorvaldsson, Margrét Helga Guðmundsdóttir, Íris Birta Heiðarsdóttir og Harpa Dögg Heiðarsdóttir. Ljósm. tfk Hrönn Ásgeirsdóttir, fé- lagsráðgjafi á Akranesi, hlaut á dögunum verð- laun Ís-Forsa, samtaka um rannsóknir í félags- vísindum, fyrir fram- úrskarandi framlag til rannsókna á sviði félags- vísinda á meistarastigi. Verðlaunaritgerð Hrann- ar heitir: „Það sem ekki varð“ og fjallar um upp- lifun og reynslu foreldra af stuðningi og þjónustu í kjölfar barnsmissis. Rann- sóknarefnið er henni mikið hjart- ans mál, því Hrönn þekkir barns- missi af eigin raun. Dóttir hennar, Lovísa Hrund Svavarsdóttir, lést í apríl 2016 þegar ölvaður ökumað- ur keyrði á hana þar sem hún var á leið heim frá vinnu á Akrafjallsvegi. Lovísa var aðeins 17 ára gömul. Reynsla Hrannar varð kveikj- an að rannsókninni og niðurstöð- urnar eru vægast sagt sláandi. „Það sem kom út úr minni rannsókn var eiginlega allt það versta sem maður gat ímyndað sér,“ segir Hrönn. Sjá bls. 16-17. „Það sem ekki varð“ Ungt fólk í búskap

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.