Skessuhorn - 05.12.2018, Qupperneq 1
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 49. tbl. 21. árg. 5. desember 2018 - kr. 750 í lausasölu
arionbanki.is
Gjafakort Arion banka er alltaf rétta jólagjöfin
Þú velur fjárhæðina, þiggjandinn velur gjöfina.
Gjafakort Arion banka er hægt að nota hvar sem
er og fæst í öllum útibúum okkar.
Gjöf sem
gleður alla
gleður alla
Nýtt!
Fæst án lyfseðils
Eru bólgur og verkir
að hrjá þig?
20 ÁR
Landnámssetur
í desember
sími 437-1600
Jólahádegishlaðborð
6. 7. 13. og 14. des.
Borðapantanir í síma 437-1600
Gjafabréf á leiksýningar er tilvalin jólagjöf
Laugardagur 8. desember kl. 20:00
Kyrrlát jól með KK og Ellen
á Sögulofti
Miðasala á tix.is
Þorláksmessuskata 23. desember
Nauðsynlegt að panta borð í tíma
Nánar um dagskrá á
landnam.is/vidburdir
Landsmenn héldu með margvíslegum hætti upp á það síðastliðinn laugardag að öld er liðin frá fullveldi Íslands. Allskyns menningardagskrá var í boði, meðal annars
á nokkrum stöðum á Vesturlandi. Á kaffihúsinu Blómasetrinu Kaffi kyrrð í Borgarnesi svar slegið upp hátíðarhlaðborði að hætti ömmu. Voru fjölmargir sem nýttu sér
þjóðlegar og góðar veitingar og notalega stemningu. Hér eru prúðbúnar við veisluborðið þær Svava Víglundsdóttir, Katrín Huld Bjarnadóttir og Ása Haraldsdóttir.
Ljósm. mm.
Að morgni 1. desember síðastlið-
ins stóðu nokkrar konur, sem hafa
langt skátastarf að baki, fyrir göngu-
ferð undir yfirskriftinni „Flaggað á
Háahnúki“. Konurnar starfa allar
með eldri skátum í Svannasveitinni
á Akranesi en Bandalag íslenskra
skáta hafði hvatt til þess að skátar
flögguðu sem víðast þennan dag.
Tilefnið var að fagna 100 ára full-
veldi Íslands og um leið að íslenski
fáninn var í fyrsta sinn dreginn að
húni sem fullgiltur þjóðfáni þenn-
an dag 100 árum fyrr. Gönguferðin
var auglýst og opin öllum en veðrið
að morgni fullveldisdagsins hélt ef-
laust einhverjum heima. Þrátt fyrir
hífandi rok var það sex manna hóp-
ur sem flaggaði á Háahnúki í kulda
og trekki sem fékk hópinn vissu-
lega til að hugsa um frostaveturinn
mikla 1918. Þá var í upphafi ferð-
ar flutt ljóð eftir afmælisbarn dags-
ins Eggert Ólafsson, Ísland ögrum
skorið, auk þess að fallega ljóðið
Mikilvægi, eftir Inga Steinar Gunn-
laugsson hyllti fjallið fagra.
mm/elf
Flögguðu á Háahnúki í kulda og trekki
Skátaflokkurinn Grélöð á toppnum. Flokkinn skipa Anna Margrét, Eydís Líndal,
Hjördís Hjartar og Helga Elínborg. Sú síðastnefnda komst ekki á toppinn vegna
mjalta. Ljósm. Þröstur Þór Ólafsson.
Hópurinn á fjallinu; Heiða Hallsdóttir, Guðmundur Sigurbjörnsson og Þröstur Þór
Ólafsson Auk Grélaðar. Ljósm. Eydís Líndal.