Skessuhorn - 19.12.2018, Blaðsíða 42
MIÐVIKUDAGUR 19. DESEMBER 201842
Fréttaannáll ársins 2017 í máli og myndum
verður farið í endurbætur í núverandi húsnæði en hluti þess
er kominn til ára sinna og er þörf á töluverðum endurbótum
innanhúss. Endurbæturnar sem farið verður í á næstu árum
gera það að verkum að öll umgjörð skólastarfsins batnar og
starfsaðstæður nemenda og kennara sömuleiðis. Verkefnið er
langstærsta fjárfesting Borgarbyggðar um þessar mundir og
áætlað að heildarkostnaður verði um eða yfir einn milljarð-
ur króna.
Fimleikahús í byggingu
Akraneskaupstaður og Hvalfjarðarsveit skrifuðu á árinu und-
ir samkomulag við hestamannafélagið Dreyra um byggingu
reiðhallar á Æðarodda. Gera má ráð fyrir að framkvæmdir
hefjist á næsta ári. Þá eru hafnar framkvæmdir við byggingu
fimleikahúss sem verður sambyggt Íþróttahúsinu við Vestur-
götu. Húsið verður 1.640 fermetra fimleikasalur, með steyptri
áhorfendastúku, stökkgryfjum, trampólínum með lendingu
og fíbergólfi, svokölluðu „Fast track“ og öllum þeim búnaði
sem þarf til fimleikaiðkunar við bestu mögulegu aðstæður.
Auk nýbyggingar fimleikahúss verða núverandi búningsklef-
ar íþróttahússins við Vesturgötu endurnýjaðir sem og anddyri
og kennslurými þar sem frístund Brekkubæjarskóla hefur ver-
ið starfrækt. Verktaki við byggingu fimleikahússins er fyrir-
tækið Spennt ehf., sem átti lægsta tilboð í verkið, 607 millj-
ónir króna.
Ísland brátt ljóstengt
Í haust var boðið út eitt stærsta verkefni á landsvísu sem teng-
ist áætluninni Ísland ljóstengt 2020, sem fjallar um ljósleið-
aravæðinguna. Í ljósi hás meðalkostnaðar vegna landsstærð-
ar og dreifbýlis Borgarbyggðar var sveitarfélagið síðast í röð
dreifbýlissveitarfélaga á Vesturlandi. Framkvæmdir við lagn-
ingu ljósleiðarans í sveitirnar hefjast af krafti á næsta ári og
mun ljúka á tveimur til þremur árum. Ljósleiðari í dreifbýli er
tvímælalaust eitt mesta byggðamálið, á eftir bættum vegasam-
göngum. Tækifæri til náms og vinnu aukast til muna og þá
eru tæki á borð við sjónvarp, tölvur, útvarp og síma háð því að
ná góðu sambandi við umheiminn, en bestu mögulegu gæði
nást einmitt með ljósleiðara.
Hvalfjarðargöng gjaldfrjáls
og gefin ríkinu
Innheimtu veggjalda fyrir akstur í gegnum Hvalfjargöng var
hætt í lok september. Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og
sveitarstjórnarráðherra, var síðasti ökumaðurinn sem greiddi
fyrir ferðina. Í framhaldi þess færði hann blómvönd þeim veg-
farendum sem voru fyrstir til að aka í gegnum göngin eftir að
gjaldtöku var hætt. Voru það ítalskir ferðamenn á leið sinni um
landið sem skildu bókstaflega ekkert í þessum blómum og við-
höfn. Við athöfn við gangnamunnann næsta á eftir sunnudag
var skrifað undir afsal þar sem ríkið tók við göngunum af Speli.
Síðan hafa veglyklar og áskriftarsamningar verið innkallaðir og
unnið að uppgjöri við bíleigendur. Þar með var ríflega 20 ára
gjaldtaka fyrir akstur í gegnum Hvalfjarðargöng á enda.
Norðlingafljót brúað
Í október var ný 27 metra brú reist yfir Norðlingafljót ofan við
Helluvað á Arnarvatnsheiði. Búið var að steypa veglega brúar-
stöpla á hraunkantinn sitthvorum megin við ána en sjálf brúin
var sett saman á landi og hífð á sinn stað með 250 tonna krana.
Brúin er nú tilbúin og verður vígð næsta vor. Þetta mannvirki
bætir tengingu milli landshluta; Borgarfjörð og Húnavatns-
sýslu, og má gera ráð fyrir vaxandi umferð þar á næstu árum.
Þá bætir brúin aðgengi að veiði í vötnum á Arnarvatnsheiði.
„Líklega versta nammi í heimi“
„Það virðist vera hálfgerð þjóðaríþrótt að troða hákarli upp í
útlendinga,“ sagði Geir Konráð Theodórsson, uppfinninga-
maður í Borgarnesi í samtali við Skessuhorn. Hann hóf í byrj-
un nóvember sölu á vegan hákarlanammi, sem hann framleið-
ir sjálfur. Um er að ræða „líklega versta nammi í heimi,“ eins
og stendur á umbúðunum. „Þetta er fyrst og fremst grín,“ segir
hann. Sælgætið, ef sælgæti skyldi kalla, er einkum hugsað fyrir
erlenda ferðamenn. „Ég hugsaði með mér að það væri mögu-
lega markaður fyrir hákarlanammi hjá útlendingum. Fyrst eru
þeir plataðir af Íslendingum til að smakka þetta og síðan geta
þeir bara platað vini sína þegar þeir koma heim,“segir uppfinn-
ingamaðurinn. En hvernig líkar honum sjálfum nammið? „Ég
er búinn að smakka það svo oft og svo margar útgáfur að ég er
hættur að kippa mér upp við (ó)bragðið.“
Bragi gerður að heiðursborgara
Fimmtudaginn 1. nóvember síðastliðinn færði bæjarstjórn
Akraness Braga Þórðarsyni nafnbótina heiðursborgari Akra-
ness við hátíðlega athöfn á Bókasafni Akraness. Bragi er átt-
undi einstaklingurinn sem hlýtur þessa nafnbót en á undan
honum hafa verið: Einar Ingjaldsson, sr. Friðrik Friðriksson,
Ólafur Finsen læknir, Guðrún Gísladóttir ljósmóður, sr. Jón
M. Guðjónsson, Þorgeir Jósefsson og Ríkharður Jónsson.
Öll eru þau fallin frá. Allir þessir einstaklingar stuðluðu að
því, hver með sínum hætti, að skapa bæjarfélaginu Akranesi
sérstöðu meðal annarra sveitarfélaga og efldu með íbúunum
stolt, sem ekki verður metið til fjár, sagði í tilkynningu Akra-
neskaupstaðar.
Fullveldis minnst
Hundrað ára afmæli fullveldis landsins var minnst með ýms-
um hætti á árinu. Að morgni 1. desember stóðu nokkrar kon-
ur, sem hafa langt skátastarf að baki, fyrir gönguferð undir yf-
irskriftinni „Flaggað á Háahnúki“. Tilefnið var að fagna 100
ára fullveldi Íslands og um leið að íslenski fáninn var í fyrsta
sinn dreginn að húni sem fullgiltur þjóðfáni þennan dag 100
árum áður.
Baðlaug í sjávarmáli
Laugardaginn 8. desember var Guðlaug við Langasand form-
lega tekin í notkun. Guðlaug er laug á þremur hæðum, alls sex
metra hátt mannvirki, steinsteypt í grótvarnargarðinn neðan
við stúku Akranesvallar og Aggapall. Efst er útsýnispallur sem
gengið er útá beint af göngustíg sem liggur meðfram Langa-
sandi. Undir pallinum er stjórnherbergi og heit laug samsíða
honum sem vísar á móti sjónum með útsýni yfir Akraneshöfn,
Faxaflóa og til Reykjaness. Önnur grynnri laug er á neðstu
hæð mannvirkisins og nýtir hún yfirfallsvatn sem rennur úr
pottinum fyrir ofan. Þegar laugin er opin er sífellt gegnum-
streymi og því er ekki þörf á klór eða öðrum hreinsiefnum.
Á stórstreymi flæðir sjór í neðstu laugina. Á sandinum fram-
an við mannvirkið hefur verið komið fyrir nokkrum stórum
steinum en hlutverk þeirra er að draga úr sjógangi og álagi á
mannvirkið.