Skessuhorn


Skessuhorn - 14.11.2018, Blaðsíða 27

Skessuhorn - 14.11.2018, Blaðsíða 27
MIÐVIKUDAGUR 14. NÓVEMBER 2018 27 Nýtingarflokkur eða verndarflokkur Umhverfismál og orkunýting er mikið til umfjöllunar þessi dægr- in enda er um stórfellt hagsmuna- mál að ræða fyrir þjóðina í aðsteðj- andi orkuskiptum. Ein er sú teg- und orku sem við gefum hins vegar of lítinn gaum og það er starfsork- an, ekki síst sú nýting sem snýr að öryrkjum og eldri kynslóðinni. Hér getum við virkjað betur, virkjunar- kostirnir eru margir og góðir hring- inn í kringum landið og allir eru þeir umhverfisvænir. Svo líkingamálinu sé haldið áfram, þá má einnig spyrja sig hvort þessir hópar séu í nýting- arflokki eða verndunarflokki stjórn- valda. Fulltrúar bæði eldri borgara og öryrkja láta að því liggja í ræðu og riti að stjórnvöld hunsi hags- muni þeirra og setji þá í raun í ein- hvers konar afgangsflokk. Þar megi hvorki með góðu móti afla sér tekna eða spara fé í banka án þess að gróf- ar skerðingar komi til og ávinningur verði að engu. Forgangur Sem betur fer býr hluti eldri borg- ara við ágæt skilyrði varðandi sinn lífeyri og þarf ekki frekari efnahags- lega fyrirgreiðslu. Þessi hópur er hins vegar enn sem komið er í tals- verðum minnihluta. Við þurfum að setja alla okkar krafta í að bæta að- stæður þeirra sem búa við mjög kröpp kjör, hafa ráðstöfunartekjur sem eru undir skilgreindum fram- færslumörkum og lifa við sára fátækt og niðurlægjandi aðstæður og þar í hópi er þorri öryrkja. Vinna lengi Það er svo sem ekki sjálfstætt mark- mið í sjálfu sér að sem flestir aldr- aðir séu þátttakendur í atvinnulíf- inu, vinni sem lengst og sem mest. Mikilvægt er að einstaklingar séu óbundnir að þessu leyti, þ.e. að þeir sem kjósa og hafa aðstöðu til geti valið að vinna lengi fram eftir aldri. Hlutskipti öryrkja er sérstaklega viðkvæmt í þessu sambandi. Hlutfall eldri borgara á Íslandi er lægst meðal OECD-ríkjanna og atvinnuþátttaka þeirra er mikil, meiri en í nágrannalöndum okkar. Á aldursbilinu 65–69 ára er hlut- fallið a.m.k. 53% en mun lægra, t.d. í Bretlandi, Svíþjóð, Hollandi og Danmörku. Þetta gerist þrátt fyrir það hamlandi og letjandi kerfi sem við búum við. Breytt viðhorf til vinnu Það tíðkast meðal flestra iðnvæddra þjóða að fólk fer frekar tímanlega á eftirlaun. Það gera Íslendingar síð- ur, þeir fara seinna á lífeyri. Þessa stefnu iðnvæddra ríkja má rekja til þess að víða vildu stjórnvöld til skamms tíma hvetja eldra fólk til að hætta vinnu og rýma til fyrir hinum yngri. Með breyttri aldurssamsetn- ingu, breyttum viðhorfum yngra fólks til vinnu og meira framboði eldri borgara sem vilja vinna þarf að endurskoða þessa hugsun. Fólk er heilsuhraustara nú en áður og fleiri geta verið lengur á vinnumarkaði. Í þessu tilliti er stuðst við álit Alþjóða- heilbrigðismálastofnunarinnar og ráðleggingum hennar fylgt. Hvernig standa þeir eldri sig? Margar erlendar rannsóknir hafa verið gerðar á viðhorfum til mið- aldra eða eldra fólks á vinnustöðum. Þessar rannsóknir hafa m.a. ver- ið gerðar vegna kenninga, viðhorfa og jafnvel hindurvitna um að starfs- menn sem eru miðaldra eða eldri vinni hægar, eigi erfiðara en yngra fólk með að tileinka sér nýja tækni og aðferðir og því meiri líkur á að þeir hinir yngri verði fyrir valinu. Niðurstöður rannsókna hafa þó sýnt að eldra starfsfólk er mikils metið innan fyrirtækja vegna þeirra kosta sem það hefur. Þar má nefna góða starfsfærni, lífsreynslu, vandvirkni, ábyrgð í starfi og jákvætt viðhorf. Álit íslenskra stjórnenda Íslensk rannsókn, sem gerð var í meistaranámi ekki alls fyrir löngu, rýndi í upplifun og viðhorf stjórn- enda til miðaldra og eldri starfs- manna. Þeir sem tóku þátt í rann- sókninni voru stjórnendur fyrirtækja innan verslunargeirans. Helstu nið- urstöður sýndu að stjórnendur töldu eldri starfsmenn almennt hafa betra vinnusiðferði, sýndu nákvæm- ari vinnubrögð, betri mætingu og sýndu fyrirtækinu meiri hollustu. Meiri hluti stjórnenda greindi eng- an mun á því hvort eldri eða yngri starfsmenn leystu verkefni sín af hendi greiðar eða fyrr. Eldri starfs- menn voru frekar tilbúnir að deila reynslu sinni og þekkingu með öðr- um en þeir yngri. Það helsta sem stjórnendum fannst að eldri starfs- menn mættu bæta var tölvufærni og internetnotkun. Almennt voru viðhorf til eldri starfsmanna því já- kvæð. Hvað segja þeir eldri sjálfir? Gerðar hafa verið viðhorfskann- anir meðal eldra fólks á Íslandi og spurt hvort það gæti hugsað sér að fara út á vinnumarkaðinn. Reynd- ar var tæplega helmingur svarenda í vinnu en þriðjungur sýndi að auki mikinn áhuga ef það hefði af því ein- hvern fjárhagslegan ávinning, ef það skerti ekki bætur þeirra til muna frá Tryggingastofnun ríkisins. Samanburður ekki hagstæður Greiðslur ríkis og lífeyrissjóða til eftirlauna nema um 10% af vergri þjóðarframleiðslu hjá hinum Norð- urlandaþjóðunum. Á Íslandi nema þær aðeins um 5%. Þetta verður auðvitað að skoða í ljósi mismunandi lífeyrissjóðaupp- byggingar. Ef athugað er hve mik- ið ríkið eitt greiðir til eftirlauna á Norðurlöndum er munurinn meiri. Á Íslandi ver ríkið rúmlega 2–3% af vergri þjóðarframleiðslu til eft- irlauna en í Danmörku greiðir rík- ið um 8% til eftirlauna. Auk þess er lífeyrir aldraðra og öryrkja til muna hærri í hinum norrænu ríkjunum. Gerum betur Sú umgjörð sem við búum öldruð- um er aldeilis óviðunandi. Breyt- ingar þarf að gera hratt. Við eigum ekki að láta okkur nægja þá hugsun að dropinn holi steininn. Almenn- ar reglur eiga að gilda um aldraða í skattkerfinu rétt eins og um aðra borgara. Ef þeir kjósa að starfa á vinnumarkaði þar sem mikil þörf er fyrir þá er ekkert eðlilegra en að þeir greiði skatta og gjöld eins og hver annar borgari. Við þurfum hins veg- ar að tryggja að þeir sem ekki geta sótt vinnumarkaðinn, eða kjósa að gera það ekki, geti lifað sómasam- legu lífi af eftirlaunum sínum. Þann- ig var og er almannatryggingakerf- ið hugsað, að vera öryggiskerfi fyrir alla landsmenn. Guðjón S Brjánsson Höf. er alþingismaður fyrir Sam- fylkinguna í NV kjördæmi. Umhverfisvæn orka eða hvað? Pennagrein Á sveitastjórnarfundi þann 8. nóvember sl. í Borgarbyggð var fjár- hagsheimild fyrir 2019 og fjárhags- áætlun 2020-2022 lögð fram til fyrri umræðu. Þar kemur fram að rekstr- arafgangur vegna ársins 2019 verði 116 milljónir króna (m.kr) fyrir A og B hluta sveitasjóðs. Veltufé frá rekstri í sjóðsstreymisyfirlitinu er ráðgert tæpar 392 m. kr og hand- bært fé frá rekstri verði 366 m. kr. fyrir 2019. Skuldir sveitarfélagsins hafa lækkað verulega á síðustu árum. Árið 2019 eru skuldir A hlutans um 170 m. kr ef áætlanir standast mun lækkun skulda halda áfram og verða þær að mestu niðurgreiddar fyrir A hlutann árið 2025 eða um 30 m. kr. Það sem skiptir miklu máli þegar horft er á árið 2019 er að rekstraraf- koman er jákvæð um 116 m. kr þrátt fyrir að gert sé ráð fyrir að fasteigna- skattur lækki til muna eða úr 0,45% í 0,40%. Á næstu fjórum árum sem þessi fjárhagsáætlunin tekur til er áætlað að greiða niður skuldir sveitar- félagsins um 1.200 m. kr. Framkvæmdaáætlunin var lögð fram undir þeim formerkjum að hún muni taka breytingum á milli umræðu. Nú hefur samt sem áður myndast ákveðið svigrúm innan sveitarfélagsins til að fara í fram- kvæmdir og sinna viðhaldi eftir mörg mögur ár í þeim efnum. Með þessu er vonin sú að farið verði í málefnalegar umræður um for- gangsröðun þeirra verkefna sem allir flokkar lofuðu í yfirstandandi kosningum. Það er einnig mikilvægt að horft verði lengra fram í tímann með þær framkvæmdir sem vitað er að þarf að setja á dagskrá. Sam- hliða fjárhagsáætlunargerð er unn- ið að markmiðssetningu til fram- tíðar í fjármálum Borgarbyggðar í samstarfi við KPMG. Sú áætlun er til þess fallin að varpa ljósi á hversu hratt og raunhæft er að að fara í þær framkvæmdir sem lagðar eru fram í framkvæmdaáætlun auk þess að reka sveitarfélagið svo sómi sé að. Allar áætlanir munu alltaf taka mið af því hvernig efnahagsástandið er hverju sinni. Til að fjármagna framkvæmdir er nauðsynlegt að ráðast í lántöku. Þá er bæði átt við þær framkvæmdir sem fyrirhugaðar eru og einnig þær sem þegar eru komnar af stað. Gert er ráð fyrir 400 m. kr lántöku árið 2019 miðað við þá framkvæmda- áætlun sem nú liggur fyrir. Umræða hefur verið um hvort hægt verði að hraða framkvæmdum við Grunn- skólann í Borgarnesi en komi til þess þarf að gera ráð fyrir meiri lántöku á næsta ári. Skuldastaða sveitarfélags- ins er góð en skuldaviðmið þess er 72% og fer batnandi en miðað er við að heildarskuldir og skuldbind- ingar A og B hluta í reikningsskilum séu ekki hærri en sem nemur 150% af reglulegum tekjum þess. Með 400 m. kr lántöku mun skuldastað- an hækka tímabundið en er vel inn- an þess ramma sem sveitarfélaginu er fært. Mikil umræða hefur verið í samfélaginu um allar þær brýnu framkvæmdir sem þurfi að ráðast í. Í framkvæmdaáætluninni sem lögð var fram á síðasta sveitarstjórnar- fundi má sjá helstu kröfur sem fram komu í kosningabaráttunni og hvað þær þýða fyrir fjárhag sveitafélags- ins. Þær framkvæmdir sem meirihlutinn leggur sérstaka áherslu á og verður ekki hnikað eru. • Viðbygging og endurbætur við Grunnskólann í Borgarnesi • Koma leikskólanum Hnoðrabóli í nýtt húsnæði á Kleppjárnsreykjum og gera viðeigandi bætur á húsnæði GBF Kleppjárnreykjadeild svo vel fari um alla. • Leggja ljósleiðara um hinar dreifðu byggðir Borgarbyggðar. • Nýframkvæmdir í gatnagerð til að hægt verði að fjölga íbúum enn frek- ar víðsvegar um sveitarfélagið. Ýmsar aðrar fyrirhugaðar breyt- ingar er einnig teknar inn í þessa vinnu til að mynda þær skipulags- breytingar sem ákveðið hefur ver- ið að ráðast í og undirrituð fjallaði um í grein minni „Í fréttum er þetta helst – Borgarbyggð“ í síðasta blaði Skessuhorns. Forsendur þessarar vinnu er að viðhalda árangri í rekstri stofnana sveitarfélagsins sem náðst hefur á undanförnum árum en gæta jafn- framt að gæðum þeirra þjónustu sem veitt er. Halldóra Lóa Þorvaldsdóttir. Höf. er formaður byggðarráðs Borg- arbyggðar og oddviti VG. Pennagrein Fjárhagsáætlun – Fyrri umræða Næsta afhending REKO Vesturland verður laugardag- inn 17. nóvember á bílastæð- inu við Dalbraut 1, Krónuna á Akranesi, milli klukkan 11 og 12. „Framboðið hefur aldrei verið meira. Tólf framleið- endur bjóða vörur sínar og er fjölbreytileikinn mikill,“ seg- ir í tilkynningu. Í boði verð- ur úrval af lambakjöti, nauta- kjöti, mjólkurvörum, fiski og skelfiski, velferðarkjúklingur, kálfakjöt og innmatur, land- námshænsnaegg, tvíreykt sauðahangikjöt, þurrsaltað og tvíreykt hangilæri, birkireykt- ur bláberjabiti, London lamb, ær-file, ferskt og grafið kið- lingakjöt, kofareykt sveita- bjúgu, kindahakk, brjóstsyk- ur, geitaostur og -pylsur, sult- ur, síróp og hlaup svo eitthvað sé nefnt. Til að panta er hægt að fara inn á viðburð- inn: www.facebook.com/ events/182842509299649/ -fréttatilkynning Næsta REKO Vesturland á laugardag

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.